Musica - 01.06.1949, Blaðsíða 5

Musica - 01.06.1949, Blaðsíða 5
Shostakovich á íslandi Eftir Alan Moray Williams Shostakovich er á íslandi! Fregnin barst okkur snemma morguns 5. apríl. Flugvél sú er flutti hina sjö rússnesku þátt- takendur af „Menningar og friðarþinginu“ í New York, varð að lenda á Keflavíkurflugvelli að kvöldi hins 4., vegna vélarbilunar, og rússarnir urðu að bíða eftir annari flugvél er var væntan- leg frá Englandi. Við hringdum ameríska hótelið á Keflavíkur- flugvelli (De Gink) upp, og spurðumst fyrir hvort Dmitri Shostakpvich í Kcflavt\ 5. april. (Foto A. M. Williams). rússneska sendinefndin væri enn á vellinum. „Augnablik“, var svarað og við heyrðum hvísl- ingar hjá símanum og ein rödd hvíslaði: ,,í Guðs bænum, láttu hann ekki vita að rússarnir séu hér enn, annars eigum við von á allri Reykja- vík í dag“. Þá vissum við það sem við þurftum að vita og lögðum þegar af stað til Keflavíkur , fengum ókeypis far, fyrst með vörubíl, og svo í einka- fólksbíl, það var sannarlega heppilegt, því í aleig- unni voru aðeins fimmtán krónur, og ekkert hefði orðið af viðtalinu. Keflavíkur flugvöllur . . . veðurbarinn . . . eyði- staður. Okkur er vísað að skítugum hermannabragga . . . viðbygging við De Gink . . . skítur . . . her- mannabeddar . . . stormur. Hvílík viðbrigði fyrir sjömenningana, eftir dvöl þeirra á dyrustu og glæsilegustu gistihúsum New York borgar. Þarna sátu þeir, þreytulegir og deyfðarlegir á hermanna- beddunum, Shostakovich, rithöfundarnir Fadayev og Pavlenko, kvikmyndastjórarnir, Gerassimov og Chiaureli og vísindamennirnir Oparin og Roz- hansky. Þeir höfðu ekki notað sér leyfi íslenzku stjórnarvaldanna og farið til Reykjavíkur. Við undruðumst yfir því og við undrumst enn. Var það draumur, eða veruleiki, að við fengum tækifæri til að virða þetta merka tónskáld fyrir okkur. Það tónskáld er hafði með verkum sín- um haft svipuð áhrif á okkur og Beethoven, Tschaikowsky, eða Chopin, höfundur hinnar dá- samlegu Leningrad sinfóníu, er lýsir á átakanlegan hátt, baráttu, þjáningum, hugrekki og fórnfýsi hins þjáða mannkyns er barðist fyrir frelsi sínu. Vegna þess að tónskáldið var rússneskur borg- ari, var hann jafn fjarlægur og dularfullur og vera frá öðrum hnetti. MUSICA 5

x

Musica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Musica
https://timarit.is/publication/725

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.