Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 22
22 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Sjúkranuddstofan
Moonstartherapy
Anton Wurzer
Síðumúla 15
108 Reykjavík
Sími/Fax
588 1404
Gsm 895 9404
Ég óska landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
✯Heilnudd - Body Massage✯Bakmeðferð - Back and Spine Therapy
✯Bandvefsnudd - Connective Tissue Massage✯Sogæðameðferð -
Lymphdrainage ✯Svæðanudd - Feetreflexzone Therapy
✯Ristilnudd - Colon Massage✯Orkumeðferð - Acupoint Massage
✯Kneipp Vatnsbunumeðferð - Kneipp Watergushes
✯Rytmanudd - Rhythmical Massage ✯Thai Massage✯
Moonstartherapy ✯ Moonstartherapy ✯ Moonstartherapy ✯ Moonstartherapy
Moonstartherapy✯Moonstartherapy✯Moonstartherapy✯Moonstartherapy
M
oo
ns
ta
rt
he
ra
py
✯
M
oo
ns
ta
rt
he
ra
py
✯
M
oo
ns
ta
rt
he
ra
py
✯
M
oo
ns
ta
rt
he
ra
py
✯
M
oo
ns
ta
rt
he
ra
py
M
oonstartherapy
✯
M
oonstartherapy
✯
M
oonstartherapy
✯
M
oonstartherapy
✯
M
oonstartherapy
Takið þátt í baráttunni; hjálpið TARGET
TARGET eru mannréttindasamtök
stjórnað af Ruediger Nehberg.
Hann hefur ásamt konu sinni barist árum saman
gegn umskurði kvenna um allan heim.
Heimsækið heimasíðuna okkar og leggið okkur lið!
www.target-nehberg.de
✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯✯
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
FORRÁÐAMÖNNUM geðdeildar Sjúkrahússins á Ak-
ureyri (FSA) er gert að skera niður um 6% í rekstri á
næsta ári, alls 17,5 milljónir króna. Yfirlæknir göngu-
deildar geðdeildarinnar segist hafa miklar áhyggjur
vegna þess að ekki verði hjá því komist að draga úr þjón-
ustu; geðdeildin hafi ekki getað sinnt eftirspurn að fullu í
ár og fyrirhugaður niðurskurður bæti ekki ástandið.
„Enn hafa ekki verið teknar ákvarðanir um það hvern-
ig verður skorið niður en ég hef miklar áhyggjur af því
hvernig við verðum í stakk búin eftir áramótin,“ sagði
Árni Jóhannesson, yfirlæknir göngudeildar geðdeildar
FSA, við Morgunblaðið í gær. Hann segir starfsmenn
deildanna nú þegar verða vara við áhrif fjárhagskrepp-
unnar á skjólstæðinga sína.
Eitt af því sem kemur til greina er að sameina göngu-
deild og dagdeild geðdeildar, sem gæti í raun þýtt að
dagdeildin verði lögð niður, en þangað sækir fyrst og
fremst þjónustu fólk sem lengi hefur átt við geðræna erf-
iðleika að stríða og þarf fjölþættari og lengri endurhæf-
ingu en aðrir. Stöðugildi á dagdeild eru sex og 35-40
manns hafa sótt þjónustu þangað.
Halldór Jónsson, forstjóri FSA, segir að skv. nýsam-
þykktum fjárlögum þurfi FSA að lækka útgjöld um 250-
300 milljónir króna á næsta ári og sú upphæð verði ekki
auðveldlega hrist fram úr erminni. Velta stofnunarinnar
er fjórir milljarðar.
Halldór tekur fram að ekkert hafi verið ákveðið enn
varðandi niðurskurðinn, en staðfestir að enginn þáttur
rekstrarins sé í raun undanskilinn. Bráðaþjónustu þurfi
ætíð að tryggja en nauðsynlegt sé, þegar um svo háar
fjárhæðir sé að ræða, að hugsa ýmislegt upp á nýtt; m.a.
að velta fyrir sér samlegðaráhrifum deilda. Farið hafi
verið yfir stöðuna með öllum yfirmönnum og lausna sé
leitað. Laun eru um 70% af rekstrarkostnaði sjúkrahúss-
ins og Halldór segir því erfitt að skera niður öðruvísi en
starfsfólki fækki og við það verði þjónusta ekki sú sama
og áður.
„Við erum farin að finna fyrir efnahagskreppunni á
göngu- og legudeildum og ég hef því töluverðar áhyggjur
af því að við þurfum að skera niður,“ segir Árni Jóhann-
esson. „Eins og kerfið er fyrir niðurskurð höfum við ekki
undan og svona mikill niðurskurður verður ekki gerður
án þjónustuskerðingar. Ég hef áhyggjur af því að það
verði aukin eftirspurn eftir þjónustu geðdeildarinnar á
komandi ári í tengslum við efnahagskreppuna.“
Yfirlæknir hefur áhyggjur
af niðurskurði á geðdeild
Geðdeild FSA gert að spara 17,5 milljónir króna á næsta ári
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HEILDARFJÖLDI skráðra
kaupsamninga um fasteignir hjá
Fasteignamati ríkisins (FMR) stefn-
ir í að verða um 6.200 á þessu ári og
heildarupphæð þeirra rúmlega 180
milljarðar króna. Til samanburðar
voru kaupsamningar nær 15.300 í
fyrra og veltan rúmlega 400 millj-
arðar.
