Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 42

Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Veriðóhræddir,því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.“ Þetta voru orð engilsins, sem boðaði skelkuðum fjárhirðunum á Betlehems- völlum fagnaðarerindið um fæðingu Jesú. Í kvöld og á morgun verða þessi orð flutt hundruðum milljóna kristinna manna um allan heim, jafnmáttug og fyrir tveimur árþúsundum: Ver- ið óhræddir. Yður er frels- ari fæddur. Þessi orð eiga sér enn sterkari hljóm á tímum eins og þeim, sem við lif- um núna. Erfið ár eru framundan. Fyrirheitið um hjálpræði Krists felur ekki í sér að erfiðleikarnir verði teknir frá okkur. En okkur er lofað hjálp til að komast í gegnum þá. Ritn- ingin heitir þeim hvíld, sem erfiða og þunga eru hlaðnir – og launum erfið- isins að lokum. Íslenzka þjóðin hefur í meira en þúsund ár leitað til kirkju Krists í erfið- leikum og átökum, áföllum og hamförum. Á því er engin undantekning nú. Kirkjan sinnir mikilvægu hlutverki í sálgæzlu og stuðningi við fjölskyldur í erfiðleikum. Þar vinna margir óeigingjarnt starf. Kristur getur hjálpað okkur í vandræðum okkar á svo ótalmarga vegu. Ef við hugsum og breytum eins og hann kenndi verða erfiðleikarnir léttbærari. Við eigum að geta orðið sáttari við sjálf okkur, ekki aðeins sem ein- staklingar heldur sem þjóð er lengi hefur sótt leið- sögn í kristna kenningu. Það fer ekki á milli mála að hörmungarnar, sem hafa dunið yfir íslenzkt efnahagslíf, eru að mestu leyti af manna völdum. Einhverjir bera ábyrgðina. En það hefur verið lítið um iðrun í eftirleik efna- hagshrunsins og ennþá minna um fyrirgefningu. Hvort tveggja hefur okkur þó verið kennt. Reiðin, hatrið og hefndar- hugurinn eru heldur ekki upp- byggilegar hugsanir. Þær munu éta samfélag okkar að innan fái þær að verða ráðandi. Hinn kristni boð- skapur er skýr; það er kærleikurinn til náungans sem skiptir mestu máli. Kærleikurinn reiðist ekki og er ekki langrækinn, eins og Páll postuli minnti okkur á. Hann er lang- lyndur og góðviljaður. Hann samgleðst hins vegar sannleikanum. Og eins og Kristur sagði mun sannleikurinn gera okkur frjáls. Reiðinni og hatrinu, sem nú er svo áberandi á Íslandi, verður ekki út- rýmt nema sannleikurinn fái að koma fram óspjall- aður. Það á að vera leiðar- ljós allra sem einhverju ráða. Kristileg samhjálp og náungakærleikur hefur sjaldan átt brýnna erindi en einmitt nú. Velferðar- kerfið okkar byggist á kristnum hugsjónum en okkur hefur hætt til að friða samvizkuna með því að ganga út frá því að með sköttunum okkar sjáum við fyrir þörfum allra þeirra sem standa höll- ustum fæti í samfélagi okkar. Næstu ár er alls ekki víst að við getum leyft okkur að hugsa þann- ig. Við þurfum sjálf að vera vakandi fyrir neyð náungans og leggja okkar af mörkum ef við erum af- lögufær. Við eigum að reyna að standa undir nafni sem kristið sam- félag. Framundan er friður og helgi jólanna. Við skulum öll reyna að hlúa vel að okkar nánustu og nota frí- dagana til að íhuga vel boðskapinn sem býr að baki yfirborðslegu glysi jólahátíðarinnar. Að okkur er í dag frelsari fæddur sem boðar okkur frið og fögnuð. Ef við tökum vel á móti litla drengnum, sem fæddist í Betlehem fyrir meira en tvö þúsund árum, þurfum við ekki að vera hrædd þótt margt sé í óvissu og uppnámi. Hann gengur með okkur á vegi lífsins. Morgunblaðið óskar les- endum sínum og lands- mönnum öllum gleðilegra jóla. Hann gengur með okkur á vegi lífsins}„Verið óhræddir“ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Á gætur maður sem ég hitti á dög- unum og vil skilgreina sem góðan og kristilega þenkjandi jafn- aðarmann – sem hlýtur að vera besta hlutskipti í heimi – sagði mér að það væri nokkuð sama hverja hann hitti, hann færi með fyrir þá orð Thomasar More, hins vitra kanslara Hinriks 8.: „Drottinn, gef mér glaðværð næga svo ég verði ekki öðr- um til leiðinda.