Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Eins og gengi erlendra gjaldmiðla er um þessarmundir, og mun sjálfsagt verða næstu árin, mátelja líklegt að Íslendingar hugi í auknum mæli að ferðum hér innanlands. Og það þarf ekki að vera slæmt – mér hefur alltaf þótt ankannalegt að hitta landa sem hafa varla farið út fyrir Reykjavík en hafa hins vegar ferðast vítt um heiminn. Þótt heimaalda barnið hafi löngum verið talið heimskt, þá getur fólk varla myndað sér skoðun á landsmálum og veigamikl- um þáttum í umræðunni, eins og þeim sem snúa að um- hverfisvernd og byggðastefnu, ef þeir þekkja ekki landið sem þá ól.    Ég er nýkominn úr hringferð um Ísland. Sat reynd-ar sem fastast í bænum en var með úrvals far- arstjóra. Fór í gegnum bókina Focus on Iceland, en í henni eru 600 ljósmyndir eftir hinn góðkunna ljós- myndara Rafn Hafnfjörð. Hvernig má koma 600 ljós- myndum fyrir í bók, sem er þar að auki ekki í stóru broti, kynni einhver að spyrja. Myndirnar eru ekki stórar, fimm til átta í hverri opnu, og studdar knöppum en vönduðum skýringartextum Ara Trausta Guð- mundssonar. Þetta er handbók, gefin út á nokkrum tungumálum, sem útskýrir fyrir þeim sem ferðast með bókina hvað hann er að horfa á – og að hverju hann ætti kannski að leita. En bókin gefur vetrarferðalangi eins og mér líka hugmyndir um staði sem væri gaman að sækja heim er birtir og hlýnar; vefur efni í drauma um framtíðarleiðangra.    Íslendingar eru núna fátæk lítil þjóð, en Ísland erauðugt, fallegt stórt land, eins og sjá má í bókinni,“ segir Rafn. Land sem bíður þess að fólk uppgötvi það betur. Hann bætir við að þetta verk megi skoða sem eins konar dagbók hans; úrval mynda frá mörgum ár- um, og ennþá fleiri ferðum um landið sem hann þekkir svo vel. Myndunum raðar Rafn þannig að hann fylgir okkur lesendum hringinn, en hann á sér uppáhaldsstaði. „Eft- irlætis svæðið mundi vera Mývatn og nágrenni, með Öskju- og Jökulsársvæðunum,“ segir hann. Og bætir við að eft- irlætis viðfangsefnin séu háhitasvæðin, „sérstaklega Hrafntinnusker og nágrenni.“ Rafn er lærður prentari og fyrir rúmlega hálfri öld var hann einn stofnenda Litla ljósmyndaklúbbsins. Það var merkilegur félagsskapur sem fundaði reglulega í mörg ár, og fékk viðurkennda ljósmyndara og lista- menn til að gagnrýna þær myndir sem þeir tóku, og halda fyrirlestra um myndlist. Á þessum tíma hóf Rafn að taka sínar listrænu ljósmyndir. Náttúru Íslands hóf hann markvisst að mynda um 1960, í þeim tilgangi að kynna Ísland erlendis. Síðan á sjöunda áratugnum hef- ur hann einnig sýnt myndir sínar reglulega hér heima og erlendis. Þrátt fyrir að Rafn verði senn átttræður er hann sí- fellt á ferðinni og hefur haldið þeim sið að fara oft í sér- staka myndatökuleiðangra, til dæmis á Lónsöræfi. En hann viðurkennir að áhugamálin á ferðalögum séu fleiri en myndatökurnar. „Oft er gott að grípa til veiði- stangarinnar þegar þungskýjað er og rigning,“ segir hann, en ljósmyndir Rafns af stangveiðimönnum og veiðiám eru ekki síður rómaðar en aðrar nátt- úrumyndir þessa góða fararstjóra. efi@mbl.is Fátæk þjóð en auðugt land » Bókin gefur vetrarferðalangi einsog mér líka hugmyndir um staði sem væri gaman að sækja heim er birtir og hlýnar; vefur efni í drauma um framtíðarleiðangra. Ljósmynd/Rafn Hafnfjörð Við Hrafntinnusker Ein ljósmyndanna 600 í bók Rafns Hafnfjörð sem fókuserar á Ísland. AF LISTUM Eftir Einar Fal Ingólfsson Fáðu þér áskrift að Morgunblaðinu á mbl.is/askrift – notaðu tíman til að læra F í t o n / S Í A skóla og námskeið Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um sunnudaginn 4. janúar 2009 Blaðið verður að venju stórglæsilegt og kemur inn á flesta þætti sem tilheyra þessum flokki. Í blaðinu verður fjallað um menntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefna því á nám og námskeið. Skemmtileg og fræðandi námskeið fyrir börn og fullorðna Í skóla á ný eftir nokkur ár á vinnumarkaði Nýir og spennandi námsmöguleikar Skiptinám og nám erlendis Sérhæft nám Símenntun Endurmenntun Listanám Tölvunám Kvikmyndaskólinn Tómstundanámskeið og almenn námskeið Brottfall úr framhaldsskólum – meira eða minna? Er aukin eftirspurn eftir fjármálanámskeiðum? Erlendir nemar á Íslandi Ásamt fullt af öðru spennandi efni Meðal efnis verður : Tekið er við auglýsingapöntunum til klukkan 16 föstudaginn 19. desember 2008. Blaðið verður í sömu stærð og Morgunblaðið. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.