Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 12
12 FréttirALÞINGI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Halla Gunnarsdóttir halla@mbl.is VIÐSKIPTANEFND Alþingis hafa enn ekki borist svör frá viðskipta- bönkunum þremur um peninga- markaðssjóðina en hún sendi þeim fjölmargar spurningar 14. nóvember sl. Þetta kom fram í máli Ágústs Ólafs Ágústssonar, formanns við- skiptanefndar, í utandagskrárum- ræðum um peningamarkaðssjóðina á Alþingi í gær. „Að mínu mati gengur það að sjálfsögðu ekki að þessir að- ilar svari ekki þingnefnd með einum eða öðrum hætti,“ sagði Ágúst. Jafnræðis sé gætt Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknar, var málshefjandi í um- ræðunum og gagnrýndi harðlega að ríkisbankarnir skyldu allir á sama degi hafa keypt upp verðbréf í sínum eigin peningamarkaðssjóðum. „Með þessu var vissulega takmarkað tjón þeirra sem eiga í peningamarkaðs- sjóðum sem tengdust viðskiptabönk- unum þremur. Þá standa eftir aðrir einstaklingar sem voru svo óheppnir að eiga í peningamarkaðssjóðum sem voru á vegum annarra aðila,“ sagði Birkir Jón og kallaði eftir því að jafnræðis væri gætt. Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra sagði hins vegar að bank- arnir hefðu greitt fyrir bréfin á við- skiptalegum forsendum. Sparisjóðirnir hefðu gert sína sjóði upp og að aðeins eitt fyrirtæki virtist ekki geta það vegna smæðar sinnar, þ.e. Íslensk verðbréf á Akureyri. Möguleg lausn gæti falist í því að stóru bankarnir tækju þátt í fjár- mögnun kaupa rekstraraðila ann- arra sjóða á verðbréfum. Bíða eftir svörum Viðskiptanefnd Alþingis hefur enn ekki fengið svör frá bönkunum við spurningum um peningamarkaðssjóði Morgunblaðið/Ómar Ráðherra fyrir svörum Stjórnarandstæðingar kölluðu eftir því í gær að rík- ið gætti jafnræðis gagnvart peningamarkaðssjóðseigendum. Styttra jólaleyfi Samkvæmt starfsáætlun Alþingis átti síðasti þingfundur fyrir jólaleyfi að vera í dag. Nú er hins vegar ljóst að þingið mun starfa a.m.k. út næstu viku. Fjölmörg mál liggja fyrir og ber fjárlögin þar hæst en vonir standa til að önnur umræða um þau geti farið fram á mánudag. Fjárlaganefnd fundaði í gærkvöld og snemma í morgun um niðurskurðartillögur rík- isstjórnarinnar, sem kynntar voru í gær. Eftir helgi er einnig væntanlegt bandormsfrumvarp, þ.e. frumvarp sem tekur á breytingum í mörgum lög- um, í tengslum við niðurskurðartillög- urnar. Fámenni í þingsal Þegar hringt var inn til atkvæða- greiðslu að lokinni viðamikilli dagskrá þingfundar í gær skiluðu sér talsvert færri þingmenn en vonast var til. Yfir helmingur þingmanna þarf að vera í þingsal til að ganga megi til atkvæða en svo var ekki og neyddist forseti til að fresta fundi meðan reynt var að kalla fleiri til. Það hafðist á endanum og atkvæðagreiðslur fóru fram. Æspró Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, gerði íslenska tungu að umtals- efni á þingi í gær þegar fjár- málaráðherra mælti fyrir frum- varpi um formbreyt- ingar á stuðningi við Icepro, sem er samstarfsvettvangur um rafræn við- skipti. Þótti Pétri skjóta skökku við að orðið skyldi borið fram á enska tungu, þ.e. „æspró“, enn ekki á hinu ástkæra ylhýra – „isepro“. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag með umræðum um störf þingsins. ÞETTA HELST … Pétur H. Blöndal ÞORGERÐUR Katrín Gunn- arsdóttir mennta- málaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um RÚV þar sem kveðið er á um takmarkanir sjónvarpsins á auglýsingamark- aði. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður VG, og Kristinn H. Gunn- arsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, vöruðu bæði við því í umræðum að einum manni, þ.e. Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, yrðu af- hentar allar sjónvarpsauglýsingar í landinu á silfurfati. „Hvaða tök hefur Jón Ásgeir á þessari rík- isstjórn?“ spurði Kristinn og þótti sárlega vanta lög um samþjöppun á fjölmiðlamarkaði. Þorgerður Katrín vísaði hins vegar ábyrgðinni á fyrrverandi stjórnarandstöðu sem hefði staðið í vegi fyrir að fjölmiðlafrumvarpið hið síðara væri samþykkt, þó að um það hefði verið þverpólitísk sátt. Frumvarpið var samið af nefnd í kjölfar þess að forseti Ís- lands neitaði að skrifa undir fjöl- miðlalögin árið 2004. Sagði Þorgerður ljóst að koma yrði lögum á samþjöppun á fjöl- miðlamarkaði. Skiptar skoðanir að venju Eins og venjulega þegar RÚV er til umræðu á þingi voru skiptar skoðanir. Kolbrún Halldórsdóttir kallaði eftir því að fyrirtækið væri aftur fært undir umsjón ríkisins en það er nú opinbert hlutafélag. Pétur H. Blöndal, Sjálfstæð- isflokki, áréttaði hins vegar þá skoðun sína að ríkið ætti ekki að reka fjölmiðil, gaf lítið fyrir frum- varpið og sagði það fullt af for- sjárhyggju. Þá gagnrýndi hann harðlega að fyrirtæki ættu að greiða nefskatt og tók sem dæmi að trillukarl þyrfti þá að greiða gjaldið bæði fyrir sig og fyrir trilluna sína. Einn maður með allar sjónvarpsauglýsingar Óttast samþjöppun á fjölmiðlamarkaði Þorgerður K. Gunnarsdóttir FULLTRÚAR allra flokka verða kallaðir til samráðs við dómsmálaráðuneytið við skipan sérstaks saksóknara, að því er fram kom í máli Björns Bjarna- sonar dómsmálaráðherra á þingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, spurði hann út í þetta en krafa hefur verið frá stjórnarandstöðunni um að ráð- herra sitji ekki einn að skipuninni. Frumvarp um saksóknarann var samþykkt á Alþingi í fyrradag. Embættið verður auglýst og áætl- aður er tveggja vikna frestur fyrir umsækjendur til að skila inn um- sókn. halla@mbl.is Allir flokkar komi að skipun saksóknara Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Reykjavík Sími 588 9090 • Síðumúla 21 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega gott einbýlishús í Fossvogi, að minnsta kosti 250 fm að stærð. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali í síma 861-8514 eða Magnús Geir Pálsson sölumaður í síma 892-3686 • Jakkar • Úlpur • Ullarkápur • Dúnkápur • Hattar • Húfur Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-17 Opið á sunnudögum til jóla frá kl. 13-17 Í jólapakkann fyrir ungu stúlkuna, mömmuna, ömmuna og langömmuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.