Jazz - 01.10.1947, Blaðsíða 11
Svavar Gestsson:
Fréttir
og fleira
Hljómsveitarstjórarnir Woody Herman,
Tommy Dorsey og Paul Whitman hafa ný-
lega gerzt „Disc Jockey", en það er sá maður
kallaður í Bandaríkjunum, sem hefur það
að atvinnu að spila og tala um plötur í út-
varpstíma (shr. Jón M. Árnason í Jazzþætti
Ríkisútvarpsins).
Sumir þessara þátta standa allt frá hálfum
og upp í sex tíma á dag, og eru ákaflega
vinsælir meðal hlustenda.
Tommy l’ederson, sem lengi vel lék fyrsta
trombón hjá Gene Krupa, hefur nú stofnnð
eigin hljómsveit.
Art Lund, sem áður söng með Benny Good-
man hljómsveitinni, er sá söngvarinn, sem
einna mestrar vinsældir hefur notið í B3nda-
ríkjunum í ár. Fyrsta lagið, sem hann söng
inn á plötu sem sjálfstæður söngvari, var
„Mam’ selle“ úr kvikmyndinni „I leit að lífs-
hamingju“ og seldist platan í þúsundum ein-
taka, og er sama að segja um næstu plötur
hans.
Mel Torme er annar söngvari, sem frægur
varð í ár. Hann er rúmlega tvítugur að aldri
og er honum spáð engu lakari framtíð en
þeim Sinatra og Crosby.
The Three Flames er nýtt og uppsiglandi
tríó í U. S. A. Hljóðfæraskipun þess er sú
sama og í King Cole tríóinu.
Harry James hefur endurskipulagt hljóm-
sveit sína, og breytt algjörlega um stíl á henni,
spila þeir nú ekki lengur músik, sem fólki
þykir bezt að dansa eftir, heldur það sem
talinn er góður jazz. Þetta mælist mjög vel
fyrir af jazzgagnrýnendum. Eins og margir
muna þá er James afar góður jazz-trompet-
leikari, sem og heyra má á mörgum Benny
Goodman plötum, en með honum lék James
um tíma.
Stan Kenton, sem verið hefur veikur í allt
sumar, er nú byrjaður aftur með hljómsveit
sína. Engar breytingar hafa orðið í henni,
að öðru leyti en því, að söngkonan June
Christy hætti og syngur hún nú sjálfstætt.
That’s Life heitir kvikmynd, sem nú er
í undirbúningi hjá M.G.M. Danny Kay mun
leika aðalhlutverkið, en það sem mest er um
vert er að þeir Benny Goodman, Charlie
Barnet, Tommy Dorsey, Mel Powell, Louis
Armstrong, Benny Carter, Irving Ashby, Vic
Dickenson, Phil Moore, Barney Bigard, Zutty
Singelton og Lionel Hampton munu leika í
myndinni, og er enginn vafi á því, að allir
þeir, sem jazz unna munu bíða útkomu
hennar með eftirvæntingu.
Nellie Lutcher er einhver nýjasta stjarn-
an í jazzheiminum. Hún hefur smáhljóm-
sveit og spilar á píanó og syngur, og mætti
einna helzt líkja henni við King Cole hvað
hæfileika snertir.
„He’s a real gone guy“ heitir platan, sem
hún hefur hlotið mest lof fyrir.
JAZZ 11