Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 39

Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 39
Daglegt líf 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Á miðju sumri 1945 bað forstjóri Flugfélags Ís- lands, Örn Johnson, yf- irflugmann félagsins, Jóhannes R. Snorra- son, að skjótast niður í Nauthólsvík og taka þar við Norseman-sjóflugvél sem félagið hafði keypt og skyldi af- hent þennan dag. Kom nú flugvélin að landi, og fóru flugmennirnir í þrjár lendingar með Jóhannesi, sigldu síðan að bryggj- unni, stukku í land og sögðu honum að æfa sig sjálfur. Þar með voru þeir horfnir. Þetta voru bandarískir flug- menn, og hafði flugvélin þjónað hernum í Hvalfirði á styrjaldarár- unum. Flugvélin fékk einkennisstaf- ina TF-ISV og síðan nafnið Dynfaxi. En starfsmenn Flugfélagsins köll- uðu hana oftast Hrossið. Um svipað leyti fengu Loftleiðir tvær Norsem- an-flugvélar til innanlandsflugs. Síld og farþegar Þessi flugvél Flugfélagsins var mörg sumur við síldarleit, og var þá bækistöð hennar Akureyri, en var svo í farþegaflugi á öðrum árstímum. Haustið 1946 var ég staddur í flugturninum á Reykjavík- urflugvelli. Kallaði þá flugstjóri Nor- seman-flugvélarinnar TF-ISV og spurði hvort hvasst væri orðið í Reykjavík, en hann var þá að koma yfir Álftanes á Mýrum og sagði: „Hér er orðið rokhvasst.“ „Jú,“ var svarið úr turninum, „vindur er úr 120° um 35 hnútar, og braut í notkun er 14.“ „Já takk,“ svaraði flugstjórinn sem þá var Hörður Sigurjónsson, „en ég ætla nú að lenda á Skerjafirð- inum.“ Vakti þetta samtal kátínu. Fyrsta árið flaug Smári Karlsson þessari flugvél og svo síðar m.a. Jón Jónsson og Ólafur Jóhannsson. Laust fyrir jól, nánar 13. desember 1945, flaug Smári Karlsson til Ak- ureyrar með vörur og póst. Með honum fór ungur piltur, Haraldur Stefánsson, mikill flugáhugamaður og síðar flugvélstjóri hjá Flugfélag- inu. Degi var tekið að halla, þegar þeir undirbjuggu brottför frá Ak- ureyri. Var nú flogið beint suður úr Eyjafirði. En svo fór að skammt norðan Þingvalla var farið að snjóa og komið rökkur. Var því ekki annað að gera að snúa við til Akureyrar, en lent var á Pollinum í svartamyrkri. Veður hélst gott, en fjarskipta- samband var ekkert við Akureyri á þessum árum. Þar tepptust þeir fé- lagar þar til á aðfangadag jóla. Var nú flugvélin bundin við bryggjur á Tanganum, en litlu munaði að hún endaði ævi sína þar í þeim veðraham sem í hönd fór þessa vetrardaga. Einn daginn brast á stórviðri. Starfsmaður Flugfélagsins, Ari Jó- hannesson, kunni vel til verka við slíkar aðstæður, sótti tíu hjóla trukk og dró klakabrynjaða flugvélina upp í fjöru og bjargaði henni frá eyði- leggingu. Smári flugstjóri fékk ís- kalt sjóbað í öllum látunum en Ari dreif í hann „sénever“ þegar heim kom. Eldhert hugrekki Við Haraldur áttum saman skemmtilegan tíma á Akureyri, og varð okkur vel til vina. Síðar áttum við eftir að fljúga saman, fyrst á Ka- talína-flugbátum og síðar á Bo- eing-727- þotum Flugfélagsins. En Smári Karlsson sem á sér eldhert hugrekki, er enn að fljúga og nú sér til gamans. Vissulega var gæfa með honum, og er saga hans stórmerk. Á málverki af Norseman- flugvélinni, sem málað var af Wilfred Hardy eftir fyrirsögn Snorra Snorrasonar, sést fjallið Snæfugl. Þýsk Heinkel-flugvél flaug á fjallið í maí 1941. Talið er að flugvélin hafi verið að svipast um eftir breskum herskipum, því að þetta maíkvöld voru þýsku orrustuskipin Bismarck og Prins Eugen á hraðri siglingu austur af landinu í sinni sögulegu ferð norður og síðan suður Græn- landshaf. Þar lentu þau í orrustu við bresku orrustuskipin Hood og Prins of Wales sem lauk með því að Hood var sökkt. „Ætla að lenda á Skerjafirðinum“ Ljósmynd/Snorri Snorrason Sjóflugvélin Smári Karlsson og Haraldur Stefánsson halda hér á mynd af Norseman-flugvélinni sem er á flugi inn Reyðarfjörð í vestanstórviðri og er varðskipið Ægir á siglingu inn fjörðinn. Í baksýn norðan fjarðar er fjallið Snæfugl, sem þýsk Heinkel-flugvél flaug á í maí 1941. Á árdögum flugsins á Íslandi var búnaður og fjarskipti ekki eins full- komin og nú. Snorri Snorrason, fyrrverandi flugstjóri, segir af köpp- um sem létu slíkt ekki stöðva sig. „Þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu. Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og færðu því gjafir, gull, reykelsi og myrru,“ segir í öðrum kafla Matteusarguðspjallsins, sem hef- ur verið óaðskiljanlegur hluti jólanna. Þótt frá- sögnin sé ein sú þekktasta í Biblíunni vita trú- lega ekki allir hvers konar fyrirbæri myrra er – eða mirra eins og það er líka skrifað samkvæmt Íslenskri orðabók. Fáir fara þó í grafgötur um að vitringarnir völdu Jesúbarninu bestu gjafir, sem völ var á. Gullið er ennþá verðmætasti málmur heims og til margra hluta nytsamlegur. Reykelsi og myrra eru af sitt hvorum meiði, en hvort tveggja ilmandi blöndur af gúmmíi og harpeis. Á fyrstu öld eftir Krist var pundið af gulli og reykelsi á svipuðu verði, en myrra sex til sjö sinnum dýrari. Líkt og reykelsið er myrran unnin úr berki trjáa í Austur-Afríku, Sádi-Arabíu og á Ind- landi. Börkur trjánna er tvískiptur og er ytra lagið pappírskennt. Við snertingu koma í það sár, sem þá fyllast af kvoðu sem þykknar út í andrúmsloftinu. Síðan renna dropar úr æðum barkarins og harðna og dökkna með tímanum eða þar til þeir detta af eða eru skornir burt og malaðir í duft. Á biblíutímum voru reykelsi og myrra notuð á svipaðan hátt, ýmist brennd, vegna ilmsins, jafnt á heimilum sem í trúarlegum athöfnum eða notuð í lækningasmyrsl, snyrtikrem eða ilmvötn. Sama er uppi á teningnum núna auk þess sem stykki úr harðri myrru er notað á boga strokhljóðfæra til þess að auka viðloðun hans við strenginn. Myrra í tónlist Þekktasta saga Biblíunnar Vitringarnir þrír, olía á striga. Málverkið er eftir ítalska listmál- arann Jacopo Bassano (1515-1592). Það er talið vera frá árinu 1562. Myrra Myrra er þykk, gul viðarkvoða unnin úr hitabeltistrjám, Commiphora spp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.