Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is FRUMVARP menntamálaráðherra um breytingar á lögum um RÚV, sem lagt hefur verið fyrir Alþingi, mun hafa töluverð áhrif á rekstur og starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. Í raun hafa áhrifin þegar komið fram með boðuðum uppsögnum og minnk- andi þjónustu, þar sem m.a. inn- heimtudeildin leggst af. Umsvif RÚV á auglýsingamarkaði verða takmörkuð og ákveðið hefur verið að hækka nefskattinn sem taka átti gildi á komandi ári. Afnotagjald- ið leggst því af og 17.900 króna nef- skattur verður lagður á hvern ein- stakling 18 til 70 ára, átti að vera 14.580 krónur, auk þess sem lögaðil- ar á borð við fyrirtæki og stofnanir munu greiða skattinn. Þau hafa reyndar í einhverjum mæli greitt af- notagjald til þessa en um óverulegar tekjur hefur verið að ræða fyrir RÚV, eða um 5% af innkomnum tekjum afnotagjaldsins. Skatturinn mun renna beint í rík- issjóð og tekinn af sömu einstakling- um og greiða gjald í Framkvæmda- sjóð aldraðra, þ.e. 1. ágúst ár hvert þegar álagningarskrár eru lagðar fram. Ríkið gerir síðan þjónustu- samning við RÚV, til fimm ára í senn, þar sem m.a. er kveðið á um sérstakt framlag úr ríkissjóði til stofnunarinnar. Óvissa um gjaldendur Mikil óvissa ríkir hins vegar um hve miklu nefskatturinn mun skila í ríkissjóð. Í greinargerð með frum- varpinu er gengið út frá því að 205 þúsund greiðendur verði að nef- skattinum árið 2009 en jafnframt sleginn sá varnagli að vegna efna- hagsástandsins geti sú tala verið ofáætluð. Einnig er óvíst að takist að innheimta meiri tekjur þótt gjald- endum fjölgi. Þá kemur fram í um- sögn ríkisskattstjóra að nokkur þús- und lögaðilar séu ekki lengur með starfsemi og eigi engar eignir. Áætlað er á fjárlögum þessa árs að afnotagjald RÚV skili 2.930 milljóna króna tekjum. Með 5% hækkun á af- notagjaldinu 1. ágúst sl. bættust við 60 milljónir króna þannig að tekjur ársins gætu orðið um þrír milljarðar. Fram kemur í umsögn fjármála- ráðuneytisins um frumvarpið að það geti aukið tekjur ríkissjóðs af RÚV um 705 til 1.055 milljónir króna, mið- að við áætlun í fjárlagafrumvarpi næsta árs upp á 2.945 milljóna kr. tekjur af nefskattinum. Er þá annars vegar miðað við að nefskatturinn skili 3.650 milljónum í innheimtar tekjur og hins vegar að álagðar tekjur nemi um 4.000 milljónum króna. Athugasemdir frá RÚV Samkvæmt upplýsingum frá RÚV er talið að auglýsingatekjur í sjón- varpi skerðist um 390 milljónir króna, varlega áætlað, en tekjurnar á síðasta ári námu um 800 milljónum króna. Að meðtöldum útvarpsaug- lýsingum hafa tekjurnar verið um 1.300 milljónir króna. Hve tekju- skerðingin verður mikil mun einnig ráðast af þróun á auglýsinga- og fjöl- miðlamarkaðnum á næstunni. Vegna þess var sett inn ákvæði um endur- skoðun laganna fyrir 1. júlí 2009. Forráðamenn RÚV hafa komið þeim athugasemdum á framfæri við ráðuneyti menntamála og fjármála að nefskatturinn hefði þurft að vera ríflega 20 þúsund krónur ef aðeins er tekið mið af verðlagsþróun. Bendir RÚV á að ríkið hafi ekki staðið við verðtryggingu á afnotagjaldi sam- kvæmt gerðum þjónustusamningi frá 2007. Menntamálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu í gær en það gæti átt eftir að taka breytingum í meðförum Alþingis. Óljóst hverju nefskattur skilar  Frumvarp menntamálaráðherra gerir ráð fyrir að nefskattur skili 3.650 milljónum króna til RÚV  Forráðamenn RÚV telja að skatturinn hefði átt að vera ríflega 20 þúsund krónur á hvern greiðanda Efstaleiti Nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið mun hafa veruleg áhrif á starfsemina og reksturinn næstu misserin. Morgunblaðið/Árni Sæberg     !"  ## $  %  !"   &$& %   '( ) *+,          -'"  %  (  &   % . #/ -0 ,( ) 1, , +!% ./ '(  ,  / !"#$  !"#$  !"#$ $% !"