Morgunblaðið - 24.12.2008, Blaðsíða 24
24 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni
þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum.
Auk þess eru veittir 5.000 Vildarpunktar fyrir allar
keyptar ferðir í leiguflugi með VITA í desember. Þannig
öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins.
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
Skráðu þig í netklúbbinn - VITAferdir.is
Þú getur notað
Vildarpunktana
hjá okkur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
44
59
0
12
.2
00
8
Kanarí í vetur
4. - 21. janúar
Verð frá 109.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
miðað við 2 í íbúð m/1 svefnh. Innifalið: Flug,
flugvallarskattar og gisting. Almennt verð er 119.900 kr.
Roque Nublo
Er einstaklega vel staðsett 3ja stjörnu
íbúðahótel á ensku ströndinni.
Flug fram og til baka
59.000 kr. og 15.000 Vildarpunktar.
Innifalið: Flug fram og til baka til Gran Canaria
og flugvallarskattar. Almennt verð er 69.000 kr.
VITA er í eigu Icelandair Group.
GROUP
SKIPULAGSSTOFNUN hefur bor-
ist tillögur að matsáætlun vegna
mats á umhvefisáhrifum rann-
sóknaborana við Kröflu í Skútu-
staðahreppi, við Gjástykki í Þing-
eyjarsveit, og Þeistarreykjum í
Þingeyjarsveit.
Tillögunar liggja frammi til
kynningar til 14. janúar nk. hjá
Skipulagsstofnun. Athugasemdir
við tillögunar skulu vera skriflegar
og berast eigi síðar en 14. janúar
nk. til Skipulagsstofnunar.
Matsáætlun vegna
rannsóknaborana
STOFNAÐUR hefur verið nýr
styrktarsjóður við Háskóla Ís-
lands sem veitir styrki til nem-
enda í framhaldsnámi í ljós-
móður- og hjúkrunarfræðum.
Stofnframlagið er 25 milljónir
króna sem er gjöf frá Soffíu Þur-
íði Magnúsdóttur sem arfleiddi
Háskólann að meginhluta eigna
sinna.
Nýi sjóðurinn nefnist Minning-
arsjóður Bjargar Magnúsdóttur
ljósmóður og Magnúsar Jónas-
sonar bónda. Undirritun stofn-
skrárinnar fór fram í Aðalbygg-
ingu Háskóla Íslands, en þá tók
Kristín Ingólfsdóttir, rektor skól-
ans, við stofnfénu.
Minningarsjóður Bjargar
Magnúsdóttur og Magnúsar Jón-
assonar er stofnaður af dóttur
þeirra hjóna, Soffíu Þuríði Magn-
úsdóttur, samkvæmt fyrirmælum
í erfðaskrá hennar.
„Stefna hjúkrunarfræðideildar
Háskóla Íslands er að efla fram-
haldsnám til meistara- og dokt-
orsprófs, sem samræmist stefnu
Háskólans, enda vaxtabroddur
hverar fræðigreinar fólginn í
framhaldsnemendum hennar.
Minningarsjóður Bjargar Magn-
úsdóttur og Magnúsar Jónssonar
er því mikill stuðningur við fram-
haldsnema í ljósmóður- og hjúkr-
unarfræði,“ segir í tilkynningu.
Sjóður Nýi styrktarsjóðurinn er stofnaður til minningar um hjónin Björgu
Magnúsdóttur og Magnús Jónasson. Stofnfé er 25 milljónir króna.
HÍ fær 25 milljónir til að styrkja ljósmæður
og hjúkrunarfræðinga til framhaldsnáms
FULLTRÚAR D-lista í bæjarstjórn
Árborgar hafa lagt fram tillögu um
að bæjarfulltrúum sveitarfélagsins
yrði fækkað úr níu í sjö. Slíkt er
heimilt samkvæmt lögum, enda íbú-
ar í sveitarfélaginu vel innan við
9.999 manns. Þá leggja sjálfstæð-
ismenn til að bæjarstjóri sveitarfé-
lagsins sé ekki á launum sem bæði
bæjarfulltrúi og bæjarstjóri á sama
tíma, eins og nú er. Ákveðið var að
fresta afgreiðslu málsins til 14. jan-
úar. Tillögurnar voru lagðar fram á
fundi bæjarstjórnar þar sem rætt
var um fjárhagsáætlun.
