Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
... gleðilegrar hátíðar!
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
UM 1.800 Íslendingar njóta sólar og
sumaryls á Kanaríeyjunum Kanarí
og Tenerife um jól- og nýár á vegum
íslenskra ferðaskrifstofa. Eru það
um 700 færri en í fyrra.
Um 300 manns fara hins vegar á
vegum ferðaskrifstofanna í skíða-
ferðir til Austurríkis og Ítalíu yfir
hátíðarnar eða svipaður fjöldi og í
fyrra.
Jólin voru seld í sumar
Tómas Gestsson, framkvæmda-
stjóri Heimsferða, segir að á þeirra
vegum dvelji rúmlega 200 manns á
Kanaríeyjum um jólin. Í fyrra voru
þeir sem sleiktu sólina fyrir sunnan
nær tvöfalt fleiri, að sögn Tómasar.
„Það getur verið að fleiri vilji vera
heima með fjölskyldunni um jólin en
það virðist sem fólk vilji komast í sól-
ina eftir jól því þá er þokkalega bók-
að,“ greinir Tómas frá.
Hann segir talsverðan fjölda
þeirra sem héldu utan nú fyrir jólin
hafa verið búinn að greiða fargjaldið
áður en kreppan skall á.
Margrét Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri tekjustýringar hjá
Ferðaskrifstofu Íslands, sem er
móðurfélag Úrvals-Útsýnar, Plús-
ferða og Sumarferða, segir að á
þeirra vegum séu nú um 1.500 manns
á Kanaríeyjum eða 500 færri en í
fyrra. Hún segir flesta hafa verið
búna að kaupa farmiðana fyrir októ-
ber. „Jólin voru seld í sumar,“ segir
hún.
Þorsteinn Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Ís-
lands, segir að á þeirra vegum hafi í
fyrra verið flogið fjórum sinnum í
viku til Kanaríeyja á háannatíman-
um yfir veturinn. Samtals hafi um
7.000 manns dvalið á Kanarí og Te-
nerife í fyrravetur. Miðað við bók-
anir nú sé hins vegar gert ráð fyrir
því að Kanaríeyjaförum fækki um
helming.
Á vegum Vita, sem er samstarfs-
aðili Vildarklúbbsins, eru um 100
manns á Kanaríeyjum um jólin, að
sögn Helga Eysteinssonar, fram-
kvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar.
Um 1.800 í sól á Kanaríeyj-
um og 300 á skíðaferðalagi
700 færri til Kan-
aríeyja um jólin
heldur en í fyrra
AP
Sveinki á siglingu Við strendur Kanaríeyja ferðast jólasveinninn um á seglbretti til þess að komast leiðar sinnar.
Þessi mynd var tekin undan ströndum eyjunnar Lanzarote sem tilheyrir Kanaríeyjaklasanum.
Í HNOTSKURN
»Bókunum hjá Ferðaskrif-stofu Íslands í Kanarí-
eyjaferðir í vetur hefur fækk-
að um helming miðað við í
fyrra.
»Kanaríeyjafarar voru um7.000 í fyrravetur en verða
líklega um 3.500 í vetur.
Á MILLI 30 og 40 einstaklingar hafa
leitað til Ráðgjafarmiðstöðvar Land-
spítala vegna kvíða, depurðar, sekt-
arkenndar eða annarra álagsein-
kenna í tengslum við þróun fjármála
á Íslandi. Miðstöðin, sem er til húsa á
Eiríksgötu 5, var opnuð fyrri hluta
október síðastliðins.
Nú er leitað leiða til að ná til fleiri
einstaklinga, að sögn Engilberts Sig-
urðssonar, yfirlæknis á geðsviði
Landspítalans.
„Við höfum spurt þá sem nýtt hafa
sér þjónustuna hvort þeir telji að
hópfræðslufundir í hlutlausum sal
muni gera sama gagn. Af þeim svör-
um sem við höfum þegar fengið virð-
ast margir vera á því. Þeir sem hafa
komið hafa verið ánægðir með þjón-
ustuna en það kann að vera að við
náum til fleiri ef við breytum form-
inu,“ segir Engilbert.
Á geðdeild Landspítalans og á
heilsugæslustöðvunum hefur haustið
að jafnaði verið rólegra en fyrri
haust að undanskildum nokkrum
toppum að sögn Engilberts. „Al-
mennt hefur félagslegi þátturinn
kannski vegið heldur þyngra hjá
okkar skjólstæðingum en hann hefur
gert.“
Yfirlæknirinn kveðst eiga von á
erfiðu vori. „Það þarf engan sérfræð-
ing til að átta sig á því að með breytt-
um atvinnumálum og fjármálum
heimilanna eru þúsundir Íslendinga
undir auknu álagi.“
ingibjorg@mbl.is
Tugir hafa
fengið hjálp
vegna álags
Leita leiða til þess að
veita fleirum ráðgjöf