Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ALLT að þreföldun, eða 200% aukning, hefur orðið á beiðnum út- lendinga um endurgreiðslu virðis- aukaskatts vegna kaupa á varningi hér á landi í desember sé miðað við desember árið 2007. Þetta staðfestir Helgi H. Jóns- son, framkvæmdastjóri Global Refund, sem sér um endurgreiðslu virðisaukaskatts. Hann tekur þó fram að ýmsar breytur geti haft áhrif á tölurnar, t.d. tímabilið, en 200% aukningin miðast við töl- urnar fram til 18. desember. „Hafa þarf í huga að tímabilið er 30 dagar og þá getur haft áhrif hvenær uppgjör þau, sem koma frá endurgreiðslustöðum, eru gerð,“ segir Helgi. „Þetta getur þannig verið spurning um daga til eða frá.“ 28% samdráttur í kortasölu „Það hefur orðið hátt í 28% raunsamdráttur á innlendri greiðslukortaveltu hjá okkur frá því í fyrra eða um 10% samdráttur að nafnvirði. Mynstrið er mjög svipað og því ekki um það að ræða að fólk sé seinna fyrir í innkaup- unum,“ segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar hf., sem hefur umboð fyrir m.a. Mastercard og American Express á Íslandi. Mikil aukning var í notkun greiðslukorta í sama mánuði í fyrra en þá jókst kortanotkun um tæp 18% frá 2006. Haukur segir það eflaust spila inn í minnkandi kortanotkun að tæpir 13 millj- arðar voru teknir út í reiðufé úr bönkum landsins í október. Eyða minna erlendis „Umskiptin sem urðu í haust á kortanotkun erlendis hafa haldist áfram. Íslendingar eyða nú um einum þriðja af því sem þeir eyddu erlendis á föstu gengi,“ seg- ir Haukur. Hann segir þó að út- lendingar hafi eytt meiru hér á landi og því hafi viðskiptajöfnuður korta lagast, skekkjan sé um einn fjórði af því sem hún var í fyrra. Morgunblaðið/G.Rúnar Friðarganga Fjölmenni var í blysförinni niður Laugaveginn sem íslenskir friðarsinnar stóðu fyrir í gær, á Þorláks- messu, 29. árið í röð. Óhætt er að segja að friðargangan sé fyrir löngu orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Fá þrefalt meira endurgreitt Íslendingar nota greiðslukort mun minna en í fyrra „VIÐ vonum að með þessum dómi sé málinu lokið,“ segir Ómar R. Valdi- marsson, talsmaður Impregilo, en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ís- lenska ríkið í gær til þess að greiða Impregilo rúma 1,23 milljarða kr. vegna ofgreiddrar staðgreiðslu af launum portúgalskra starfsmanna sem ráðnir voru af starfsmannaleig- um. Auk þess ber ríkinu að greiða um 600 milljónir kr. í dráttarvexti. Að- spurður segir Ómar niðurstöðuna ekki koma á óvart í ljósi þess að fallið hafi hæstaréttardómur í september 2007 þess efnis að Impregilo væri ekki vinnuveitandi umræddra portú- galskra starfsmanna. Að sögn Ómars hefur Impregilo orðið fyrir talsverðu fjárhagstjóni vegna málsins. Bendir hann á að Imp- regilo hafi eftir niðurstöðu ríkisskatt- stjóra 2005 greitt ríkissjóði stað- greiðsluna með fyrirvara um að fyrirtækið myndi leita réttar síns fyr- ir dómstólum. „Síðan þá hefur gengi íslensku krónunnar hríðlækkað, þannig að 600 milljón kr. dráttarvext- irnir duga ekki fyrir því gengistapi sem fyrirtækið hefur orðið fyrir,“ seg- ir Ómar og bendir jafnframt á að þar sem Impregilo sé varla með neina starfsemi á Íslandi lengur muni fyr- irtækið vilja fara með umrædda fjár- muni úr landi. Segist Ómar óttast að ný lög um gjaldeyrisviðskipti geri það að verkum að erfitt verði fyrir fyr- irtækið að fara með peningana úr landi. silja@mbl.is Ríkið endur- greiði Impregilo 1,23 milljarða Í HNOTSKURN »Ekki náðist í Árna Mathie-sen fjármálaráðherra vegna málsins í gær. »Böðvar Jónsson, aðstoð-armaður ráðherra, sagði að ekki hefði gefist ráðrúm til þess að skoða dóminn. Ekki er búið að taka ákvörðun um það hvort málinu verður áfrýjað. Dráttarvextir um 600 milljónir TALSVERT var um innbrot og þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu í gær að sögn lögreglu. Höfðu 32 slík mál verið tilkynnt lögreglu í gær- kvöldi. Brotist var inn í bíla og vörum hnuplað úr verslunum og sagði varðstjóri meira um slíkar til- kynningar nú en undanfarin ár. Þannig hefðu margar tilkynningar um búðahnupl borist og í ein- hverjum tilvikum hefði lögreglunni tekist að hafa hendur í hári þjóf- anna og vörunum þá verið skilað. Margir hefðu borið við peninga- leysi þegar þeir voru krafðir um skýringar á athæfinu. jonpetur@mbl.is Nokkuð um innbrot og þjófnaði BREYTINGAR verða ekki gerðar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar fyrir áramót og að öllum líkindum ekki fyrir landsfund Sjálfstæð- isflokksins. Kom þetta fram í máli bæði Geirs H. Haarde forsætisráð- herra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. Breytingar á ríkisstjórninni eru þó ekki útilokaðar á nýju ári að því er greint var frá í fréttum ríkis- útvarpsins. Segir Ingibjörg eðlilegt að rík- isstjórnarflokkarnir séu samferða í uppstokkunarferlinu – sé á annað borð um að ræða einhverjar