Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 ✝ Hreiðar Jónssonfæddist í Pét- ursbúð á Snæfellsnesi 21. október 1916. For- eldrar hans voru Jón Sigurðsson útvegs- bóndi og kaupfélags- stjóri á Arnarstapa, f. á Steinum á Snæfells- nesi 17.8. 1876, d. 25.5. 1956 og Guðrún Sigtryggsdóttir, f. í Bjarnarfosskoti á Snæfellsnesi 17.6. 1878, d. 18.2. 1941. Systkini Hreiðars: Haraldur, f. 1908, d. 1985, Trausti, f. 1909, d. 1928, Víglundur, f. 1910, d. 1994, Tryggvi, f. 1911, d. 1994, Sig- urást, f. 1914, d. 2001, Ársæll, f. 1918, d. 1996, Margrét Larsen, f. 1919 og Skarphéðinn Trausti, f. 1922, d. 2007. Hreiðar kvæntist 26.12. 1945 Þór- dísi Jónu Sigurðardóttur húsmóður, f. 15.10. 1926. Foreldrar hennar voru Guðlaug Jónsdóttir, f. 12.1. 1878, d. 2.12. 1975 og Sigurður Arn- ór Jónsson, f. 22.11.1895, d. 2.2. 1968. Börn Þórdísar og Hreiðars eru: 1) Sigurður Arnór, f. 5.4. 1945, maki Gréta Sigurðardóttur, f. 17. 5. 1947. Þau skildu. Börn þeirra: a) Þórdís Jóna, f. 2.2. 1968, maki Krist- ján Vigfússon, f. 6.9. 1965. Börn þeirra Jökull Sólberg, f. 1986, Svan- hildur Gréta, f. 1993 og Vigdís, f. 1998. b) Hreiðar Már, f. 19.11. 1970, maki Anna Lísa Sigurjónsdóttir, f. 26.8. 1969. Börn þeirra Arnór, f. Dagur Salberg, sonur Magnúsar, f. 1999. b) Pétur Björn, f. 29.7. 1980, í sambúð með Öglu Margréti Egils- dóttur, f. 8.8. 1985. c) Katrín Þór- dís, f. 13.2. 1982. d) Tómas Gunnar, f. 2.6. 1987. e) Anna Ásthildur, f. 16.11. 1988. 5) Guðlaug Dröfn, f. 11.1. 1960, maki Ásgrímur Skarp- héðinsson, f. 19.5. 1958. Börn þeira: a) Hafsteinn Hrannar, f. 21.12. 1981, sambýliskona Bryndís Rut Logadóttir, f. 12.8. 1979. Börn þeirra eru Heiðrún Una, f. 2008 og Urður Ýr, f. 2003, dóttir Bryndísar Rutar. b) Unnur Ösp, f. 20.3. 1986. c) Davíð Steinar, f. 18.10. 1992. d) Klara Hödd, f. 6.9. 1994. 6) Sólveig Sif, f. 24.12. 1964, gift Ólafi Arn- arsyni, f. 18.7. 1963. Börn þeirra eru: Örn, f. 16.1. 1989, Þórdís Sess- elja, f. 8.7. 1992, Ólafur Hreiðar, f. 3.8. 1997 og Erlendur, f. 31.5. 1999. Að loknu námi í klæðskeraiðn í Iðnskólanum í Hafnarfirði stofnaði Hreiðar og rak eigið klæð- skeraverkstæði, lengst af að Laugavegi 11. Hann tók virkan þátt í félagsstörfum, starfaði í ára- tugi innan bindindissamtaka I.O.G.T. á Íslandi og var einn brautryðjenda að bindindismótum verslunarmanna sem haldin voru fyrst í Húsafelli og síðan í Galta- læk. Hreiðar stundaði einnig hestamennsku af áhuga. Þau Hreiðar og Þórdís voru samhent hjón, þau eiga stóran hóp afkom- enda og áttu farsælu hjónabandi að fagna í tæp 65 ár. Síðustu árin bjó Hreiðar að Norðurbrú í Garðabæ. Útför Hreiðars verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 12. des- ember og hefst athöfnin klukkan 13. 1991, Hildur, f. 1999 og Tómas, f. 2005. Fyrir átti Sigurður soninn Ingvar, f. 29.11. 1967. Maki 2. Kristín Ragna Páls- dóttir, f. 30.3. 1964. 2) Guðrún Erna, f. 19.10. 1946, maki 1. Atli Rafn Kristinsson, f. 7.2. 1947. Þau skildu. Börn þeirra: a) Þórdís Björk, f. 19.11. 1971, b) Aðalheiður, f. 12.9. 1975, sambýlis- maður Falk Krueger, f. 6.11. 