Jazz - 01.10.1947, Blaðsíða 13
trommuleikur og var kennari Kristjáns A.
Duquas en Svavars Morris Goldenberg.
Þeir félagar voru 14 mánuði við skólann
(námstími er 4 ár), en þeir sóttu fjölda auka-
tíma utan skólans, lærði Kristján hljómsveit-
arútsetningu en Svavar víbrafónleik.
Tímaritið „Jazz“ hafði viðtal við þá félag
sakömmu eftir heimkomuna, inn á milli æf-
inga K.K. sextettsins, er Kristján hefir stofn-
að, sbr. 5. tölublaði „Jazz, og eru þeir félagar
mjög fegnir að geta byrjað að starfa hér
heima aftur.
Tíðindamaður: Er mikill Áhugi fyrir jazz
í Bandaríkjunum?
Kristján: Já, það er vel hægt að segja, og
áhuginn er mikið að aukast.
Svavar: Áhuginn er miklu jafnari þar en
t. d. hér hima, þ. e. a. s. fólk á öllum aldri
virðist kunna að meta hann.
T.: Hver er bezta hljómsveit Bandaríkj-
anna nú á þessu ári ?
K.: Hiklaust Ellington, er enn heldur sæti
sínu, en í Be-Bop er Dizzy Gillespie nr. 1.
T.: Er kynþáttahatur mikið í Bandaríkj-
unum ?
S.: Já, það ber mikið á því, en þó ekki
meðal menntamanna.
T.: Eru svertingja á Julliard?
K.: Já, þar eru allir þjóðflokkar.
T.: Hvernig lýzt ykkur á jazzinn hérna
eftir heimkomuna?
K.: Hljóðfæraleikurum liefir farið mikið
fram og margir nýir bætzt við í hópinn.
S. : Mér finnst annars vera leikið of lítið
af jazzmúsik í útvarpinu, en vonandi lagast
það.
T. : Hver er uppáhalds frístundaiðja ykkar?
K.: Hlusta á jazzplötur, og á Svavar mikið
safn, eitthvað um 1000 góðar jazzplötur, en
að mínu áliti er það nauðsynlegt fyrir jazz-
ista að hlusta á það nýjasta í jazz og reyna
ávallt að fylgjast með nýjungum á því sviði.
T.: Hverjir eru uppáhalds hljóðfæraleikarar
ykkar?
S. : Mínir uppáhalds einleikarar eru Bill
Harris, Buddy Rich, King Cole og Red
Norvo, svo nokkrir séu nefndir.
K.: Eg er hrifnastur af Johnny Hodges,
Flip Philips, og Dizzy Gillespie, en af söngv-
urum BING CROSSBY og Ellu Fitzgerald.
T. : Meðan ég man eftir því, Hvenær ætlar
þú að lofa okkur að heyra í víbrafóninum,
Svavar ?
S.: Eg veit það ekki, e. t. v. eftir nýjár.
JAZZ 13