Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 33
Ááramótum er gaman aðleika sér aðeins með förð-unina og vera svolítiðdjarfur,“ segir Björg Al-
freðsdóttir, förðunarmeistari hjá
MAC, þegar hún er spurð um förð-
unina á fyrirsætunni Helgu Ómars-
dóttur.
„Ég valdi að nota þrjá liti saman
til að ná fram djúp-blásvörtum lit á
augun, bláum, silfurlitum og svört-
um,“ segir Björg. „Blár augnskuggi
er kannski ekki það fyrsta sem kon-
um dettur í hug að nota við svona
förðun en hann er mjög fallegur
þegar búið er að blanda honum
saman við silfurlitaðan grunn og
svartan augnskugga, þá kemur
fram þessi djúpi litur sem er svo fal-
legur og silfurliti grunnurinn kallar
fram bláa tóninn.“
Þegar Björg er spurð hvað sé
best að gera til að láta förðun hald-
ast vel allt kvöldið og fram yfir mið-
nætti segir hún að best sé að huga
vel að undirbúningnum. Bera á sig
rakakrem og leyfa því að fara vel
inn í húðina. „Ef farðinn er settur of
snemma á andlitið eftir að búið er
að setja á það rakakrem er hætta á
að hann fljóti ofan á andlitinu og
endist því ekki eins lengi. Til að láta
augnskugga haldast vel á augunum
og varna því að hann smitist er gott
að setja þunnt lag af kremaugn-
skugga yfir allt augnlokið, því hann
gefur gott grip undir augnskuggana
og þeir haldast betur á.“
Þegar verið er að nota svona
dökka liti er mjög gott ráð að setja
farðann á eftir að búið er að klára
augnmálninguna, að sögn Bjargar.
„Því yfirleitt fellur niður augn-
skuggi á svæðið undir augunum og
erfitt getur verið að ná honum í
burtu. Ef þessi auka augnskuggi er
ekki hreinsaður upp myndar hann
skugga undir augunum sem mik-
ilvægt er að forðast,“ segir Björg.
Aðra förðun andlitsins er best að
hafa látlausa. Nota ljósan varalit og
leyfa augunum að njóta sín, huga
vel að skyggingu og lýsingu í andlit-
inu. Skyggja með brúnleitum kinna-
lit undir kinnbeinin og nota glitr-
andi púður eða krem ofan á
kinnbeinin til að draga þau fram.
Passa að blanda allt vel saman
þannig að engar skarpar línur
myndist. Gott er að fara varlega í
skyggingar og bæta frekar við
smátt og smátt þannig að skygging
verði ekki gróf, segir Björg að lok-
um. sibba@mbl.is
Kjóll Designer Remix Collection frá De-
benhams.
Ljósmyndir Sissi |
www.sissi .is
Seiðandi
miðnæturblámi
Djúpur litur Blátt, svart og silf-
urlitað er allt sem til þarf. Ljós
varalitur, Gel. Augnskuggar, Car-
bon og Persua-sive frá MAC.
Daglegt líf 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Ef þið eruð búnar með förðunina og sjáið að augnskuggi hefur
fallið niður á svæðið undir augunum er gott að setja hyljara
eða farða í eyrnapinna og rúlla upp dökka litnum sem hefur
fallið niður. Með þessari aðferð náið þið augnskugganum upp
að mestu og hægt er að setja aftur hyljara eða farða yfir
svæðið á ný.
Gott ráð frá Björgu
Björg Alfreðsdóttir
Rúnar Kristjánsson sendir þætt-
inum jólakveðju og þakkar sam-
fylgd í rími og stuðlum á árinu:
Lifið heil og hress og glöð,
haldið ljósi í sálum.
Megi allt í ljúfri löð
leika í ykkar málum.
Bjarni Valtýr Guðjónsson yrkir
fallega jólavísu en hann sendi ein-
mitt frá sér skáldsögu fyrir jólin:
Þegar sé ég fagra fönn
fylla laut og skjólin
jarðar stundum bíða bönn
björt þó lýsi jólin.
Ingi Heiðmar Jónsson yrkir;
Fréttabréf Iðunnar:
Helst af brauði að hafa vel.
Hangikjöt að sjóða.
Læri steik og lögg á pel.
Laufabrauðið góða.
Þá Bjargey Arnórsdóttir:
Þó að taki vetur völd
vonir mun ei buga,
jólaföstu kyrrðin köld
kveikir ljós í huga.
Og Hallfríður Benediktsdóttir:
Ljósadýrð um byggð og ból
bærinn skreyttur þar og hér.
Sumir halda heilög jól
frá haustnóttum út desember.
Að síðustu Jói í Stapa:
Ágirndar er klóin klók,
kann á flestar greinar,
en margoft hafa matað krók
Mammons jólasveinar.
VÍSNAHORNIÐ | pebl@mbl.is
Jólin í rími
og stuðlum
!
"
#
#$
%
& !
#
" ! ' !
())*
(+$ $ ,-$))$