Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 34
34 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Lungnasletti, sem talað var um við Ísafjarðardjúp. Undir Eyfjöllum var rætt um jóla- sveinana níu. Fjórir þeirra báru all- sérstök nöfn og hétu þeir Flotsleikir, Gangagægir, Svartiljótur og Svella- brjótur.“ Jóla-Jóhanna og Þráinn Á jólatónleikum fyrir börn koma þau fram sem Jóla-Jóhanna og Þrá- inn. „Jóla-Jóhanna er fullorðin kona sem enn er sannkallað jólabarn í hjarta sínu,“ segir Margrét. „Ég samdi leikgerð utan um hana og Þráinn kom með tónlistina. Jóla-Jóhanna er sérleg áhuga- manneskja um allt sem viðkemur jólunum. Hún er óhrædd við að vera jólaleg til fara og er líka kát, rögg- söm og ráðagóð og sumir myndu segja að hún minnti örlítið á Mary Poppsins að því leytinu til að hún hefur sérlega gott lag á að ræða við bæði börn og dýr. Og hún þekkir sérstaklega til jólasveinanna þrett- án. Hún á heima úti í sveit ásamt hænum, kindum, hestum, hundum og köttum og býr við rætur fjalls nokkurs sem hún horfir oft á út um stofugluggann. Hver veit nema hún sjái þá sveinana þrettán koma þrammandi niður fjallshlíðina.“ Krakkar mínir, komið þið sæl „Þegar við fórum yfir það hvaða lög færðu okkur hátíðleika jólanna og þá stemingu sem veitir okkur flestum gleði og tilhlökkun, kom í ljós að við vildum leita aftur til gam- alla og góðra gilda og hverfa frá mesta glysinu sem setzt hefur á að- draganda jólanna í seinni tíð. Við vildum hverfa frá þeirri af- þreyingarsíbylju sem hljómar í eyr- um okkar á aðventunni og flytja þess í stað ögn hátíðlegri lög og texta. Þetta eru lög sem minntu okkur á jólaundirbúning á bernskuheimilum okkar og gáfu til kynna að jólin væru að koma; þetta eru rammíslenzk jólalög í þjóðlegum búningi frá sjötta og sjöunda áratugnum í anda Hauks Mortens og Ómars Ragn- arssonar. Þá voru jólaplöturnar sett- ar á fóninn og börnin hlustuðu spennt og horfðu á plötuna snúast hring eftir hring. Þeim var gefinn tími til þess bara að sitja, hlusta og sjá fyrir sér allar þær ótal myndir sem að birtust með tónunum. Og þegar „Krakkar mínir, komið þið sæl,“ ómaði um stofuna með hvellri jólasveinarödd Ómars Ragn- arssonar, var næsta víst að jólin voru að koma. Okkur langar að færa börnunum gömul og góð jólalög með innihalds- ríkum textum, sem þau þekkja ef til vill lítið sem ekkert og fá þau til að skynja aðra tíma en ríkja í Kringl- unni og Smáralind, þegar barnið spyr móður sína í byrjun nóvember: Mamma eru jólin komin? Nei. Af hverju heldurðu það? Af því að það er búið að jólaskreyta gluggana í Smáralind.“ Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Jóladúettinn er MargrétKaaber leikkona og ÞráinnÁrni Baldvinsson, gítarleik-ari og tónlistarkennari. Þau hafa flutt sérstaka jóladagskrá á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Grýla og börnin tuttugu „Þetta er 40 mínútna söng- og sögudagskrá þar sem við segjum frá jólahaldi fyrr á tíð og veltum upp ýmsum staðreyndum úr þjóðsögum um Grýlu og jólasveinana. Börnin hennar Grýlu báru ýmis nöfn; Skrápur og Skjóða, Þröstur og Þrándur, Botni, Brynnki, Böðvar og Höttur, Stútur og Stefnir, Stikill, Flaska, Ausa og Askur, Koppur, Kyppa, Musull og Mukka. Tví- burana Sighvat og Surtlu ól hún í elli, en þau sofnuðu bæði. Börnin tuttugu átti Grýla með seinni eiginmanni sínum, Leppalúða en áður en Leppalúði og börnin tutt- ugu komu til sögunnar, bjó Grýla undir Arinhellu ásamt fyrri manni sínum, Bola. Þau voru mannætur hinar mestu og þótti hnossgæti að borða allt ungviði sem skáldið kvað: Grýla og Boli bæði hjón Börn er sagt þau finni Þau er hafa svæsinn són til sorgar mömmu sinni. Boli, (Boli) bangar á dyr, ber hann fram með stöngum; bíta vill hann börnin þau sem belja fram í göngum. Ætíð þótti meira koma til Grýlu en Bola. Hann andaðist fjörgamall úr elli eftir að hafa lengi legið í kör.