Morgunblaðið - 12.12.2008, Side 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
Gylfi Magnússon
Heimskreppan og fyrsta dómínóið
Gylfi Magnússon dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands heldur
fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 12. desember kl. 12-13.30.
Fyrirlesturinn fjallar um þær slæmu horfur sem nú eru í efnahagslífi um heim
allan, hverjar skýringar þess virðast vera og hvað geti verið framundan.
Sérstaklega er horft til stöðunnar á Íslandi. Að erindinu loknu mun Gylfi svara
fyrirspurnum.
Gylfi lauk cand. oecon. prófi frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
árið 1990 og doktorsprófi í hagfræði frá Yale University í Bandaríkjunum
árið 1997. Hann hefur starfað í Háskóla Íslands frá árinu 1996 og hefur
einkum fengist við kennslu og rannsóknir í fjármálum og hagfræði. Hann
hefur skrifað fjölda greina á sínum fræðasviðum og tvær bækur og auk þess
sinnt margvíslegum ráðgjafar- og stjórnunarstörfum.
Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir.
Málstofa á vegum viðskiptafræðideildar H.Í.
Föstudaginn 12. desember kl. 12.00
Hátíðasalur Háskóla Íslands
www.vidskipti.hi.isVIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
@9A
@9A
& '
(''
%)*"
%)*'
:
:
@9A!
"7A
)!
&&)
%&*$
+)*#
:
:
+B;+
C%D
,! (
)! $,
%&*&
%*'
:
:
'E0
6A
"!,#
"!'('
+$*
%$*,
:
:
@9A# @9A$ ,)
( (
%&*)
%)*#
:
:
Þetta helst ...
%&
! ""#! #$%%&
( )*)+ *
6,81,/
6++41,/
7 &+41,/
5 1,/
,/
4,FG %
28 % +41,/
34. 7 1,/
91,/
0HI@C
0
7#'!,/$/1,/
J1,/
,)- ).)%
6 86 B(
6 8H+
H*'
7
'K+(7
CL1! 1,/
( )$/&).)0 1
M (6
M+/
7 % 1,/
4 #! 1,/
23 '
)
*#$
*
$*$(
)*&
)*&$
' *$
)*#$
&*'
#'*&$
)'(*$$
(,$*$$
))&*$$
)&*$$
&$*#$
))) *$$
= # 4
%
E $+# +%N
340
//
//
/
//
/ /
/
/
//
/ /
O
O
O
O
O
O
O
O
O
O
O
O
'!&%
# 4
#/ #
// // // // // //
//
// // // // // // // // // // /
/ 6E
6E
6E
6E
6E
6E
● Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni á Ís-
landi lækkaði um 2,1% í gær og var
lokagildi hennar 381 stig. Mest lækkun
var á hlutabréfum Straums-Burðaráss,
4,2%, og Marel, 3,6%. Bréf Exista
hækkuðu mest, úr 5 aurum í 6 aura,
eða um 20%. Þá hækkuðu bréf Cent-
ury Aluminium um 9,7%. Heildar-
viðskipti með hlutabréf námu 243
milljónum króna og mest viðskipti voru
með bréf Össurar, fyrir 81 milljón króna.
Úrvalsvísitalan lækkaði
● EINUNGIS sex
félög mynda núna
úrvalsvísitölu
Kauphallarinnar
og hafa þau aldrei
verið færri. Þegar
best lét mynduðu
75 félög úrvals-
vísitöluna en það
var árið 2001.
„Við munum
eiga undir högg að sækja á næstu miss-
erum en okkar framtíðarsýn er að á
næstu tveimur árum muni mörg þeirra
félaga sem hafa farið úr Kauphöllinni
koma inn í hana aftur,“ segir Þórður
Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar,
þegar hann er spurður um framtíð
hennar. Þórður bendir einnig á að
skuldabréfamarkaður hafi skilað Kaup-
höllinni mestum tekjum í gegnum tíðina
og ekki beri aðeins að miða við fjölda
félaga sem mynda vísitöluna hverju
sinni. Eftirtalin félög mynda vísitöluna í
dag: Alfesca, Bakkavör Group, Ice-
landair Group, Marel, Össur og
Straumur.
Þórður segir að Kauphöllin líti svo á
að um tímabundið ástand sé að ræða.
Hann segist ekki gera ráð fyrir sérstakri
fækkun starfsfólks þrátt fyrir að búist
sé við lakari afkomu Kauphallar.
Verðmæti skráðra félaga í Kauphöll
var aldrei meira en árið 2007 þegar
samanlagt verðmæti skráðra félaga
nam rúmlega 200% af vergri lands-
framleiðslu. thorbjorn@mbl.is
Endalok Kauphallar?
Þórður Friðjónsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
MILLIFÆRSLA framkvæmda-
stjóra hjá Landsbankanum, sem nú
er rannsökuð sem fjárdráttur hjá
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra, var framkvæmd til þess að
bjarga verðmætum eftir setningu
neyðarlaganna, að sögn fram-
kvæmdastjórans. Um er að ræða
millifærslu upp á 107 milljónir króna
af íslenskum bankareikningi eignar-
haldsfélags, sem er skráð erlendis og
er í eigu Landsbankans, inn á per-
sónulegan reikning framkvæmda-
stjórans.
