Útvarpstíðindi - 11.10.1948, Blaðsíða 21
ÚTVARPSTÍÐINDI
381
Mannspilm og Asmn
STÓRBROTNASTA SKÁLDVERK ÖNDVEGISHÖPUNDAR
Ný skáldsaga eftir Guðmund Daníelsson, er komin í bókaverzlanir.
Þetta er tvímælalaust stórbrotnasta skáldverk þessa öndvegis-
höfundar. En þetta er 13. bók hans. — Guðmundur Daníelsson er
mikilvirkur höfundur. Hann hefur gefið út ljóðabækur, leikrit,
smásagnasöfn og 9 stórar sögur, auk ferðabókar sinnar, sem kom
út á síðastliðnu hausti.
MANNSPILIN OG ÁSINN er safarík saga, þrungin af leiftr-
andi lífi og frjómagni, mögnuð sterkum örlögum margra persóna,
en þó fyrst og fremst heimilisföðurins að Ási, Jóns Repps alþingis-
manns, og barna hans tveggja, Jónatans Repps og Guðmundu Repps,
en sagan er fyrst og fremst saga þeirra — og þó fremur Jónatans,
hins rótlausa gáfumanns, sem ekki finnur fótfestu á tímamörkum
mikilla breytinga, þegar gamlar dyggðir hverfa, en nýjar koma í
staðinn með verkalýðshreyfingu, mannvirkj afræðingum — og sköpun
bæja og borga, þar sem áður voru aðeins nokkur kot.
Giiðmundur Daníelsson hefur nú fágað stíl sinn, fundið honum
fastara form en áður var, og við lestur þessarar skáldsögu hans
verður öllum ljóst, sem raunar var vitað áður, en er hvergi eins
greinilegt og hér, að Guðmundur er mikið og stórbrotið skáld, og
að hann er á mikilli og örri þroskabraiut. Það mun vera samdóma
álit þeirra, sem vel fylgjast með, að langt sé síðan að svo veigamikil
skáldsaga og þessi hefur komið út hér á landi, frá hendi hinna
yngri höfunda.
MANNSPILIN OG ÁSINN er óvefengjanlega mikið listaverk.
Hún verður skáldsaga þessa hausts, sú sem vekja mun mesta athygli
og aðdáun allra þeirra, sem unna fögrum bókmenntum.
HELGAFELL Garðasfrætl 17