Musica - 01.06.1949, Page 13
TÓNMINNINGAR
M.A.
kvartettinn
M.A. kvartettinn átti slíkra vinsælda að fagna
hér á landi og á jafnvel enn, gegnum plötur þær
er leiknar eru í útvarpinu, að fá hliðstæð dæmi
munu vera til í íslenzkri tónlistarsögu.
Á rúmlega tíu árum héldu þeir, fjórmenningar,
yfir 100 söngskemmtanir við dæmafáar undirtekt-
ir.
Kvartettinn var kenndur við Menntaskóla
Akureyrar, en þar hittust fjórmenningarnir.
í Alþýðublaðinu 25. okt. 1942 segist Jóni heitn-
um skáldi frá Ljárskógum svo frá um stofnun
kvartettsins:
„Kvartettinn fæddist eiginlega af sjálfu sér.
Haustið 1932 komu þeir hælisbræður Þorgeir og
Steinþór Gestssynir í Menntaskólann á Akureyri.
Ég og Jakob Hafstein vorum þar fyrir. Ég komst
brátt í náin kynni við þá Hælisbræður og hittumst
við oft í herbergjum okkar og tókum þá oft lagið.
Reyndum við að syngja þríraddað. Svo bar það
einu sinni við, að Jakob kom til okkar, þar sem
við vorum að syngja „Gamla Nóa“, en það er
fylgja okk’ar og uppáhald.
Við kenndum honum fljótt fyrsta bassa, og þar
með var kvartettinn stofnaður“.
Fyrsta skifti er þeir fjórmenningar sungu
opinberlega var á skólaskemm'tun og í útvarpið
komu þeir fram fyi'st á útvarpskvöldi menntaskól-
ans vorið 1933 og upp úr því réðust þeir í að efna
til sjálfstæðrar söngskemmtunar í Reykjavík, og
fengu þeir þar húsfylli og ágætar undirtektir.
Fjórmenningarnir fóru í söngför vestur og norð-
ur um land árið 1935, og fengu alstaðar húsfylli.
1943 hætti kvartetinn söng sínum, því að fjór-
menningarnir höfðu mörgum öðrum störfum að
sinna, og hafa vafalaust einnig viljað hætta með-
an þeir voru upp á sitt bezta, og er það skiljan-
legt.
Nú eru þeir komnir hver í sína áttina, og einn
þeirra, Jón heitinn frá Ljárskógum dó fyrir
nokkrum árum á Vífilsstöðum.
Þótt kvartettinn sé nú hættur, lifir minningin
um hina fjóra æskumenn, er fannst enginn stað-
ur of smár og ekkert samkomuhús of afskekt til
að gleðja fólk með söng sínum.
MUSICA 13