1975. Börn þeirra eru Hrönn, f. 2005 og Hanna, f. 2007. c) Kristinn Gunnar, f. 27.6. 1982, sam- býliskona Bryndís Sævarsdóttir, f. 18.3. 1983. Maki 2. Bragi Guð- mundsson, f. 6.2. 1932, d. 20.2. 2008. 3) Valdimar, f. 26.5. 1950, maki Thanita Chaemlek, f. 12.1. 1964. Börn: a) Bjarni Þór, f. 27.5. 1978, sambýliskona Janine Hofman. b) Matthildur, f. 10.12. 1979, sam- býlismaður Ingi Þór Stefánsson. Þau eiga fjögur börn, Sóleyju Ebbu Johansdóttur Karlsson, f. 1997, Kristján Loga, f. 2001, Aron Mána, f. 2003 og Evítu Cecsil, f. 2007. c) Sigurður Andri, f. 16.3. 1993. 4) Birna, f. 15.9. 1951, maki Pétur Gunnar Thorsteinsson, f. 26.9. 1955. Börn a) Elsa Matthildur Ágústsdóttir, f. 12.11. 1971, maki Magnús Salberg Óskarsson, f. 24.9. 1972. Börn þeirra eru Pétur Mika- el, f. 2002, Hjördís Júlía, f. 2003 og Ég kynntist Hreiðari Jónssyni fyrir næstum aldarfjórðungi, þegar ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir yngstu dóttur hans, Sólveigu. Hreiðar tók vonbiðli heimasætunn- ar betur en búast mátti við og sjálf- sagt naut ég þess, að Sólveig er yngst sex systkina og þar af eru dæturnar fjórar. Góður vinskapur tókst fljótt með okkur Hreiðari. Við vorum skoðanabræður á flestum sviðum og báðum fannst okkur fálk- inn fagur fugl. Hreiðar og mín ágæta tengda- móðir, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, áttu samleið í meira en sex áratugi. Þau voru sem einn maður og engum duldist það ástríki, sem milli þeirra ríkti allt fram til hinstu stundar. Heimili þeirra stóð vinum og ætt- ingjum ávallt opið. Hreiðar ræktaði skóg umhverfis fallegan sumarbú- stað þeirra hjóna og virkjaði með sér unga afkomendur, sem nutu leiðsagnar völundar með græna fingur. Ferðirnar í sumarbústaðinn til afa og ömmu voru barnabörn- unum ávallt mikið tilhlökkunarefni. Ekki fáraðist afi þótt litlir fingur ynnu oft meira af vilja en mætti. Ungviðinu var leiðbeint með góðlát- legt glit í auga og hlátrasköllin fylgdu með. Ekki skemmdi svo að fá heitt súkkulaði og nýbakað bakkelsi hjá ömmu Dísu að loknu góðu dags- verki. Þau hjónin voru ræktarsöm við sína. Við Sólveig bjuggum lengi er- lendis og það var okkur alltaf mikils virði að fá að taka á móti Hreiðari og Þórdísi. Mér er minnisstætt er þau heimsóttu okkur í nýtt hús okk- ar í Kent í Englandi. Meðferðis hafði Hreiðar græðlinga af gljávíði og íslensku birki frá sumarbústaðn- um heima á Íslandi. Þetta við- kvæma líf festi rætur í leirkenndum enskum jarðvegi litla garðsins okk- ar. Í aldingarði Englands er því vís- ir að íslenskum birkiskógi í boði Hreiðars Jónssonar. Hreiðar fædd- ist á Stapa á Snæfellsnesi í miðri fyrri heimsstyrjöldinni. Ekki var hann margra vetra þegar hann fór að skila sínu dagsverki. Kornungur fluttist hann til Reykjavíkur og nam klæðskeraiðn. Snæfellsnesið átti samt alltaf stóran sess í hjarta hans. Hreiðar og systkini hans gáfu fyrir rúmlega tveimur áratugum minnis- merki um foreldra sína, sem reist var á Stapa. Þetta er myndarlegt steinlistaverk af Bárði Snæfellsás, og alltaf hefur mér fundist að lista- maðurinn hafi haft Hreiðar að fyr- irmynd. Hreiðar var ekki