Musica - 01.06.1949, Blaðsíða 22

Musica - 01.06.1949, Blaðsíða 22
Brahms var næstur á efnisskránni, en það var sem litauðgi hans næði ekki þeirri fyllingu sem skyldi í höndum Rieflings. Mozart var þriðji með C-Dúr sónötu sína (K. V. 330), og lék Riefling hana snilldarlega, og sýndi hann þar, að Mozart var hans uppáhald. Mýkt og tækni Rieflings sem voru hans beztu eiginleikar nutu sín til fulls í hinu skæra tónar- regni Mozarts, og held ég, að Mozart hafi sjaldan verið betur leikinn hér á landi, en í þetta sinn. Beethoven rak lestina með As-Dúr sónötu sinni, sem Riefling lék skilmerkilega. Riefling var þakkað að verðleikum í lok leiks og lék tvö angurblíð aukalög, sem gerðu hrifn- ingu áheyrenda enn meiri. Það er happ, er tónlistarlífi höfuðstaðarins hlotnast heimsókn sem þessi, en það var rangt af Tónlistarfélaginu að halda ekki að minnsta kosti einn almennan hljómleik, því að það voru allt of margir tónunnendur er urðu af þessari góðu heimsókn, vegna þess að þeir voru ekki styrktarfélagar Tónlistarfélagsins. T. A. Mandólínhljómsveit Reykjavíkur Drei Lilien: H. Erdlen Remembrance: M. Telma Tveir gítarar: Rússneskt þjóðlag Old folks at home: S. Foster Mandólínata: K. Wölki Forspil að óp. la traviata: G. Verdi Menuett rococca: K. Danning Marz: Oliver Guðmundsson Rússneskur lagaflokkur: B. Bernarels Sicilana: G. Pergolesi Máninn: Rússneskt þjóðlag Hljómleikar Mandólínhljómsveitarinnar voru mjög ánægjulegir, að þessu sinni. Hefir hljómsveit- in aldrei verið jafn samtaka og nú og aldrei sýnt slík tilþrif. Á efnisskránni voru þekkt lög, öll erlend, nema eitt, tilkomulítill mars eftir Oliver Guðmundsson sem hefði að skaðlausu mátt sleppa á efnisskránni. Efnisskrá hljómsveitarinnar er heldur einhæf, og er leitt að sjá, að ekki eitt einasta lag skuli vera á efnisskránni eftir þekkta íslezka höfunda, en vonandi stendur þetta til bóta. Hljómsveitarstjórinn Haraldur Guðmundsson stjórnaði hljómsveitinni af festu og innileika, og má efalaust þakka honum mikið, þann árangur er hljómsveitin hefir náð. Hljómleikarnir voru skammarlega illa sóttir. S. Kirkjutónleikar Kirkjutónleikar voru haldnir á Akureyri, helg- aðir Áskeli Snorrasyni, tónskáld. Varð aðsókn ágæt. Forseti bæjarstjórnar Akur- eyrar, Þorsteinn M. Jónsson ávarpaði Áskel, og þakkaði honum gott starf í þágu sönglistarinnar. Nemendatónleikar Tónlistarfélags Akureyrar Fyrstu openberu tónleikar nemenda Tónlistar- skóla Akureyrar, voru haldnir fyrir skömmu og vöktu mikla athygli og aðdáun áheyrenda og var nemendum óspart klappað lof í lófa. Fyrst léku þessir nemendur á píanó: Lena Ruckert, Svanhildur Árnadóttir, Margrét Jóhanns- dóttir, Máni Sigurjónsson, Bryndís Jakobsdóttir. Á fiðlu léku með undirleik: Nanna Jakobsdóttir og Gígja Jóhannsdóttir. Að síðustu- var leikinn konsert fyrir fjórar fiðlur, eftir Teleman, undir stjórn Rut Hermanns og léku með henni: Gígja Jóhannsdóttir, Björgvin Jörgenson og Stefán Tryggvason. Rögnvaldur Sigurjónsson hélt hljómleika í Austurbæjarbíó í marz við ágæta aðsókn og við- tökur. Svava Einarsson hélt hljómleika í Gamla Bíó í apríl við góða aðsókn og undirtektir ágætar. Lansky-Ottó og dr. Urbantscitsch héldu hljóm- leika í Austurbæjarbíó í marz við húsfylli og ágætar undirtektir. Söngmót framhaldsskólanna Iðnskólinn, Kvennaskólinn, Verzlunarskólinn, Menntaskólinn og Kennaraskólinn héldu sameig- inlegt söngmót í Gamla Bíó í marz. Vegna forfalla mættu ekki allir kórarnir, en söngmótið fór ánægjulega fram, og lagði unga fólkið sig bersynilega allt fram við að gera söng- mótið eins ánægjulegt og hægt var. 22 MUSICA

x

Musica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Musica
https://timarit.is/publication/725

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.