Félagið var í eigu bankans
„Efnislega inntakið er að í öllum
hasarnum í hruni bankanna snerist
umræðan um það að innlán í eigu er-
lendra aðila, þ.m.t. aflandsfélaga [off-
shore], yrðu látin frjósa úti. Þetta var
liður í stærri aðgerð til þess að
bjarga slíkum innlánum,“ segir fram-
kvæmdastjórinn. Hann segir að við-
komandi eignarhaldsfélag hafi ekki
verið í sinni eigu. „Þetta var í eigu
sjálfseignasjóðs sem er skráður er-
lendis,“ segir hann. Aðspurður hvaða
hagsmuni hann hafi haft af því að
framkvæma millifærsluna segir hann
að reynt hafi verið að bjarga innlán-
um í eigu fleiri en eins félags. „Þetta
var eitt af félögunum sem reynt var
að bjarga og það var gert á þennan
klaufalega hátt,“ segir hann.
Maðurinn segir að um hafi verið að
ræða erlent félag sem hann hafi séð
um í mörg ár og átti innistæður í
Landsbankanum. Hann hafi talið að
innistæður erlendu félaganna væru
ekki tryggðar, en millifærslan var
gerð rétt eftir setningu neyðarlag-
anna.
Nýtt til hlutabréfakaupa
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var félagið, sem var skráð
erlendis og átti reikninginn, í eigu
Landsbankans og bankinn nýtti fé-
lagið og fjárhæðir í eigu þess til ým-
issa viðskipta, m.a. til kaupa á hluta-
bréfum. Verið er að athuga frekar
hvers eðlis félagið var og í hvaða öðr-
um tilgangi það var notað á vegum
bankans. Skilanefnd Landsbankans
vísaði málinu til efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra eftir að málið
kom upp í eftirlitskerfum bankans og
var rannsakað af óháðum endur-
skoðendum, sem ráðnir voru af skila-
nefnd bankans til að rannsaka við-
skipti og fjármagnshreyfingar í
tengslum við hrun bankakerfisins.
Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar
er það mat skilanefndar að ekkert
fjárhagslegt tjón hafi orðið, að því er
segir í tilkynningu frá skilanefnd-
inni.
Skýringar ekki fullnægjandi
Fulltrúar á vegum skilanefndar
bankans leituðu eftir skýringum frá
framkvæmdastjóranum þegar upp
komst um millifærsluna, skilanefnd
bankans mat það síðan svo að þær
hefðu ekki verið fullnægjandi og því
var málið sent til efnahagsbrota-
deildarinnar.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota, segir rann-
sókn málsins á frumstigi. Hann
væntir þess að rannsókn muni ganga
fljótt fyrir sig þegar öll gögn hafi
skilað sér. Spurður um hið sérstaka
erlenda félag sem bankinn átti segist
Helgi ekki þekkja það mál. Það liggi
þó fyrir að mörg íslensk fjármálafyr-
irtæki hafi átt aflandsfélög með
óljósan tilgang sem séu ekki uppi á
borðum í rekstri fyrirtækjanna og
eigi e.t.v. lítið skylt við venjubundin
viðskipti. „Ég vænti þess að skila-
nefnd bankans athugi það,“ segir
Helgi.
Segist hafa millifært til
þess að „bjarga innlánum“
Í HNOTSKURN
»Millifærslan var fram-kvæmd eftir setningu
neyðarlaganna, eftir 6. októ-
ber og fyrir 9. október, að
sögn framkvæmdastjórans.
»Verið er að athuga frekariumsvif félagsins sem átti
reikninginn sem millifært var
af, en það var í eigu bankans.
»Framkvæmdastjórinn hef-ur látið af störfum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsbankinn Skilanefnd Landsbankans vísaði málinu til efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra eftir að málið kom upp í eftirlitskerfum.
Framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum millifærði 107 milljónir af reikningi er-
lends félags í eigu bankans inn á sinn eigin Meintur fjárdráttur til rannsóknar
GLITNIR hefur stofnað sérstakt
umsýslufélag sem hefur það hlut-
verk að yfirtaka eignarhluti í fyrir-
tækjum sem bankinn hefur eignast.
Umsýslufélagið er rekið á sér-
stakri kennitölu og framkvæmda-
stjóri þess er starfsmaður Glitnis.
Starfar hann undir sérstakri stjórn
sem m.a. er skipuð einum af fram-
kvæmdastjórum Glitnis. Félagið er í
umsjá lánaeftirlits bankans.
Hjá Kaupþingi er unnið að stofnun
slíks félags og verður það með sér
kennitölu og sérstaka stjórn sem
bankinn tilnefnir. „Ef eignir verða
teknar yfir til þess að tryggja efndir
krafna þá mun bankinn selja þær um
leið og það þykir hagkvæmt,“ segir
Jónas Sigurgeirsson, framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Kaupþings.
Hjá Landsbanknum fengust þær
upplýsingar að slíkt félag hefði verið
stofnað, en að frekari vinnureglur
væru í mótun.
Stofnun umsýslufélaga bankanna
er liður í aðgerðum til að bæta
rekstrarumhverfi fyrirtækja. Fram-
undan er mikil vinna við fjárhags-
lega endurskipulagningu. Miklir
hagsmunir eru í húfi hjá kröfuhöf-
um, skuldurum og þjóðfélaginu öllu,
að því er segir í tilkynningu frá Sam-
tökum fjármálafyrirtækja.
thorbjorn@mbl.is
Bankarnir stofna
félög fyrir eignir