langskólageng- inn, en hann var menntaður. Hann hafði á takteinum Íslendingasög- urnar eins og þær lögðu sig og unun hafði hann af góðri ljóðlist. Undir öðrum kringumstæðum og á annarri öld hefði Hreiðar getað orðið fræði- maður og háskólaprófessor í bók- menntum eða íslenskum fræðum. Frásagnargáfan var frjó og miklu hafði hann að miðla. Það eru forréttindi að kynnast mönnum eins og Hreiðari Jónssyni í lífinu. Um leið og hann er kvaddur með söknuði ríkir þakklæti. Það er ekki öllum gefið að fá að lifa fram á tíræðisaldur við góða heilsu. Senni- lega gat Hreiðar að einhverju leyti þakkað það góðu skaplyndi sínu og skopskyni, sem hann hélt fram á síðasta dag. Hópurinn er stór, sem nú saknar góðs föður, afa, langafa og vinar. Mestur er missir Þórdísar, tengdamóður minnar, og veit ég að Guð styrkir hana í sorg sinni. Ólafur Arnarson. Nú er hann Hreiðar afi okkar dá- inn og söknuðurinn er mikill. Hann var alveg einstakur maður, jákvæð- ur, vel lesinn og hafði alltaf eitthvað skemmtilegt að segja okkur frá. Við gerðum okkur grein fyrir því að að- stæður hans í æsku voru gjörólíkar því sem þjóðfélagið á nú að venjast. Þær aðstæður mótuðu hann og lífs- sýn hans mikið og hann kenndi okk- ur að það væri í okkar verkahring að skapa okkar tækifæri í lífinu. Svo fylgdist hann vel með því sem við tókum okkur fyrir hendur, studdi okkur og hvatti til dáða. Með við- horfi sínu að leiðarljósi lagði hann drjúgan skerf til þess merka þjóð- félags sem hér var skapað á sein- ustu öld. Þó svo að afi hafi náð tíræðisaldri varð hann í raun aldrei gamall, hann var alltaf svo léttur á sér og kátur. Hann og amma voru alltaf á ferð- inni, keyrandi upp í bústað, ferð- uðust til útlanda og alltaf var hann afi fínn og reffilegur í klæðskera- saumuðu jakkafötunum sínum. Við munum, eins og áður fyrr, taka hann okkur til fyrirmyndar og halda gildum hans á lofti. Blessuð sé minning afa okkar, Hreiðars. Elsa Matthildur, Pétur Björn, Katrín Þórdís, Tómas Gunnar og Anna Ásthildur. Tíminn er eins og vatnið og vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs. Og tíminn er eins og mynd, sem er máluð af vatninu og mér til hálfs Og tíminn og vatnið renna veglaust til þurrðar inn í vitund mín sjálfs (Steinn Steinarr.) Afi okkar, Hreiðar Jónsson klæð- skerameistari, er fallinn frá. Áfallið var stórt þegar tilkynning barst um andlát hans og missirinn er okkur sár. Hreiðar afi var ótrúlega ung- legur og kraftmikill. Aldur var hon- um lítil fyrirstaða. Í sumar sl., þá á 92. aldursári, keyrði hann enn upp í sumarbústað sinn og ömmu í Gríms- nesi. Með ólíkindum var hversu duglegur hann var nánast fram á síðasta dag að standa fyrir fram- kvæmdum, dytta að bústaðnum, bera áburð á plöntur og ýmislegt fleira. Á síðasta ári lagði hann nýtt parket í bústaðnum og setti upp heitan pott í leiðinni. Afgreiðslu- maður í BYKO horfði undarlega á kennitöluna hans á greiðslukortinu þegar hann var að versla þar. Hon- um fannst maðurinn ekki passa við kennitöluna, maður sem var að kaupa sér timbur til framkvæmda og fæddur snemma á síðustu öld. Ekki eru nema ca 6 ár