Kaupsamningar samkvæmt
skrám FMR hafa ekki verið færri
síðan 1993, þegar þeir voru rúmlega
5.000 og veltan ekki minni síðan 2003
þegar hún var rúmlega 160 millj-
arðar. Að teknu tilliti til fjölgunar
fasteigna á landinu má gera ráð fyrir
því að umsvifin á fasteignamarkaði á
þessu ári hafi verið svipuð því sem
var undir lok síðustu aldar.
Útlit er fyrir að á höfuðborgar-
svæðinu verði þinglýst 3.500 kaup-
samningum á þessu ári og að heild-
arveltan verði tæplega 115 milljarð-
ar. Kaupsamningar á höfuðborgar-
svæðinu hafa ekki verið færri síðan
1993 þegar þeir voru tæplega 3.300
talsins. Fara verður aftur til ársins
2002 til að finna minni veltu í krónu-
tölu en var í ár. Þá var veltan í fast-
eignaviðskiptum á höfuðborgar-
svæðinu rúmlega 100 milljarðar á
verðgildi þess árs.
Þorsteinn Arnalds, aðstoðar-
framkvæmdastjóri mats- og hag-
sviðs FMR, sagði athyglisvert hvað
samdrátturinn væri miklu meiri á
höfuðborgarsvæðinu en annars stað-
ar á landinu.
Alvarlegt ástand á markaðnum
Grafalvarlegt ástand er á
fasteignamarkaðnum, að mati Grét-
ars Jónassonar hdl. og fram-
kvæmdastjóra Félags fasteignasala.
Hann segir að markaðurinn hafi ver-
ið frosinn nánast allt þetta ár og við-
skiptin aðeins brot af því sem verið
hefur á undanförnum árum.
Erfitt er að gera sér grein fyrir
raunverulegri verðþróun því við-
skiptin hafa verið svo lítil. Fast-
eignaverð hefur nánast staðið í stað
en sú raunlækkkun sem komið hefur
fram er einkum vegna verðbólgu.
Lítið lánsfé til fasteignakaupa er í
boði. Grétar segir að bankarnir hafi
nær alveg dregið sig út af fast-
eignalánamarkaðnum allt þetta ár.
Einnig heldur fólk að sér höndum
vegna mikillar verðbólgu og óvissu.
Grétar segir að samdráttur hafi
verið mikill á suðvesturhorninu en
fasteignasalar t.d. á Akureyri hafi
einnig borið sig illa. Hann telur að
ekki rætist úr fyrr en meiri stöðug-
leiki kemst á, verðbólga minnkar og
ljóst verður hvernig atvinnuástandið
verður í þjóðfélaginu.
Grafalvarlegt ástand
Kaupsamningar fasteigna um 6.200 í ár en voru nær 15.300 í fyrra Veltan á
markaðnum um 180 milljarðar á þessu ári en var rúmlega 400 milljarðar í fyrra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fasteignir Mikill samdráttur varð á þessu ári í sölu fasteigna. Samdrátturinn varð hlutfallslega meiri á höfuðborg-
arsvæðinu en annars staðar á landinu. Minna hefur verið um lánsfé og fólk heldur að sér höndum vegna óvissunnar.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÞAÐ er ekkert ósamræmi á milli al-
mennrar ráðgjafar framkvæmda-
stjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(AGS) og þeirrar
stefnu sem sjóð-
urinn framfylgir á
Íslandi,“ segir
Poul M. Thomsen,
sem fer með mál-
efni Íslands hjá
sjóðnum.
Morgunblaðið
varpaði þeirri
spurningu til
Thomsens, eftir
að Dominique Strauss-Kahn, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, hélt ræðu og
hvatti ríki heims til aukinna ríkisút-
gjalda á dögunum. Það sagði Strauss-
Kahn hafa linandi áhrif á kreppuna og
bæta ástandið. Á meðan hefur áætlun
sjóðsins fyrir Ísland gert ráð fyrir
miklu aðhaldi í ríkisrekstri.
Skuldirnar aukast hratt
„Þegar sjóðurinn hvetur ríki til að-
gerða í ríkisfjármálum til að örva hag-
kerfi sín hefur AGS lagt áherslu á að
þær aðgerðir taki mið af aðstæðum í
hverju landi. Til dæmis hafa sum
mjög skuldsett ríki lítið svigrúm til
aðgerða, miðað við ríki með litlar
skuldir hins opinbera,“ segir Thom-
sen.
Á Íslandi sé gert ráð fyrir að halli á
ríkisrekstrinum aukist um 13,5% af
landsframleiðslu á næsta ári. Mikil
áskorun hafi verið að fjármagna þá
skörpu breytingu.
Þyrfti að prenta mikla peninga
„Ef það ætti að verða enn meiri
halli, vegna slaka í ríkisfjármálum
eins og við leggjum til í öðrum lönd-
um, myndi fjárlagahallinn ná slíku
stigi að einungis yrði hægt að fjár-
magna hann, raunverulega, með pen-
ingaprentun. Það myndi ógna stöðug-
leika krónunnar alvarlega,“ bætir
hann við. Þess vegna sé sú leið útilok-
uð fyrir Ísland. Ef ekki væri fyrir al-
þjóðlegan stuðning hefði Ísland þurft
að fara í slíkan niðurskurð á næsta ári
að hann hefði gert kreppuna enn
verri.
Þar að auki segir Thomsen að slaki
í ríkisfjármálum á árinu 2009 verði til
þess að auka þörfina fyrir aðhald á
næstu árum eftir það.
Ekkert mis-
ræmi í ræðu
IMF-stjóra
Poul M.
Thomsen
Ísland með minna
svigrúm en aðrir