Vilja fækka
bæjarfulltrúum
SÆNSKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja enn frekar fjárhagslega
stöðu sænsk-íslenska samstarfssjóðsins en hann hefur árlega úthlutað
ferðastyrkjum vegna verkefna á sviði menningar, menntunar og vísinda í
löndunum tveimur. Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn hefur það að mark-
miði að efla samvinnu milli Íslands og Svíþjóðar. Sænska ríkisstjórnin hef-
ur ákveðið að veita aukalega 400.000 SEK sem mun gera sjóðnum kleift að
úthluta styrkjum tvisvar á ári, þ.e. 1. febrúar og 1. september ár hvert, auk
þess sem ferðastyrkir munu hækka í 7.000 SEK. Þá er ætlunin að nota
hluta fjárhæðarinnar til að styrkja íslenska þátttakendur í norrænum
verkefnum auk íslenskrar þátttöku í verkefnum í Svíþjóð. Er það vilji
sænsku ríkisstjórnarinnar að styrkja samstarfið á milli Íslands og Svíþjóð-
ar enn frekar til að minnka líkurnar á að fjárhagsleg niðursveifla komi nið-
ur á þeim góðu verkefnum sem unnin eru í samstarfi Íslendinga og Svía.
Frekari upplýsingar um sænsk-íslenska samstarfssjóðinn er að finna á vef
Norræna félagsins www.norden.se/island.asp
Styrkja frekar sænskt-íslenskt samstarf
Í FJÁRHAGSÁÆTLUN fyrir vel-
ferðarsvið Reykjavíkurborgar fyrir
árið 2009 er grunnfjárhæð fjár-
hagsaðstoðar hækkuð um 16,35%
og er gerð að bundnum lið til að
tryggja fjárhagsaðstoð fyrir þá sem
eiga til þess rétt. Gert er ráð fyrir
allt að 7% atvinnuleysi og að fjár-
hagsaðstoð nemi allt að 2,1 millj-
arði króna sem 87% hækkun fram-
laga á milli ára.
Lögð er sérstök áhersla á aðstoð
vegna barna og húsnæðismála. Í
samræmi við áherslur borgarstjóra
er grunnþjónusta varin, störf varin
og gjaldskrár ekki hækkaðar.
Framlög til velferðarmála nema 9,1
milljarði króna sem er nær 20%
hækkun framlaga á milli ára.
Velferðarmál varin
STUTT
Eftir Atla Vigfússon
Reykjahverfi | „Það er gaman að fara hér upp í fjallið
til þess að finna jólatré til þess að hafa í stofunni og
skreyta það síðan mjög flott með allri fjölskyldunni,“
segir Harpa Lind Pálsdóttir, 10 ára, sem á heima á
Hveravöllum í Reykjahverfi en hefð er fyrir því að
fara og finna tré í brekkunni ofan við bæinn rétt fyr-
ir hátíðina. „Trén eru mjög falleg og það er líka
gaman að leika sér í skóginum,“ segir Harpa Lind
ennfremur og hlakkar mikið til jólanna.
Byrjað var að planta í Reykjafjall sem er fyrir ofan
bæinn árið 1974 og þar eru nú nokkrar þúsundir
trjáa sem setja mikinn svip á bæinn og veita auk þess
mikið skjól fyrir veðri og vindum. Mjög hefur færst í
vöxt að bændur og landeigendur í Þingeyjarsýslum
rækti skóg og mjög margir geta nú þegar notað sín
eigin tré til þess að hafa á jólunum.
Á síðasta ári var plantað um 80 þúsund greni-
plöntum í Suður-Þingeyjarsýslu. Til stendur að planta
miklu á næsta ári en góður vöxtur í trjánum hefur
orðið til þess að fleiri og fleiri hafi áhuga á því að
koma sér upp jólatrjáaskógi, ekki bara handa sjálfum
sér, heldur líka til þess að geta gefið vinum og
vandamönnum jólatré enda er það mjög góð íslensk
jólagjöf.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Gaman að finna jólatré í skóginum
Uppskera af trjárækt í Reykjafjalli til byggða
Gaman Harpa Lind Pálsdóttir hefur mjög gaman af því að fara í skóginn og finna jólatréð.
Í dag, aðfangadag, kl. 18 er
stofnfundur WA-samtakanna
(Workaholics Anonymous) á Ís-
landi. Stofnfundur er haldinn í
Borgartúni 6, jarðhæð. Allir
áhugasamir eru velkomnir, hvort
sem þeir telja sig eiga við vinnu-
fíkn að etja eða vilja skoða þá
lausn sem er í boði.
WA-samtökin byggja á tólf
reynslusporum og tólf erfða-
venjum WA-samtakanna auk ann-
arra bataverkfæra sem eru í
boði. Á fundum er nafnleynd og
allt sem sagt er á fundum er
trúnaðarmál.
Stofnfundur
vinnufíkla