Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 18
18 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Óskum aðildarfélögum okkar, viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Staðlaráð Íslands Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is Á FUNDI stjórnar Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna (LÍN) voru í gær afgreiddar umsóknir um neyð- arlán. Fyrir stjórnarfundinum lágu 115 umsóknir. Samþykktar voru sjö umsóknir, 13 bíða eftir að frekari gögn berist sjóðnum og 95 umsókn- um var hafnað. Ástæður fyrir sam- þykki þeirra umsókna sem voru af- greiddar eru, að sögn Ástu Þórarinsdóttur, setts framkvæmda- stjóra LÍN, m.a. að meðlags- eða fæðingarorlofsgreiðslur frá Íslandi höfðu rýrnað verulega vegna geng- isfalls krónunnar, umtalsverðar taf- ir á millifærslu gjaldeyris milli landa og til lánþega í fjarnámi eða skiptinámi erlendis, sem ekki féllu undir breytingar á úthlutunar- reglum sem lutu að því að koma til móts við skiptinema. Neyðarlán að uppfylltum vissum skilyrðum „Þessi grein var til í reglunum áð- ur en var aðeins breytt til að víkka hana út þannig að hún næði betur yfir ástandið í haust,“ segir Ásta og vísar þar til greinar 4.9 í reglum um neyðarlán til íslenskra námsmanna. Útvíkkun á þessari reglu á að verða til þess að námsmenn í sárri neyð geta fengið neyðarlán að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. „Fram að þessu hefur hún verið notuð í al- gjörri neyð við óvenjulegar að- stæður þegar ekki hefur verið hægt að taka á þeim annars staðar í lána- sjóðskerfinu. Nú var henni breytt á miðju ári sem er óvenjulegt, venju- lega eru reglur settar að vori og gilda fyrir komandi skólaár,“ segir Ásta. Ástæðuna fyrir því að greinin var útvíkkuð segir hún hafa verið erf- iðar aðstæður í íslensku efnahagslífi og horft er til þess hvernig þær hafa áhrif á námsmanninn núna. Fallandi króna hækkar lánin umtalsvert Lán frá LÍN eru veitt í mynt hvers námslands og fá námsmenn greitt út námslán miðað við gengi á útborgunardegi. Lækkandi gengi krónunnar hefur því þau áhrif að námslán til námsmanna erlendis hafa hækkað umtalsvert frá því sem gert var ráð fyrir í haust. Hins veg- ar fara margir námsmenn erlendis þá leið að fá yfirdráttarlán á Íslandi á meðan beðið er úthlutunarinnar frá LÍN. Yfirdráttarlánin hafa að sjálfsögðu rýrnað með fallandi gengi krónunnar en neyðarlánin gilda ekki fyrir þau tilfelli. „Bank- arnir fengu sérstök tilmæli um að endurskoða námsáætlun náms- mannanna og yfirdráttarlánið átti að hækka í samræmi við þá endur- skoðun,“ segir Ásta. „Ef menn hafa lent í vandræðum með það eða af einhverjum öðrum aðstæðum, eins og kostnaði vegna vandræða með millifærslur, missis húsnæðis eða slíks, geta þeir leitað til okkar, en gengisfall krónunnar sem slíkt á ekki að hafa áhrif.“ Umsóknir áfram skoðaðar eftir því sem þær berast Ásta bendir þó á að verið sé að skoða aðstæður fólks sem hefur reitt sig á tekjur frá Íslandi, eins og t.d. meðlag eða fæðingarorlof sem hafi rýrnað með falli krónunnar. Hún segir að mál hafi verið skoðuð jafnt og þétt, í fyrstu hafi verið skoðaðar 80 umsóknir en frekari gögn til staðfestingar á umsóknum hafi verið að berast alveg fram á þennan dag. „Þess vegna höfum við ekki verið tilbúin að afgreiða fyrr en núna,“ segir Ásta. Sjóðurinn mun halda áfram að af- greiða umsóknir eftir því sem þær berast og hægt verður að sækja um neyðarlán á meðan þessar úthlut- unarreglur eru í gildi en þær verða að venju endurskoðaðar í vor. Þess má að lokum geta að jóla- fundur Sambands íslenskra náms- manna erlendis (SÍNE) heldur ár- legan jólafund sinn mánudaginn 29. desember kl. 17 í Norræna húsinu. Morgunblaðið/Valdís Thor Ódýr orka Námsmenn eru nú í jólafríi og margir þeirra nýta sér þá orku sem í þeim býr til að komast á milli staða. Þó fer engum sögum af því hvort hér er námsmaður á ferð á hinum reykvíska Laugavegi nýliðinn dag í desember. Sjö samþykktar – 95 hafnað  Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur afgreitt 115 umsóknir um neyðarlán  Enn beðið gagna vegna þrettán umsókna  Neyðarlánin ná ekki yfir gengistap Síðasti úthlutunardagur jólaað- stoðar Hjálparstarfs kirkjunnar, Reykjavíkurdeildar Rauða kross Ís- lands og Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur var í gær. Í ár voru um 2.700 umsóknir af- greiddar. Gert er ráð fyrir 2,5 ein- staklingum á bak við hverja umsókn og reiknast umsjónarmönnum því til að um 2,1% landsmanna hafi þegið hjálpina þessi jólin. Þetta hlutfall var hins vegar öllu hærra á Suðurnesjum. 