Musica - 01.06.1949, Síða 7
Fréttabréf fré Italíu
Nr. 1.
Nýlega fór fram hér í Scala frumsýning á söng-
leiknum Pélles og Melisande eftir franska tón-
skáldið Claude Debussy. Var söngleikur þessi
frumsýndur hér í Scala 2. apríl 1908 með ítölskum
söngvurum undir stjórn Tocaninis. Var söngleikn-
um í það sinn tekið með litlum fögnuði, og er sagt
að næri hafi legið við að hann væri ,þrystur niður',
eins það er orðað. Nokkrum árum síðar, 17. maí
1925, var hann færður upp að nýju einnig undir stj.
Toscaninis og þá á frummálinu. Hlaut hann þá
verðskuldaðan sigur. Þessi sýning þótti nokkur
viðburður hér, enda eru nálega 26 ár síðan
þetta höfuðverk franska meistarans hafði
verið sýnt hér í Scala. — I þetta sinn stjórnaði
verkinu hljómsveitarstjórinn Victor de Sabata, en
hann er um þessar myndir talinn ganga næst
Toscanini. Aðalhlutverkin sungu frönsku hjónin
Géori Boué og Roger Boundin.
*
Annars eru óperusýningar daglega í Scala-leik-
húsunu og ávallt uppselt á skömmum tíma, því
Italir virðast ennþá kunna að meta söngleikina
engu síður nú en á dögum Pucscinis og Verdis.
Þegar aðsókn er sem mest, bíður fólk í tugatali
eftir að fá keypt stæði, jafnvel í tvær stundir
áður en sýning hefst. Meðal söngleikja, sem gengið
hafa undanfarið má nefna: Carmen, Lucia di
Lammemoar, Andrea Chenier, La Forga del
Destino, Regina Uliva, I Purritani, La Tavorita o.
fl. Bráðlega hefst sýning á söngleik Wagners,
Valkyrjan, og verða söngvarnir Kirsten Flagstad
og Max Loreny í aðalhlutverkunum. Stjórnandi
mun verða Victor de Sabata.
*
Fiðlusnillingurinn Yehudi Menuhin kom hér á
leið sinni vestur um haf og hélt hér einn hljómleik.
Lék hann fyrir troðfullu húsi aðdáenda sinna, og
voru viðtökur glæsilegar. Varð snillingurinn að
sefa fagnaðarlætin með tveimur aukalögum.
Efnisskráin var þessi: G. Tartini: Trillo dell
Diavolo. C. Franck: Sonata; G. S. Bach: Ciaccona
(úr IV. sónötunni fyrir fiðlu); N. Paganini:
Conserto í E-moll. — Blöðin hér sögðu að
hann hefði gert menn hvumsa með undraverðri
leikni sinni, en hins vegar hefðu margir orðið
fyrir vonbrigðum hvað snertir túlkun hans, eink-
um á Sónötu C. Francks.
Þá hafa og komið hér fram ýmsir þekktir tón-
listarmenn og má þar t. d. nefna píanósnillinginn
Wilhelm Bacchaus, hljómsveitarstjóran tékkneska
Rafael Kubelik og píanósnillinginn Edvin Fisher.
Sá síðast nefndi stjórnaði hér Margart-tónleikun-
um og lék einleik á píanó.
Um þessar mundir eru 25 ár liðin síðan ítalska
tónskáldið og píanósnillingurinn Ferruccio Busoni
lézt í Berlín í Þýzkalandi. Hann ól aldur sinn að
„La Scala" Milano.
MUSICA 7