“ Á tímum í íslensku samfélagi þegar svo ótal margir eru öðrum til ómældra leiðinda er gott að hafa þessi orð í heiðri og gleðjast yfir lífinu. Ef manneskjan lifði að eilífu gæti hún vissulega gleymt sér löngum stundum í ómældri fýlu og látið umhverfið og náungann fara í óstjórnlega í taugarnar á sér. Rekið svo af sér fýluna og orð- ið kát á ný þegar hún teldi það henta sér. Ódauðleg mann- eskja getur svo auðveldlega leyft sér alls kyns dynti af því að hún hefur allan tímann í heiminum til að vera til. En nú er það svo, eins og okkur er öllum kunnugt, að mann- eskjan er ekki ódauðleg á þessari jörð, þótt hún vildi það mjög gjarnan. Þess vegna er skynsamlegast af henni að nota þann tíma sem hún hefur til að gleðjast yfir því að fá að vera til. Annað er tímaeyðsla og sorgleg sóun á orku. Samt þykir allt of mörgum verulega ófínt og alls ekki við hæfi á krepputímum að vera í góðu skapi og gleðjast. Það er orðinn eins konar lífsstíll í kreppunni að vera fýld- ur og reiður og þykir alveg sérstaklega smart í réttu kreðsunum. Nú ber hver manneskja ábyrgð á lífi sínu og eigin líðan og það er alls ekki hægt að banna fólki að ganga í gegnum lífið í krónískri fýlu og vera öðrum til leiðinda. Það er heldur ekki hægt að meina þessum hópi fólks að rotta sig saman og ganga um hrópandi slagorð til að leggja áherslu á hversu ömurlegt hið hvers- dagslega líf er orðið. En það er ástæðulaust að fagna eins og þar séu nýjar þjóðhetjur á ferð. Vísindamenn stunda alls kyns rannsóknir sem skila mismiklu. Á dögunum komust vís- indamenn við Harvard-háskóla að því að ham- ingjan er smitandi. Hún smitast milli vina, ná- granna, systkina og maka eins og flensa. Það er vissulega uppörvandi fyrir mannkynið að vita til þess að hamingjusamir einstaklingar smiti út frá sér. Hamingjan er því yndislegasti og eftirsóttasti smitsjúkdómur í heimi. Þeir sem nú ganga um með píslarvættissvip og horfa á náunga sinn áminnandi augnaráði sem segir að hann eigi ekki að sýna værukærð með því að vera glaður láta sér þessar niðurstöður vísindamanna væntanlega viljandi framhjá sér fara. Og kannski lætur þetta sama fólk sér boðskap jólanna um kærleikann í léttu rúmi liggja. Það er þá þeirra val. Jólin eru tími friðar og hátíðleika en einnig gleðinnar sem er svo mikilvæg. Sjálfsagt verða einhverjir í fýlu yfir jólin vegna þess að þeir hafa ekki tækifæri til að gala á torgum gegn ríkisstjórn og fyrrverandi auðjöfrum. Meiri- hluti þjóðarinnar mun þó örugglega fagna og gleðjast. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Besti smitsjúkdómurinn FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is E FTIR nær tíu ára góð- ærisskeið, sem stuðl- aði að miklum vinsæld- um Vladímírs Pútíns, standa Rússar frammi fyrir efnahagslegum samdrætti vegna lágs olíuverðs og bankakrepp- unnar í heiminum. Nokkrir hagfræð- ingar spá efnahagslægð á næsta ári í fyrsta skipti frá fjármálakreppunni árið 1998. Rússneska stjórnin hafði spáð 5,9% hagvexti á næsta ári en ólíklegt þykir að sú spá rætist nú þegar olíu- verðið er aðeins um þriðjungur þess sem það var í sumar. Flestir hag- fræðingar spá stöðnun eða 1-2% samdrætti á næsta ári en þeir svart- sýnustu telja að samdrátturinn verði miklu