síðan hann hætti alveg að vinna, 86 ára gamall. Hann rak klæðskerastofu með mikl- um sóma og dugnaði. Við vorum svo heppin að fá að njóta góðs af hæfi- leikum hans en það var aldrei neitt tiltökumál fyrir hann að lagfæra, bæta eða jafnvel sauma nýja flík á okkur á mettíma. Afi var mikill áhugamaður um kveðskap og bók- menntir og kunni hann mörg kvæð- in utan að. M.a. voru Steinn Stein- arr og Einar Benediktsson í miklum metum hjá honum. Einnig var hann listunnandi mikill og ber hlýlegt heimili ömmu og afa vott um það. Þar hanga verk eftir marga þekkt- ustu listmálara síðustu aldar. Hann þekkti suma listamennina sjálfur og ekki er langt síðan að hann sagði okkur sögur af kynnum sínum við þá. Amma og afi voru samrýnd mjög. Erfitt er að hugsa sér annað þeirra án hins, enda voru þau gift í meira en 60 ár. Í síðustu skiptin sem við hittum afa kvaddi hann okk- ur með þéttu handabandi, brosi og glampa í augum. Þannig munum við afa, sem einstaklega hlýjan og sterkan einstakling. Þórdís Björk, Kristinn Gunnar, Aðalheiður og Falk. Hreiðar afi minn var 92ja ára þegar hann lést. Það verður því tæpast sagt að hann hafi látist fyrir aldur fram en engu að síður finnst mér að hann hafi í raun aldrei náð því að verða gamall. Hann hélt góðri heilsu, var eldskarpur fram í það síðasta, varðveitti kímnigáfu sína, sagði sögur og vitnaði í uppáhalds- ljóðin sín. Þegar þau amma ákváðu fyrir nokkrum árum að flytja í minna og hentugra húsnæði vildi afi alls ekki fara í íbúðir fyrir aldraða og studdi þá afstöðu sína án þess að blikna með þeim rökum einum að að slíkt húsnæði væri einungis fyrir gamalmenni. Tvö ár eru síðan fjölskyldan fagn- aði saman níræðisafmæli afa og átt- ræðisafmæli ömmu. Tímamótunum var fagnað á Þingvöllum og var staðarvalið engin tilviljun. Afi rifjaði það upp að einmitt á þjóðhátíðinni á Þingvöllum árið 1944 hefðu þau amma kynnst. Þau nutu því sam- vista í ríflega 64 ár og samrýndari hjón og félaga hef ég aldrei vitað. Enda þótt lífsbarátta þeirra hafi verið hörð og vinnudagarnir langir nýttu þau lausar stundir til hins ýtr- asta. Síðustu áratugina ferðuðust þau víða um heiminn og voru sannir heimsborgarar. Afi var einlæglega þeirrar skoð- unar að vinnan göfgaði manninn. Hann ólst upp við þröngan kost en tókst af miklu harðfylgi að búa fjöl- skyldu sinni traust og öruggt heim- ili. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvernig heimilishaldið hafi ver- ið hjá ömmu og afa þegar þau voru að koma undir sig fótunum með sex börn á heimilinu og þau kröppu kjör sem flestum voru búin á þeim árum. Þau lögðu mikla áherslu á að börnin gengju menntaveginn og studdu þau í þeim efnum með öllum til- tækum ráðum. Þegar systur pabba voru komnar á táningsaldurinn eða byrjaðar í háskólanámi, sumar komnar með kærasta og aðrar líka börn bjó allur skarinn heima í hús- inu sem þau höfðu þá reist sér í Fremristekk í Breiðholti. Hann hef- ur því oft verið þröngt setinn bekk- urinn og vafalaust hefur verið líf í tuskunum. Væntanlega hefur öðru hvoru reynt á þolinmæðina hjá afa og ömmu á þessum árum en draumar þeirra um að