Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 23
Fréttir 23ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Á R S F U N D U R HÁSKÓLANS Á AKUREYRI 2008 Ársfundur Háskólans á Akureyri verður haldinn föstudaginn 19. desember 2008 kl. 14:00-15:30 í stofu L201 á Sólborg. Dagskrá: Þorsteinn Gunnarsson rektor Staða og starfsemi háskólans Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Rekstur háskólans Undirritun samnings við Akureyrarbæ um sérfræðiþjónustu fyrir skóla Rósa Eggertsdóttir, lektor Fræ litlu gulu hænunnar Jóhann Örlygsson, prófessor Framleiðsla á lífrænu eldsneyti með bakteríum Árún Sigurðardóttir, deildarforseti heilbrigðisdeildar Líf með sykursýki Önnur mál Ársfundurinn er öllum opinn. Boðið verður upp á veitingar. MINNST 22 karlar hafa verið ákærðir í Ástralíu fyrir þátttöku í hnattrænum barnaklámshring. Í hópnum eru m.a. áhrifamikill lög- fræðingur, lögreglumaður og starfs- maður leikskóla. Mennirnir skiptust á myndum með aðstoð netsins og komst upp um þá fyrir tilstuðlan lögreglunnar í Brasilíu. Alls liggja um 200 manns í um 70 löndum undir grun. „Þetta eru einhverjar skelfileg- ustu myndir sem lögreglan hefur nokkurn tíma séð,“ sagði talsmaður Ástralanna, Andrew Colvin. Um er að ræða 500 þúsund ljósmyndir og 15.000 myndbönd. Sum fórn- arlömbin eru aðeins 12 mánaða og dæmi eru um að þeim hafi verið mis- þyrmt í meira en tvær stundir. kjon@mbl.is Misþyrmdu smábörnum EVRÓPUSAMBANDIÐ og Norð- menn hafa náð samkomulagi um ráðstafanir til að draga úr brott- kasti afla sem veiddur er innan norskrar lögsögu, að sögn frétta- vefjar Aftenposten. Ráðstafanirnar eru hluti af fisk- veiðisamningi ESB og Noregs sem á að taka gildi um áramótin. Fiskiskip ESB-landa, sem hafa veitt við Noreg, hafa sniðgengið bann Norðmanna við brottkasti með því að sigla út úr lögsögunni áður en aflanum er kastað fyrir borð. Umhverfisverndarsamtök, sem segja að allt að 60% afla togara í Norðursjó sé kastað fyrir borð, fögnuðu samkomulaginu. Dregið verði úr brottkasti Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is YFIRVÖLD í Suður-Afríku hafa lýst því yfir að hluti landamæranna við Simbabve sé nú skilgreindur sem hörmungasvæði. Sérstakar neyðaraðgerðir þurfi til að mæta ástandinu en hundruð Simbabve- manna hafa leitað eftir meðferð við kóleru í S-Afríku þar sem heilbrigð- isþjónustan í heimalandinu er að hruni komin. „Ég er ánægður með að við höf- um fengið aðstoð og að við skulum hafa náð að stöðva kóleruna,“ sagði Robert Mugabe, forseti Simbabve, í sjónvarpsræðu í gær. Hundruð eru látin af völdum kóleru í Simbabve og þúsundir eru smitaðar, yfirlýs- ingin hefur því vakið hörð viðbrögð. „Vegna kólerunnar vilja hr. Brown, hr. Sarkozy og hr. Bush grípa til hernaðaraðgerða,“ sagði Mugabe jafnframt. „Þar sem kóleran hefur verið upprætt er ekki lengur ástæða til stríðs.“ Auknar líkur á inngripi Yfirvöld í Simbabve hafa ásakað vestræn ríki um að nýta sér kóleru- faraldurinn til að koma forsetanum frá völdum. Hingað til hefur Mu- gabe aðeins beitt valdi sínu og mis- jöfnum leiðum til að halda embætti, innan Simbabve. Það hefur gert al- þjóðlega íhlutun í málefni Simbabve erfiða en slík íhlutun er yfirleitt rökstudd með því að viðkomandi land stefni öryggi annarra landa í hættu. Nú ógnar kólerufaraldurinn ná- grannaríkjunum Suður-Afríku, Mó- sambík, Sambíu og Botsvana og verður krafan um inngrip al- þjóðlegra hjálparsamtaka því æ há- værari. Talið er að um 800 manns hafi lát- ist af völdum kóleru í Simbabve og að 16.000 hafi fengið læknisaðstoð. Í Limpopo, nyrsta héraði S- Afríku, hafa í það minnsta átta látist af kóleru og yfir 660 notið lækn- isaðstoðar. Alþjóðleg íhlutun sífellt nærtækari AP Vatn Kólerufaraldurinn er m.a. rak- inn til mengaðs drykkjarvatns. Forseti Simbabve segir kólerufarald- urinn liðinn hjá Í HNOTSKURN »Að mati Alþjóðaheilbrigð-isstofnunarinnar (WHO) gæti tala smitaðra náð 60.000 náist ekki að stöðva farald- urinn. »Stjórnarhættir RobertsMugabes eru sagðir ástæða þess að efnahagur landsins er í rúst og helm- ingur landsmanna reiðir sig á matvælaúthlutun erlendra hjálparsamtaka. SUÐUR-kóresk börn fylgjast með mörgæsum á vappi í jólasveinabúningum í snjó í Everland-skemmtigarð- inum í Yongin, um 50 kílómetra sunnan við Seoul, höf- uðborg Suður-Kóreu. Everland-garðurinn er einn af fjórum stærstu skemmigörðum heims og var opnaður árið 1976. Reuters Kóreskar mörgæsir í jólaklæðum Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VITAÐ er að minnst 55 manns létu lífið og liðlega 100 særðust í sprengjutilræði á kúrdískum veit- ingastað skammt frá borginni Kir- kuk í norðanverðu Írak í gær. Talið er að um sjálfsvígsárás hafi verið að ræða, að sögn lögreglunnar. Sjónarvottar sögðu að margt fjöl- skyldufólk hefði verið á veitinga- staðnum, sem heitir Abdullah og er við aðalveginn milli Kirkuk og Irbil. Sjálfsvígsmaðurinn stóð í miðjum salnum er hann sprengdi skyndilega belti með dýnamíti er hann hafði um sig miðjan. Aðrir fullyrtu að um bílsprengju hefði verið að ræða. Hermt var að kúrdískir embættis- menn hefðu setið að snæðingi á staðnum með arabískum ættbálka- leiðtogum er árásin var gerð en sú frétt fékkst ekki staðfest. Enn er deilt mjög um yfirráð Kir- kuk sem var lengi Kúrdaborg en er nú einnig byggð Túrkómönnum, þjóðarbroti sem er náskylt Tyrkjum og aröbum. Vilja Kúrdar að hún komist á ný undir þeirra stjórn en borgin er afar mikilvæg vegna olíu- linda á svæðinu. Saddam Hussein lét í valdatíð sinni flytja fjölda araba frá öðrum stöðum í Írak til borgarinnar til að grafa undan áhrifum Kúrda. Tugir létu lífið í sjálfsvígsárás Ráðist á veitingastað Kúrda í Kirkuk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.