3,38% þeirra, eða 725 manns, sendu samanlagt inn 290 umsóknir. Þess vegna komu 10,8% allra umsókna sem bárust frá Suðurnesjunum. Hlutfall heimila sem nutu að- stoðar var þó hæst í Reykjavík, það- an bárust 1.757 umsóknir. Þar nutu 4,2% heimila aðstoðarinnar. Fleiri sjálfboðaliðar en áður Afgreiðslan gekk afar vel í ár, að því er segir í tilkynningu, en starf- semin var hýst án endurgjalds í hús- næði í eigu Straums. Þar var bið- stofa svo enginn þurfti að bíða utandyra. Sjálfboðaliðar voru líka fleiri þetta árið en oft áður, svo ekki þurfti að vinna fram á kvöld til að skipuleggja næsta dag. 2,1% fékk jólaaðstoð á þessu ári Um 11% umsókna voru af Suðurnesjum ALLS voru lesnar upp 2.710 jóla- kveðjur á Ríkisútvarpinu í gær, Þorláksmessu. Eru það 100 fleiri kveðjur en fyrir síðustu jól, að sögn Þorsteins Þorsteinssonar, markaðs- stjóra RÚV. Um áratugalanga hefð er að ræða í RÚV, allt frá því kring- um árið 1935. Til að ljúka lestrinum á skikk- anlegum tíma í gær hófst hann fyrr en venjulega, eða kl. 9 að morgni, og náði að klárast fyrir miðnættið. Hvert orð í kveðjunni kostaði nú tæpar 250 krónur, og segir Þor- steinn að hækkun á milli ára sé í takt við þróun verðlags. Hann upp- lýsir ekki um tekjurnar, nema að kveðjurnar séu dágóð búbót, en miðað við meðallengd á kveðju og eina birtingu má gróflega ætla að RÚV hafi náð að hala inn 15-16 milljónum króna á lestrinum. bjb@mbl.is Nærri 3.000 jólakveðjur FJÖLMENNI var við opnun málverkasýningar í Sparisjóði Siglufjarðar í gær. Eins og við var að búast vakti myndin Konur í síldarvinnu eftir Gunn- laug Blöndal mesta athygli. Nú eru 60 ár síðan verkið var sett upp í Út- vegsbankanum á Siglufirði. Þegar Glitnir lauk starfsemi sinni þar 2006 hvarf verkið sjónum Siglfirðinga. Það er nýlega komið alla leið frá New York og hefur Nýi Glitnir góðfúslega lánað verkið aftur á heimaslóðir. Síldarkonurnar komnar heim Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson Í grein 4.9 í reglum um aukalán vegna röskunar á stöðu og högum námsmanna segir m.a. að heimilt sé að veita námsmanni aukalán sem samsvarar framfærslu fyrir allt að 7 alþjóðlegar námseiningar (ECTS) fyrir námsmann á Íslandi og 14 ECTS-einingar fyrir náms- mann erlendis. Námsmenn þurfa að sækja sérstaklega um aukalán, en þau eru ætluð námsmönnum „í sárri neyð og verður hvert tilvik metið af stjórn sjóðsins. Á þetta við þegar námsmanni verður vegna alvarlegra veikinda, örorku sinnar, framfærslu barna sinna eða maka eða af öðrum ástæðum illmögulegt að stunda nám sitt að fullnýttri lánsheimild.“ Í frétt á vef menntamálaráðu- neytis um aðgerðir vegna erfiðrar stöðu íslenskra námsmanna er- lendis segir m.a.: „Hafi orðið ófyr- irsjáanleg röskun á stöðu og hög- um lánþega við nám erlendis verði heimilt að veita honum aukalán sem samsvarar framfærslu allt að tveggja mánaða. Eftir sem áður eigi lánþegar við nám á Íslandi rétt á sambærilegu aukaláni sem sam- svarar framfærslu eins mánaðar.“ Þá segir jafnframt í fréttinni að ráðstöfunin sé gerð með breytingu á áðurnefndri grein 4.9 í úthlut- unarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Í sömu frétt er tiltekin hækkun á vaxtastyrk vegna aukins fjár- magnskostnaðar við töku yfir- dráttarlána. Þar segir: „Hér er um styrk að ræða en ekki lán, sem greiddur er út með námslánum. Vaxtastyrkur við útborgun lána verði hækkaður úr 250 kr. í 400 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem lok- ið er. Námsmaður sem lýkur fullu námi á skólaárinu fái þannig styrk að fjárhæð 24 þús. kr. í stað 15 þús. kr. áður.“ Loks er í frétt menntamála- ráðuneytisins komið inn á að tekið verði tillit til tekjutaps þeirra sem greiða af námslánum. „Greiðendur námslána sem verða fyrir 20-30% tekjufalli milli áranna 2008 og 2009 eigi kost á lækkun tekju- tengdrar afborgunar haustið 2009, og þeir sem verða fyrir tekjufalli umfram 30% geti fengið tekjutengdu afborgun ársins fellda niður að fullu. Almennt er greið- endum námslána gert að greiða 3,75%-4% af heildartekjum und- angengins árs í afborganir af námslánum sínum. Með breyting- unni er leitast við að koma til móts við þá sem verða fyrir verulegum tekjumissi milli ára.“ Tilhliðrun yfirvalda gagnvart námsmönnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.