breyt- ingar sem máli skipti. Hún hafi áskilið sér, strax við stjórnar- myndun, þann rétt að gera breyt- ingar á ráðherraskipan Samfylk- ingarinnar og sá áskilnaður standi. Engu breytt fyrir áramót Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Geir H. Haarde TE- OG kaffiverslunarkeðjan Whittard of Chelsea er gjaldþrota. Endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young, sem var skipað skiptaráð- andi, hefur selt reksturinn til fjár- festingarfélagsins EPIC. Baugur keypti Whittard 2005 fyrir 21 millj- ón punda. Um 950 manns starfa fyr- ir Whittard of Chelsea, sem var stofnað 1886 og hefur rekið 130 verslanir í Bretlandi. Wittard gjaldþrota MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út mánudaginn 29. desember. Að venju verður fréttaþjónusta á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, yfir jóladagana. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Áskriftardeild Morgunblaðsins verður opin í dag, aðfangadag, frá klukkan 7-13. Auglýsingadeild blaðsins verður lokuð yfir jólin, en opin milli níu og 12 sunnudaginn 28. des. Netfang auglýsingadeildar er augl@mbl.is. Skiptiborð Morg- unblaðsins verður lokað á að- fangadag og jóladag en opið 28. desember. Símanúmer Morgun- blaðsins er 569-1100. Netfang rit- stjórnar er ritstjorn@mbl.is. Fréttavakt á mbl.is um jólin Hvaða erlendir ferðamenn kaupa mest á Íslandi fyrir jólin? Danir eru í efsta sæti, þá Norð- menn, Bretar og Svíar. Banda- ríkjamenn eru í fimmta sæti, því næst Hollendingar, Þjóðverjar, Frakkar, Færeyingar og í tíunda sæti eru Kínverjar. Í hvaða hópi hefur fjölgað mest milli ára? Marktækt fleiri Danir, Færeyingar, Bandaríkjamenn, Hollendingar og Kínverjar eru hér í ár. Af hverju stafar aukningin í hópi umræddra ferðamanna? Lækkun íslensku krónunnar gerir Ísland að fýsilegri áfangastað til verslunarferða. Einnig spilar inn í að markaðssetning íslenskra fyr- irtækja og skipulagðar ferðir hafa mikið að segja. Má greina einhverja breytingu í verslunarvenjum? Já, því svo virðist sem hver ferða- maður versli fyrir töluvert hærri upphæð en áður. Þannig hefur meðaltalsupphæðin sem skilar sér í gegnum Global Refund-kerfið hækkað um 35% á einu ári. S&S GOTT hljóð var í þeim kaupmönnum sem Morgunblaðið ræddi við í gær- kvöldi til þess að heyra hvernig jólasalan hefði farið fram á Þorláksmessu. „Ótrúlegt en satt að salan í desember í ár er svipuð og í fyrra,“ sagði Svava Eyjólfsdóttir, einn eigenda Verslunar Guðsteins Eyjólfssonar, og þakkaði það helst því að jólaverslun Íslendinga hefði færst heim. „Það er búin að vera ofsalega skemmtileg stemning hér í dag og mikið af fólki,“ sagði Hulda B. Ágústsdóttir, einn eigenda Kirsuberjatrésins. Sagðist hún skynja það sterkt að viðskiptavinir vildu kaupa íslenska hönnun. Undir það tók Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir, eigandi GuSt. „Dagurinn hefur verið alveg frábær,“ sagði Henning Freyr Henningsson, framkvæmdastjóri Smáralindar. Sagði hann eftirtektarvert að mun rólegra virtist vera yfir fólki og minna stress en í fyrra. Tók hann fram að svo virtist sem landinn héldi ekki jafnfast um budd- una þessa síðustu daga fyrir jól, alla vega væru kaupmenn almennt sáttir. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, sagði söluna góða þótt vissulega gæti hún ekki nálgast hæðirnar fyrir ári. Morgunblaðið/G.Rúnar Kaupmenn almennt sáttir ALLS hafa sjö hross úr stóði á Kjal- arnesi drepist, en um þrjátíu hross til viðbótar eru sýkt og fá viðeigandi meðhöndlun. Að sögn Gunnars Arn- ar Guðmundssonar, héraðsdýra- læknis Gullbringu- og Kjósarum- dæmis, bentu fyrstu rannsóknir til þess að um salmonellusýkingu væri að ræða og frekari rannsóknir hafa ýtt frekar undir grunsemdir manna þess efnis þótt ekki hafi enn verið hægt að staðfesta það endanlega. Aðspurður hvernig hrossin hafi smitast segir Gunnar að um hópsmit sé að ræða, þau hafi hugsanlega get- að smitast með fóðri, en verið er að skoða allar mögulegar smitleiðir. Hestarnir hafa verið fóðraðir úti við eyðibýlið Norðurgröf á Kjalarnesi. Dauf og lystarlítil Spurður um einkenni salmonellu- smits segir Gunnar að hrossin fái hita, sýni deyfð, þjáist af lystarleysi og niðurgangi. Grunur manna um sýkingu vaknaði fyrst sl. sunnudag þegar dautt hross fannst í haganum og aðrir hestar reyndust slappir. Í framhaldinu voru hrossin sl. mánu- dag flutt í fimm hesthús í Mosfells- bænum enda var veðurútlit vont og margir hestanna veikir. Aðspurður segir Gunnar að hross- in ættu að geta jafnað sig af sýking- unni á næstu dögum og því ætti það að skýrast fyrir áramót hvort öll sýktu hrossin lifi af, en góðar líkur séu til þess. silja@mbl.is Sjö hross dauð vegna sýkingar Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Sýking Næstu dagar skera úr um hvernig sýktu hrossunum reiðir af.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.