Musica - 01.06.1949, Qupperneq 27
„La Tosca" 1. þáttur.
færið til að gera hosur sínar grænar. Tosca fer,
og kirkjugestirnir smátínast inn, og þátturinn
endar með Te Deum.
2. þáttur.
í herbergi sínu í Palazzo Farnese bíður Scarpía
eftir fregnum um fangelsun Angelotti.
Hann sendir Tosca bréf og biður hana að koma
til sín eftir hátíðarhöldin, og hann hlakkar til
að hræða hana til að verða við vilja Scarpias.
Njósnarinn Spolette kemur og tilkynnir
hræðslulega að enn hafi ekki tekist að finna
Angelotti, en þeir hafi í stað hans náð í
Cavaradossi, en spor Angelotti hafi verið rakin
til húss hans.
Cavardossi er færður inn, en hann neitar að
vita noklcuð. Tosca kemur, og farið er með
Cavaradossi inn í hliðarherbergi til frekari yfir-
heyrslu.
Scarpia segir Tosca, að Cavaradossi verði pínd-
ur, en hún geti bjargað honum með því, að segja
frá felustað Angelotti, hún neitar í fyrstu, en
angistaróp Cavaradossi hnekkja mótstöðuafli
hennar.
Cavaradossi er borinn inn, en þegar hann heyr-
ir að Tosca hafði svikið, formælir hann henni.
í því koma fregnir um að Napoleon hafi þegar
lagt til orustu aftur og hafi sigrað ítalska herinn.
Cavaradossi hrópar „Victoria“ og staðfestir þar-
með sinn eigin dauðadóm, og hann er dreginn út.
Scarpia og Tosca verða ein, og hún spyr um
verðið fyrir líf Cavardossi, og Scarpia heimtar
hana sjálfa. Hún fyllist hryllingi og fellur á kné
í bæn.
Spolette kemur inn og segist hafa fundið lík
Angelottis, hafi hann hegnt sig.
Allt er tilbúið til fullnægingu dómsins yfir
Cavaradossi. Tosca gengur að skilmálum Scarpia
full viðbjóðs með þeim skilmálum að Cavaradossi
verði sleppt.
Þessu er þó ekki hægt að koma við, en Scarpia
gefur skipun um, að Cavaradossi verði skotin
með púðurskotum, og eftir það geti svo hann og
Tosca flúið saman.
Scarpia sest að því búnu niður og skrifar
frípassa, en þegar hann stendur upp og ætlar að
faðma Tosca að sér, rekur hún hníf í hann og flýr.
3. þáttur.
Næsti morgun snemma, á vellinum hjá Engels-
borg. Cavaradossi er færður út, hann fær leyfi til
að skrifa kveðjubréf til Tosca, en minningarnar
bera hann ofurliði, og hann sekkur grátandi sam-
an.
Nú kemur Tosca og segir frá afreki sínu, sýnir
honum passan, og útskýrir fyrir honum, hvernig
hann eigi að leika að hann sé skotinn.
Þau tala um komandi hamingju og þegar klukk-
an slær 4 og hermennirnir stilla sér upp, gengur
Cavaradossi rólega fram fyrir byssurnar þangað
sem hann á að standa.
Skotunum er hleypt af, Cavaradossi fellur og
hermennirnir fara.
Tosca hleypur til Cavaradossi og sér að hann er
dáinn.
Nú koma menn Scarpia, þeir hafa uppgötvað
morðið og ætla að ná Tosca, en með bæn á vör
kastar hún sér niður af virkisveggnum.
„lui Tosca" 3. þáttur.
MUSICA 27