Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Blaðsíða 16

Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Blaðsíða 16
112 ÚTVARPSTIÐINDI sem frú Ástrfður Eggertsdóttir flytur 22. júní næstk. og nefnir ,,Á vegum gróandans“. Er hér um einskonar gróðurhvatningu til almennings að ræða, einkum hvað hirðingu garða og kirkjugarða snertir. Er full þörf á slíkri hvatningu. því mörgum mun finnast sem flestir kirkjugarðar þessa lands séu í óþarflega mikilli niðurníðslu og órækt. Sunnudaginn 24 júní flytur Ingólfur Gíslason læknir frásöguþátt, sem hann nefnir „Hjá Grfmi á Bessastöðum". Var Ingólfur heimagangur hjá Grími Thomsen, þegar Ingólfur var í skóla, um og eftir 1890. Fór hann til hans í öllum skólaleyfum, samkvæmt boði Gríms og taldi það ekki eftir sér að hlaupa þangað, því að ekki voru bjf- reiðaferðirnar í þá daga. ■— Ingólfur læknir hefur áður flutt frásöguþætti í útvarpinu í vetur og hafa þeir hlotið miklar vinsældir hlustenda. Vafalaust mun marga fýsa að hlusta á Ingólf segja frá þessu stórbrotna og ramma skáldi á Seltjarnarnesinu. Af upplestrum, sem ákveðnir hafa verið síðari hluta júnímánaðar má benda á upplestur Huldu 14. júní, Kol- beins í Kollafirði og Gils Guðmunds- sonar 23. júní og upplestur Sigurðar frá Munaðarnesi 28. þ. m. Tveir einsöngvarar koma fram á tímabilinu. Annar þeirra, frú Ingibjörg Jónasdóttir, söng tvísöng síðastl vetur í útvarpið með Björgu Bjarnadóttur og þarf ekki að vekja frekari athygli á henni hér. Hinn einsöngvarinn, Einar Markan, er útvarpshlustendum líka að góðu kunnur frá fornu fari. Frú Ingi- björg syngur mánudaginn 18. júní, bæði íslenzk og erlend lög, en Einar Einar Marlcan söngvari syngur viku síðar, lög eftir Árna Thor- steinsson og Sigvalda Kaldalóns. Onnur hljómlistar- og söngatriði sem vakin skal athygli á er samsöngur átt- menninganna þann 20. þ. m., leikur útvarpstríósins 23. og 30. júnf, leikur píanókvartett útvarpsins 22. júní, ein- leikur Fritz Weisshappels á píanó 24. júní og leikur strokkvartetts útvarps- ins 29. júní. ÚTVARPSVIÐGERÐASTOFA Otfó B. Arnar Klapparstíg 16 Reykjavlk annast allskonar viögerðir á útvarps- tækjum og öðrum skyldum tækjum. Fyrsta flokks vinnustofa og góðir starfs- kraftar. Sanngjarnt verð. — 20 ára reynsla - Sfmi 2799

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.