Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Side 8
104
ÚTVARPSTÍÐINDI
anir með lýsingu á gerðum þeirra við-
tækja, er smíðuð verða á bessu tíma-
bili hafa ViStækjaverzluninni borizt frá
nokkrum þekktustu verksmiðjunum.
Þó að ekki sé ætlast til að þær upp-
lýsingar séu nú þegar látnar öðrum í
té í einstökum atriðum, get ég gefið
þær almennu upplýsingar um viðtækja-
gerðirnar, sem væntanlegar eru á áð-
urnefndu tímabjli að þær verða mjög
líkar tækjunum, sem framleidd voru
þegar viðtækjasmíði fyrir almenning
var bönnuð og er þar Iítilla breytinga
að vænta nema hvað snertir útlit iækj-
anna.
Viðtækjasmiðjurnar Iáta hinsvegar
óspart skína í það að þær eigi í fórum
sfnum nýjungar, sem verða muni til
verulegra endurbóta og hagnýttar verði
í tækjasmíðinni smám saman eftir því
sem tími vinst til. Jafnframt er vitan-
legt að ný efni hafa komið fram og ný
tækni tekin upp við framleiðslu margra
viðtækjahluta á þeim tíma, sem ein-
göngu hefir verið unnið að hergagna-
framleiðslunni og að þetta hvoru-
tveggja verður hagnýtt fljótlega í
tækjasmíðinni og mun bæta hana, þó
varla muni það valda verulegri bylt-
ingu á þessu sviði. í öðrum greinum
radio-iðnaðarins hafa hinsvegar verið
boðaðar svo stórfeldar nýjungar að
þær getá kallast næstum æfintýralegar
og er minst á í því sambandi sjónvarp,
hið fræga ,,Radar“-tæki og nýjungar
í senditækni, en þessar nýjungar geta
varla talist áhugamál fyrir íslenzka út-
varpsnotendur.
Þá vil ég að lokum segja það, að
þegar innflutningur viðtækja hefst aft-
ur, ættu að verða meiri og betri mögu-
leikar á því að auka og bjæta tækjakost
landsmanna, en nokkru sinni áður og
sérstaklega þegar miðað er við þreng-
ingar og takmarkanir áranna fyrir
stríðið, meðan gjaldeyris-hungrið svarf
að okkur.
Ég tel að í fáum löndum sé meiri
þörf á útbreiðslu og góðri starfrækslu
útvarpsstarfsemi en hér á Iandi þar
sem víðáttan er svo mikil og strjál-
býlið meira en nokkursstaðar annars-
staðar, samgöngurnar ófullkomnar og
hljóta alltaf að verða erfiðar og veðr-
áttan breytileg og viðsjál. Þýðing út-
varpsins í slíku landi, hlýtur öllum að
vera Ijós.
Nú er kaupmátturinn fyrir hendi og
nýbyggingarandinn í algleymingi Ég
vona því að tækifærið verði nctað til
hins ítrasta til að bæta og auka við-
tækjakost landsmanna og að kjörorð-
inu, sem Viðtækjaverzlunin tók sér í
fyrstu viðtækjaauglýsingum sínum:
„Viðtæki inn á hvert heimili“ verði
fullnægt á skömmum tíma.
Um verðlag get ég ekki annað sagt
en það að viðtækjaverksmiðjurnar ætla
að framleiðslukostnaður þeirra verði
35—40% hærri en var fyrir stríð —
en svo kemur að sjálfsögðu breytingin
á flutningskostnaði og fleira.
SKIP AÐ FARA — EÐA MESSA
AÐ HEFJAST.
S. R. skrifar: „Ég sit annars hugar við
útvarpið. — Heyri eins og fjarlægt hljóð
i eimpípu — síðan skrölt, líkt og verið
sé að losa festar á skipi — lágt öldu-
gjálfur — fótaspark — ræskingar og
mér heyrist helzt einhver vera að taka
i nefið. Síðan verður nokkurnveginn
hljótt, og ég hugsa mér að skipið sé að
skríða út úr höfninni. En viti menn —
það heyrast allt í einu orgeltónar? —
Ég skil. — Það á að fara að útvarpa
messu úr Dómkirkjunni".