Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 31

Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 31
Fréttir 31VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Þetta helst ... ● Crossroads Partners og Annata hf. hafa gengið frá samningi um sölu á Microsoft Dynamics AX-hugbúnaðar- kerfinu fyrir um 350 milljónir króna til tveggja óskyldra fyrirtækja í Bandaríkj- unum og Kólombíu. Hugbúnaðarkerfið er viðskiptakerfi sem vinnur með Microsoft forritum og er sérsniðið að fyrirtækjum í bílaiðnaði. Fyrri samningurinn var gerður við Navitrans í Kolombíu og hljóðar upp á 150 milljónir króna og sá síðari við Rod- man LLC í Dallas upp á 200 milljónir. Rodman er eitt stærsta verktakafyrir- tækið í Texas. Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Annata, segir samningana mikilvægan árangur fyrir íslenskan hugbúnaðar- iðnað og viðurkenningu hans erlendis. Íslensk lausn seld á 350 milljónir króna Glitnir getur ekki farið með virkan eignarhlut í Milestone Sænska fjármálaeftirlitið þarf að samþykkja alla sem fara með virkan hlut Morgunblaðið/Atli Stjórnendur Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, og Karl Wernersson, einn eiganda félagsins. FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is HVORKI gamli né nýi Glitnir geta farið með virkan eignarhlut í Mod- erna Finance A.B., dótturfélagi Milestone, þar sem ekki eru taldar líkur á því að sænska fjármálaeft- irlitið (FI) myndi samþykkja slíkt. Öll meginstarfsemi Milestone er í Svíþjóð og íslenskar eignir félagsins heyra undir Moderna, þar á meðal Sjóvá og Askar Capital. Því fer FI með allt samræmt eftirlit með eign- um Milestone og þarf að samþykkja hvort að aðilar geti farið með eign- arhluti í skráðum og eftirlits- skyldum félögum. Milestone getur átt virka hluti FI hefur hins vegar þegar sam- þykkt að Milestone geti farið með virkan eignarhlut í sænsku fjár- málafyrirtæki og því herma heim- ildir Morgunblaðsins að stærstu lán- ardrottnar telji farsælustu leiðina til að halda eignum Milestone í rekstri sé að láta fyrri eigendur fara áfram með stjórn félagsins. Glitnir er helsti lánardrottinn Milestone og er með veð í hlutabréfum Moderna. Líkt og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu undanfarna daga er flókin endurskipulagning á fjárhags- legri uppbyggingu Milestone á loka- stigi. Hún gerir ráð fyrir því að nú- verandi eigendur félagsins, Karl og Steingrímur Wernerssynir, og stjórnendur þess reki það áfram. Eignir Milestone eru í dag metnar á 60 milljarða króna en skuldir þess á 115 milljarða króna. Lánar- drottnar munu, samkvæmt þessari leið breyta 53% krafna sinna í lán, og afgangur krafnanna breytist í rétt til að eignast hlutabréf í Mile- stone. Núverandi eigendur eiga ekk- ert í félaginu miðað við þetta verð- mat en gætu fengið 13 % eignarhlut ef eignir hækka umfram þessa 60 milljarða króna. Heimildir Morg- unblaðsins innan Glitnis herma að með þessum hætti telji skilanefnd bankans að sem mest verðmæti ná- ist til baka. Ástæðan fyrir því að gamli Glitn- ir, og skilanefnd hans getur ekki far- ið með virkan eignarhlut í Moderna er vegna þess að hann er þrotabú. Slík geta ekki farið með virkan eign- arhlut í eftirlitsskyldum félögum. Ekki er heldur talið gerlegt að færa eignir Milestone inn í nýja Glitni þar slíkur eignarhluti yrði mjög íþyngjandi fyrir banka með eigið fé upp á einungis 110 milljarða króna, en eignir Milestone eru í dag metnar á 60 milljarða króna. Í HNOTSKURN »Flókin endurskipulagningá uppbyggingu Milestone stendur nú yfir. »Eignir félagsins eru metn-ar á 60 milljarða en skuld- ir félagsins á 115 milljarða. »Núverandi eigendur Mile-stone, Karl og Steingrímur Wernerssynir, eiga ekki neitt í félaginu miðað við þetta verð- mat en fá 13 prósent eignar- hlut ef eignir hækka umfram 60 milljarða. »Lánveitendur fá að með-altali 53 prósent krafna sinna breytt í lán og 47 pró- sent þeirra breytast í rétt til hlutabréfakaupa í félaginu. BANDARÍSKA álfélagið Alcoa er að yfirtaka 50% eignarhlut norska fyrirtæk- isins Orkla í ál- fyrirtækinu El- kem Aluminium, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu El- kem. Alcoa og Orkla skipta á hluta- bréfum, því í stað bréfa í Elkem fær Orkla 45% hlut Alcoa í álfram- leiðslufyrirtækinu Sapa Profiles í Bandaríkjunum. Verður Sapa þá að fullu í eigu Orkla sem átti fyrir 55% hlut. Elkem rekur einnig járnblendi- verksmiðjuna á Grundartanga og ná þessi viðskipti ekki til hennar. Alcoa rekur meðal annars álverið Reyðaál og hefur verið að kanna möguleikann á að reisa álver á Bakka við Húsavík. gretar@mbl.is Alcoa eign- ast áleiningu Elkem Alain Belda, for- stjóri Alcoa.                ! !      !"# $" %  &'()$" *"+  ) ", -   .#  '()$" / )  % $" 0 $" 12345 16 7% 8"9$" :$"    !6 6 #! ; < !6 6 #26(2=8 + %  8>(< %  5?$ $"      @6<! @( *%'  $" * )  $"  !  "        ! ! !!!                          A  )6   B 9(C( D / )1    7 7    7        7 7 7        7 7 7 E E E 7 E 7 E E  E  E 7 E E  E 7 7 E E E E 7 E 7 E E  E  E 7 E E E E E 8&   )6 7  7 7 7  7 7 7 7 F 6            7                         !B !B !B 40G 40G  ! " # H H 40G &%G $  # # H H F(;I( 5  $ $ " " H H 8B1+ F!G $ $! # " H H 40G' 40G   " " H H FRÉTTASKÝRING Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is SÚ ÁKVÖRÐUN stjórnar Kaup- þings frá 25. september sl. að fella niður persónulegar ábyrgðir vegna lána til lykilstjórnenda bankans er mögulega tekjuskattskyld, sam- kvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra. Samkvæmt 7. gr. laga um tekju- skatt teljast skattskyldar tekjur hvers konar gæði, arður laun og hagnaður sem skattaðila hlotnast og metin verða til peningaverðs og skiptir ekki máli hvaðan þær stafa og í hvaða formi þær eru. Ívilnunin skattskyld Í grein Elínar Ölmu Arthursdótt- ur í nýjasta tölublaði Tíundar, tíma- rits embættis ríkisskattstjóra, segir að eftirgjöf skulda launamanns við launagreiðanda sé almennt skatt- skyldar tekjur í hendi launamanns- ins sem skattleggja beri á sama háttt og hverjar aðrar launatekjur. Þær upplýsingar fengust hjá emb- ættinu að grein Elínar og þau sjón- armið sem þar eru reifuð sé opinber afstaða embættisins þegar komi að þessu álitaefni. Ef skuldir eru felldar niður telst ívilnunin sem í slíku fellst skatt- skyldar tekjur á grundvelli laga um tekjuskatt nema í vissum tilvikum, t.d. þegar eftirgjöfin tengist gjald- þroti viðkomandi einstaklings eða nauðasamningum. Ívilnun sú sem fólst í ákvörðun stjórnar Kaupþings frá 25. september sl. um að fella nið- ur persónulega ábyrgð hjá stjórn- endum Kaupþings, sem ekki er hægt að túlka öðruvísi en sem niðurfell- ingu skulda, fellur ekki undir slík til- vik og er því skattskyld á grundvelli laga um tekjuskatt. Höfðu réttmætar væntingar Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu á laugardag átti sú ákvörðun nokkurn aðdraganda og sýnt hefur verið fram á að þeir stjórnendur sem í hlut áttu höfðu réttmætar vænting- ar um að persónulegar ábyrgðir þeirra yrðu felldar niður, með hlið- sjón af fyrri ákvörðunum stjórnar bankans og samþykktum aðalfund- ar. Á grundvelli sérstakrar álits- gerðar sem unnin hefur verið um niðurfellingu persónulegrar ábyrgð- ar vegna lána til stjórnenda Kaup- þings kemur fram að ákvörðunin sé riftanleg en við riftun verði að miða við verðmæti bréfa í bankanum hinn 25. september þegar ákvörðunin var tekin, en þá var gengi hlutabréfa í bankanum 739. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort ákvörðuninni verði rift, en ef hún stendur þurfa þeir sem fengu niðurfellingu að greiða tekjuskatt af þeim ávinningi sem þeir hljóta á grundvelli hennar. Niðurfelling til stjórnenda Kaupþings tekjuskattskyld Stjórnendur gætu þurft að greiða 35,72% skatt af milljörðum Í HNOTSKURN »Talið er að starfsmennKaupþings skuldi bank- anum 40-50 milljarða króna. »Verði úr að ákvörðunstjórnar Kaupþings frá 25. september sl., um niðurfell- ingu persónulegra ábyrgða, standi verða þeir stjórnendur sem í hlut eiga að greiða 35,72% tekjuskatt af þeim ávinningi sem þeir hljóta á grundvelli ákvörðunarinnar. – Stéttarfélag fagfólks í byggingaiðnaði Borgartún 30 105 Reykjavík Skipagata 14 600 Akureyri Sími: 535-6000 Fax: 535-6020 fagfelagid@fagfelagid.is www.fagfelagid.is JÓLABALL Fagfélagið óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Megi nýja árið færa ykkur gæfu og frið Jólaball Fagfélagsins og FIT verður haldið í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6, þriðjudaginn 30. desember kl. 13-15. Dansað verður í kringum jólatréð og jólasveinarnir koma í heimsókn með góðgæti handa börnunum. Verð fyrir fullorðna kr. 1000 og frítt fyrir börnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.