Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 35
Daglegt líf 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Óskum landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þökkum samskiptin á árinu sem er að líða ddd d d d d d d d d d ddd ddd d dd d ddd d ddd dd ddd Af bestu lyst 3 Bókaröðin Af bestu lyst hefur notið hylli og það að verðleikum; í bókunum, sem sú þriðja kemur út fyrir þessi jól, eru uppskriftir sem eru auðveldar, eða í það minnsta hæfilega erfiðar, og í góðu jafnvægi hvað varðar næringu og hollustu. Uppskriftirnar í þriðju bókinni eru allar eftir Nönnu Rögnvaldardóttur og vel heppnaðar. Þetta er engin æv- intýrabók, heldur frekar bók fyrir hversdagmat, sem getur reyndar líka verið dálítið ævintýralegur á köflum. Veisla með fjölskyldu og vinum Ein af metsölubókum þessa árs er Veisla með fjölskyldu og vinum, en út- gefandi bókarinnar er Nóatún. Jón Kristinn Ásmundsson, sem starfar í vöruþróunardeild Nóatúns semur uppskriftirnar í bókinni. Þetta er ansi mikil bók, um 250 síður, og frágangur á henni einkar vel heppnaður og myndir góðar. Markhópur bókarinnar er greinilega fólk sem hefur einhverja reynslu af að elda, því leiðbeiningar eru ekki ýtarlegar, en þær er nógar fyrir alla sem eitthvað hafa fengist við matseld. Ef eitt- hvað er út á bókina að setja þá er sú mikla áhersla sem lögð er á kjötrétti. Þannig eru í bókinni 64 upp- skriftir að kjöt aðalréttum, en ekki nema tólf fiskuppskriftir og tvær að grænmetisréttum. Þetta skýrist sjálf- sagt helst af því að í bókinni eru veislu- uppskriftir, en gaman hefði verið að sjá aðeins meiri hugmyndaauðgi í fisk- réttum, að ekki sé talað um grænmet- isréttina. Súkkulaðiást Súkkulaði er til margs brúklegt, eins og kemur fram í prýðilegri mat- reiðslubók, Súkku- laðiást. Í bókinni er ágætis samantekt á sögu súkkulaðis á Ís- landi og fléttað inn í það er ýmis fróðleikur um þessa ódá- insfæðu og hvernig sé best að með- höndla hana. Uppskriftirnar eru svo hver annarri girnilegri og spanna allt frá gamaldags drykkjarsúkkulaði í mexíkóskan mole. Afskaplega vel heppnuð bók. Náttúran sér um sína Rúnar Marvinsson er goðsagna- kenndur sem matreiðslumaður allt frá því hann sló í gegn á Hótel Búðum og síðar með Við Tjörnina. Hann er nátt- úrutalent í matreiðslu og hefur þann hæfileika að sjá sam- hengi þar sem aðrir sjá bara ósamstætt hráefni. Náttúran sér um sína er einkar skemmtileg mat- reiðslubók eftir Rún- ar og Áslaugu Snorradóttur. Hún er uppfull af frá- bærum uppskriftum og grúa skemmti- legra mynda, ýmist eru myndir af mat eða matreiðsluaðferðum, nú eða myndir af Rúnari við ýmsa iðju og fjöldi svipmynda af hráefni og fólki. Rúnar er meistarakokkur með skýrt afmarkaða lífsspeki þegar matreiðsla er annars vegar, en hann er líka skemmtilag hrár karakter sem skilar sé vel í bókinni og einnig kímni hans sem birtist í skemmtilegum frásögn- um. Sælkeraferð um Frakkland Sælkeraferð um Frakkland eftir þær Sigríði Gunnarsdóttur og Silju Sallé birtir 135 uppskriftir af frönsk- um mat flokkaðar eftir landsvæðum. Fyrir vikið verður þessi bók að eins- konar landkönnun fyrir bragðlauka og bráðvel heppnuð sem slík. Hver kafli hefst með stuttri héraðs- lýsingu með mat- arsögulegu yfirliti. Þann texta hefði reyndar mátt vinna mun betur, en ekkert er út á uppskriftirnar að setja; það ættu allir að ráða við þær og geta þannig hitað sig upp fyrir næstu Frakklandsferð, nú eða látið sig dreyma. Úr ýmsum áttum BÆKUR Matreiðslubækur Af bestu lyst 3, Vaka Helgafell bbbbn Veisla með fjölskyldu og vinum, Nóatún bbbnn Súkkulaðiást, Nói Síríus bbbbn Náttúran sér um sína, Heimur bbbbb Sælkeraferð um Frakkland, Salka bbbnn Matarlist Ein mynda Áslaugar Snorradóttur úr Náttúran sér um sína.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.