#$  - Í því skyni að tryggja fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðlamarkaði munu samkvæmt frumvarpinu gilda eft- irfarandi takmarkanir um birtingu sjónvarpsauglýsinga hjá RÚV:  Hlutfall auglýsinga af daglegum útsendingartíma, að kjörtíma und- anskildum, skal eigi vera hærra en 10%  Á kjörtíma skal hlutfallið eigi vera hærra en 5% en kjörtími telst vera frá kl. 19 til 22.  Hver auglýsingatími skal vera innan við 200 sekúndur. Ekki skulu vera fleiri en tveir auglýsingatímar á hverri klukkustund útsendingar.  Óheimilt er að rjúfa dagskrárliði sem eru styttri en 45 mínútur með auglýsingatíma.  RÚV er óheimilt að sýna auglýs- ingar með barnaefni.  Óheimilt er að sýna auglýsingar sem beinast að börnum í 10 mín- útur fyrir og eftir útsendingu.  RÚV er óheimilt að afla tekna með kostun, nema vegna stór- viðburða eins og Eurovision, Ól- ympíuleika og HM og EM í knatt- spyrnu.  Þá er RÚV óheimilt að afla tekna með vöruinnsetningu, s.s. óbeinna kynninga á vörum. Takmarkanir á auglýsingum hjá RÚV 205 þúsund greiðendur nefskatts árið 2009 sam- kvæmt áætlun í frumvarpi. 3.000 milljónir króna er áætlað að afnotagjald RÚV skili í ár. 3.650 milljónir króna af nefskatti í innheimtum tekjum 2009. 800 milljóna kr. tekjur RÚV af auglýsingum í sjónvarpi. 390 milljóna kr. skerðing á aug- lýsingum vegna frumvarpsins að mati forráðamanna RÚV. Í HNOTSKURN »Meðal áhrifa breyttra lagaum RÚV er að inn- heimtudeildin leggst af. Þar störfuðu 10 manns þegar mest lét en tveir starfsmenn verða eftir fram á næsta ár þar til nefskatturinn kemur til fram- kvæmda. »Útvarpsréttarnefnd færnú eftirlit með RÚV og getur m.a. lagt á sektir ef ekki verður farið að lögunum. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is EF ekki verður hægt að frysta síld það sem eftir er af vertíðinni verður útflutningsverðmæti síldarafurða á vertíðinni 2,5 milljörðum króna minna en annars hefði orðið. Frysti- húsin láta meta hvern farm fyrir löndun en svo mikill hluti aflans er sýktur að ekki er talinn grundvöllur fyrir frystingu. Aflinn er því bræddur í mjöl og lýsi. Sjómenn hafa verið að leita fyrir sér víða en sníkjudýrið virðist vera í allri síld, jafnt smárri sem stórri. Tvö skip voru í gær við leit í Ísafjarðar- djúpi og Jökulfjörðum en köstuðu ekki því skipstjórarnir töldu flekki við botn „smásíldarlega“. Mesta veiðin hefur áfram verið á Breiðafirði. Í gær nam heildarafli af íslensku sumargotsíldinni liðlega 105 þúsund tonnum af tæplega 150 þúsund tonna kvóta. Sumar útgerðir eru að ljúka við kvóta sinn á meðan aðrar eiga mikið eftir. Útflutningsverðmæti síldarafurða á vertíðinni var áætlað 14-16 milljarð- ar króna og var í þeim tölum reiknað með frystingu á stórum hluta kvót- ans. Náist ekki að hefja frystingu á nýjan leik, sem Friðrik J. Arngríms- son, framkvæmdastjóri Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, telur þó að ætti að vera hægt, minnka verð- mætin um nærri hálfan þriðja millj- arð kr. Ef 30-40% hrygningarstofnsins drepast vegna sýkingarinnar, eins og fyrstu athuganir benda til, samsvarar það því að kvóti einnar og hálfrar síld- arvertíðar fari forgörðum í vetur. Út- flutningsverðmæti þess afla gæti numið 20-25 milljörðum kr. Málið lít- ur enn verr út því sýkin gæti verið lengur í stofninum. Þá virðist hún ekki síður leggjast á ungsíld. Friðrik óttast að stofninn verði mörg ár að ná sér. 2½ milljarður í súginn  Ekki talinn grundvöllur til að hefja síldarfrystingu á ný  Ef illa fer gæti það tekið stofninn mörg ár að ná sér Morgunblaðið/Kristinn Rannsókn Athugað er við hverja löndun hvort hægt sé að frysta. HRÍFANDI BÓK SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is HHHH Ljúfsár ... hrífandi ... dramatísk og einlæg. Einar Falur Ingólfsson, Lesb. Mbl. Unaðslegt að lesa þetta ... virkilega góð bók. Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.