geta komið börnum sínum til manns og stutt þau til náms urðu að veruleika. Fyrstu minningar mínar um afa og ömmu eru frá þeim tíma þegar ég kom sem lítill strákur í heimsókn úr Stykkishólmi og fékk að gista hjá þeim í Fremristekknum. Á þeim ár- um var afi ennþá með hesta sem var hans helsta áhugamál. Það var ávallt mikil tilhlökkun því samfara að fara til Reykjavíkur og gista hjá afa. Yfir þessum ferðum til afa og ömmu var ævintýraljómi sem aldrei gleymist. Afi hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum, fylgdist alla tíð vel með fréttum og skaut inn í þær áliti sínu og athugasemdum ef einhverjir voru nærri. Hann var á yngri árum sínum virkur í stjórn- málastarfi og barðist fyrir atvinnu- frelsi og frelsi einstaklingsins. Sú grundvallarafstaða hans til lífsins og samfélagsins breyttist aldrei enda þótt hann léti sér er fram liður stundir nægja að flytja mál sitt yfir kúnnunum sínum á verkstæðinu og kannski öðru hvoru okkur krökk- unum þegar við smám saman kom- umst til vits og ára. Hreiðar, afi minn, lagði margt til málanna sem ég hef lært af. Hann verður ætíð fyrirmynd mín á marg- an hátt. Ég er stoltur af því að bera nafn afa míns og bið Guð að blessa minningu hans. Hreiðar Már Sigurðsson. Takk, elsku hjartans afi minn, fyrir allar þær stundir sem líf okkar sló í takt, í takt við hvort annað og í samveru hvors annars. Þessar stundir okkar eru mér dýrmætar, þær mun ég ævilangt muna og gleðjast yfir því að hafa þekkt þig í öll þessi ár. Styrkur þinn, kímni- gáfa, léttlyndi og drifkraftur eru mér til fyrirmyndar. Lífið er lag. Lagið er taktur, léttir tónar, þungir tónar og lagið er samspil. Lífið er lagið sem allir kunna, lagið sem tek- ur enda. Eftir standa minningar um lagið. Minningar sem vekja upp takt lagsins og stílbrigði þess, minningar sem halda laginu á lífi. Hvíl í friði, þín Unnur Ösp. Elsku afi, nú ertu farinn, farinn þangað sem enginn sér. Það er erf- itt en þannig er það, hálfskrýtið. Þú varst svo hraustur, tryggur og traustur. Það var alltaf gaman að vera með þér, þú fékkst mann alltaf til að brosa. Takk fyrir það sem þú skildir eftir í hjarta mínu. Elsku afi minn, ég mun alltaf hugsa til þín. Eigi stjörnum ofar á ég þig að finna, meðal bræðra minna mín þú leitar, Guð. Nær en blærinn, blómið, barn á mínum armi, ást í eigin barmi, ertu hjá mér, Guð. Hreiðar Jónsson ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, AUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR frá Skeiðflöt í Mýrdal. Starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík þökkum við frábæra umönnun. Óskum ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar og gæfuríks árs. Guðjón Heiðar Jónsson, Kristín Ólafsdóttir, Ólafur Þorsteinn Jónsson, Jóhanna Sigursveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir minn, sonur og bróðir, ÞÓR RÚNAR BAKER, Hafnarbraut 21, Höfn í Hornafirði, lést í Berufirði, sunnudaginn 7. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Marteinn Steinar Þórsson, Sigríður Markúsdóttir, Guðlaug Bender.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.