meiri, eða allt að 15%. Samkvæmt opinberum hagtölum minnkaði iðnframleiðslan í Rússlandi um 11% í nóvember og atvinnulaus- um fjölgaði um 400.000, í tæpar fimm milljónir. Nokkrir hagfræðingar spá því að atvinnuleysið nær tvöfaldist á næsta ári, um átta til níu milljónir vinnufærra manna verði þá án at- vinnu. Saxast á varaforðann Seðlabanki Rússlands hefur að meðaltali notað um 50 milljarða doll- ara af gjaldeyrisvarasjóði sínum á mánuði frá því í ágúst til að reyna að afstýra gengishruni rúblunnar vegna minni olíutekna. Haldi svo fram sem horfir gætu rússnesk stjórnvöld átt einskis annars úrkosti en að fella gengi rúblunnar, jafnvel um allt að 30%, í baráttunni við efnahagslægð- ina. Slíkt gengishrun myndi valda mikilli ólgu í samfélaginu og grafa undan vinsældum Pútíns forsætis- ráðherra og Dmítrís Medvedevs, eft- irmanns hans í forsetaembættinu. Viðhorfskannanir hafa bent til þess að Pútín njóti stuðnings um það bil þriggja af hverjum fjórum Rúss- um. Í könnun sem gerð var í nóv- ember sögðust 59% treysta Pútín og 44% Medvedev, þannig að forsætis- ráðherrann stendur enn vel að vígi. Könnun, sem birt var í vikunni sem leið, bendir þó til þess að þeim Rússum sem telja að landið sé á rangri braut hafi fjölgað úr 24% í september í 40% nú í desember. Þeim sem telja að landið sé á réttri braut fækkaði úr 61% í 43%. Rússneski stjórnmálaskýrandinn Dmítrí Oseshkín telur að þorri Rússa treysti enn Pútín en spáir því að vin- sældir hans dvíni vegna efnahags- lægðarinnar. „Staða hans versnar þegar fólk gerir sér grein fyrir auknu misræmi á milli loforða hans í sjón- varpinu og þess sem gerist í raun,“ hafði The Moscow Times eftir Oses- hkín. Hann skírskotaði til þess að Pútín hefur á síðustu vikum lofað nánast öllum geirum samfélagsins fjárhags- legri aðstoð, allt frá ellilífeyrisþegum og atvinnulausu fólki til bankamanna og iðnrekenda, annaðhvort í bein- hörðum peningum eða með skatta- lækkunum. Rússneski félagsfræðingurinn Olga Kryshtanovskaja segir að vin- sældir Pútíns hafi nær eingöngu byggst á efnahagsuppgangi og þær geti dvínað ef efnahagurinn hrynur. Og góðærið hefur nær eingöngu byggst á háu olíuverði sem hefur lækkað í tæpa 50 dollara á fatið úr 147 dollurum síðan í júlí. „Ef olíuverðið fer niður fyrir 20 dollara verður bylting,“ hefur The Moscow Times eftir rússneska stjórnmálaskýrandanum Vladímír Príbylovskí. Gengishrun græfi undan lýðhylli Pútíns AP Mótmæli Rússar á mótmælafundi í miðborg Moskvu gegn þeirri ákvörðun rússnesku stjórnarinnar að hækka tolla á innflutta bíla. Óeirðalögreglan hefur hand- tekið tugi manna í hafnarborg- inni Vladívostok til að kveða niður mótmæli gegn ákvörðun rússnesku stjórnarinnar um að hækka tolla á innflutta bíla til að styrkja stöðu rússneskra bílaframleiðenda. Tollahækk- uninni hefur verið mótmælt í tugum borga í Rússlandi síð- ustu vikur og þótt mótmælin hafi ekki verið mjög fjölmenn þykja þau endurspegla vaxandi óánægju með rússnesku stjórn- ina vegna aukins atvinnuleysis, verðhækkana og gengislækk- unar rúblunnar. „Augu rússnesku þjóðarinnar eru að opnast fyrir því sem er að gerast,“ sagði Andrej Ívanov, þrítugur framkvæmdastjóri sem tók þátt í mótmælum í Moskvu. „Stjórnin starfar ekki í þágu vel- ferðar þjóðarinnar, heldur gegn velferð þjóðarinnar.“ Markmiðið með tollahækk- uninni er að vernda u.þ.b. 1,5 milljónir starfa í rússneskum bílaverksmiðjum. Andstaðan við hækkunina er mest á austur- ströndinni þar sem bílar frá Japan njóta mikilla vinsælda. „Augun opnast“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.