“ Svartiljótur og Svellabrjótur Margrét segir, að jólasveinarnir hafi gengið undir ýmsum nöfnum. „Úr Dölunum þekktust jólasvein- ar sem kallaðir voru Fannafeykir, Kleinusníkir og Lummusníkir og í Staðarsveit á Snæfellsnesi var talað um jólasveinana Smjörhák, Flautu- þyril, Flotgleypi og Rjómasleiki. Í Barðastrandarsýslu töluðu menn og konur sérstaklega um einn jólasvein sem sagður var gapa yfir eldhússtrompinn og svelgja í sig reykinn af hangiketinu. Sá var nefndur Reykjarsvelgur sem í dag er betur þekktur undir nafninu Ket- krókur. En sumir sögðu líka að hann lemdi börn með blautum lungum og jafnvel að lungun héngju utan á hon- um en sömu sögu er að segja um jólasveininn Lungusletti eða Ljósmynd/Christopher Lund Jólabörn Jóla-Jóhanna og Þráinn flytja rammíslenzk jólalög í þjóðlegum búningi. Þau eru Jóladúettinn, þegar áheyrendurnir eru fullorðnir, og Jóla-Jó- hanna og Þráinn, þegar þau skemmta yngstu kyn- slóðinni. Koppur, Musull og Mukka Í HNOTSKURN »Margrét Kaaber lauk leiklistarnámi frá The Arts Educational School of Acting 2001. Hún hefur leikið hjáÞjóðleikhúsinu, Útvarpsleikhúsinu, Möguleikhúsinu og Stoppleikhópnum og starfað sem leikstjóri og að- stoðarleikstjóri. »Hún er einn af stofnendum leikhópsins Thalamus, sem stóð að leiksýningum í Reykjavík, London, Edinborgog Ósló. »Hún lagði stund á tónlistar- og söngnám. Undanfarið hefur hún kennt leiklist og leikstýrt í grunn- og framhaldsskólum meðfram leikgerðum og handritaskrifum. »Þráinn Árni Baldvinsson stundaði nám við tónlistarskóla FÍH 1993-97. Var tónmenntakennari við Borga-skóla í Grafarvogi 1999-2000, umsjónar- og tónmenntakennari við Smáraskóla í Kópavogi 2001-2007 og gítarkennari við Tónlistarskóla Garðabæjar 2002-2005. Hann er tónmennta- og umsjónarkennari í Norðlinga- skóla. »Hann hefur kennt á fjölmörgum gítarnámskeiðum og við Gítarskóla Íslands. Hann hefur leikið inn á hljóm-plötur og spilað með mörgum af fremstu listamönnum íslenzkum. HINN þekkti skartgripahönn- uður Hendrikka Waage var að senda frá sér nýja línu þar sem inn- blásturinn er frá Tíbet og andlega leiðtoganum Dalai Lama. Línan er úr bænaperlum frá Tíbet og silfurkúlum. „Það var mikið gert grín að mér þegar ég var táningur því á meðan vinkonur mínar lágu í ástarsög- unum var ég að lesa bækur Dalai Lama. Ég hef verið einlægur aðdá- andi hans síðan ég var 12 ára. Ég er hrifin af búddatrú þó ég sé ekki þeirrar trúar sjálf,“ segir Hendrikka um innblást- urinn. Hún er einmitt nýkomin frá París þar sem hún sótti friðarráðstefnu (9th World Sum- mit of Nobel Peace Laureates). „Dalai Lama er vanur að mæta en því miður gat hann ekki komið í þetta sinn vegna veikinda.“ Silfrið og perl- urnar, sem Hend- rikka kallar kærleiks- perlur, mynda skemmtilega heild og er hægt að ímynda sér að sá sem beri menið geti handfjatlað það og ígrundað andleg málefni um leið. Þess má geta að Hendrikka hef- ur sérhannað skartgripi fyrir smekkkonuna Dorrit Moussaieff forsetafrú. Hendrikka er búsett í Bretlandi og fást skartgripir henn- ar víða þarlendis og til viðbótar í fleiri löndum Evrópu og einnig Japan. Hér á landi fást gripirnir í Leonard, Hótel Hilton Nordica og úra- og skartgripaverslun Halldórs Ólafssonar á Glerártorgi á Ak- ureyri. ingarun@mbl.is Íslensk hönnun | Skartgripir Innblásturinn frá Tíbet Nýja línan Hendrikka fékk kín- verska stúlku frá Sjanghæ til að sitja fyrir á myndum af nýju línunni með menin um hálsinn. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.