Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 50

Morgunblaðið - 24.12.2008, Síða 50
50 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 ✝ Sæmundur Sig-ursteinsson húsa- smiður fæddist 5. nóvember 1944. Hann lést á heimili sínu 15. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Valdemaría Jóna Jónsdóttir, f. í Sjólyst í Grindavík 5. febr. 1909, d. 21. júní 1993 og Sig- ursteinn Jónasson, f. í Fífilholtshjáleigu í Vestur-Landeyjum 21. júní 1904, d. 6. júlí 1976. Sæmundur átti sín æskuár á Skúlagötu 60 í Reykjavík.Hann hóf sína skólagöngu í Lind- argötuskóla og átti námið vel við hann. Síðan lá leið hans í Héraðs- skólann í Reykholti og var hann þar tvo vetur. Iðnskólinn í Reykjavík var í framhaldinu, þar öðlaðist hann rétt- indi sem húsasmiður og vann lengi við smíðar. Þá tók nýtt tíma- bil við og Sæmundur lærði sjókokkinn og var á sjó í nokkur ár og líkaði vel. Eftir að hann hætti á sjónum vann hann hjá Reykjavíkurborg uns hann hætti vinnu vegna veikinda. Útför Sæmundar verður gerð frá Grindavíkurkirkju laugardag- inn 27. desember nk. og hefst at- höfnin klukkan 14. Það var mikið áfall þegar við fréttum að þú værir dáinn, elsku frændi okkar og vinur. Ýmsar minningar koma upp í hugann, þegar við vorum börn að ærslast heima hjá ömmu og afa í Sjólyst og sömuleiðis er við hitt- umst á Skúlagötunni heima hjá for- eldrum þínum. Við frændur þínir gleymum aldrei ökuferðinni sem við fórum með þér um götur Reykjavíkur. Við dáðumst að því hvað þú varst klár að keyra og rata um borgina, enda vorum við úr fámenninu í Grindavík og ekki komnir með bílpróf eins og þú. Þegar við frændsystkinin vorum orðin fullorðin þá minnkuðu tengsl- in á milli okkar, en ef við litum inn í Múlakaffi var það næsta víst að þú værir á staðnum. Síðustu árin hittumst við oftar, þá komst þú í heimsókn til okkar. Þá var svo gaman. Þú varst alltaf svo hress og kátur, þér leið alltaf vel í Grindavík. Enda tókum við þá ákvörðun, þegar þessar aðstæður komu upp að okkur var falið að sjá um útför þína, elsku frændi, þá fannst öllum frændsystkinunum að þú ættir að hvíla hér hjá ættingjum þínum í Grindavík Haustvindur napur næðir, og nístir mína kinn. Ég kveð þig kæri vinur, kveðja í hinsta sinn. Ég man brosið bjarta, og blíðan svipinn þinn. Það er sárt að sakna, sorgmæddur hugurinn. Ljúfar minningar líða, er lítum farinn veg. Lífið í fallegum litum, lífið í straumsins vé. Nú gengur þú með Guði, og gleðst við móðurfaðm. Æðri verk að vinna, við erum börnin hans. (S.M.V.) Guð geymi þig, minning þín lifir. Þín frændsystkin frá Akri, Sæbjörg, Sigurður, Björgvin Vilmundsbörn. Kynni okkar Sæmundar voru ekki mikil en þau voru góð. Við vor- um tveir síðustu lærlingar Þórðar frænda míns Jasonarsonar. Nú munu vera um 40 ár síðan Sæmund- ur lauk sínu trésmíðanámi undir handleiðslu Þórðar. Við störfuðum saman eitt sumar nokkru síðar og það er skemmtilegur tími í minning- unni. Sæmundur var bráðflinkur smiður og ekki ríkti þögnin ein hjá okkur. Alltaf var eitthvað skemmti- legt til umræðu og marga söguna heyrði ég hjá Sæmundi því hann var frábær sögumaður. Í sögunum hans Sæmundar var mikið af húmor en aldrei meinfýsi því hana átti hann ekki til. Það sópaði að Sæmundi, hann var hár og spengilega vaxinn, enda Ís- landsmeistari í sundknattleik á ár- um áður. Hann vann um árabil við smíðar hjá Reykjavíkurborg en var þó ekki við eina fjöl felldur. Allt í einu var hann kominn út á sjó sem kokkur á togara. Það var hans að- ferð við að breyta til í lífinu. Sæ- mundur hélt sig við smíðarnar en skrapp á sjóinn öðru hvoru. Síðustu árin hafði hann hægara um sig enda góð efni á slíku því alltaf hafði hann farið vel með fé. Árin liðu og alltaf héldum við kunningsskap okkar. Sæmundur kom oft á Múlakaffi eins og fleiri sem voru í byggingabransanum. Þar hittumst við stundum og það var segin saga. Hann kom til mín, brosandi út að eyrum og sagði: „Nei, komdu blessaður, Nonni minn, hvernig hefur þú það?“ Svo ræddum við um alla heima og geima og það brást aldrei að alltaf kom skemmtileg saga af Þórði frænda og konunni hans, henni Jónu Þórðar. Sú staðreynd að við vorum „síðustu lærlingarnir hans Þórðar“ eins og Sæmundur tilkynnti mér brosandi í hvert skipti batt okkur í eins konar fóstbræðralag og það var alltaf gaman að hitta Sæmund. Nú er Sæmundur fallinn frá, allt of snemma, á þeim aldri sem er besti tími ævinnar hjá mörgum. Þessi fátæklegu kveðjuorð til Sæ- mundar vinar míns eru til minn- ingar um mann sem alltaf brá gleði- bjarma yfir tilveruna þegar leiðir okkar lágu saman. Blessuð sé minn- ing Sæmundar Sigursteinssonar. Jón M. Ívarsson frá Vorsabæjarhóli. Ekki fer hjá því að á lífsleiðinni verði á veginum margur maðurinn. Sumir þeirra reynast áhugaverðir til spjalls og í umgengni. Misjafnt er hversu mikil kynnin verða eftir ástæðum. Einn þessara manna, sem ég nefni hér, var Sæmundur Sig- ursteinsson. Ég hitti hann fyrst fyr- ir nokkrum árum á förnum vegi og við tókum tal saman. Mér fannst strax áhugavert að eiga við hann orðastað. Hann var kunnugur til sjós og einnig hafði hann unnið við húsasmíðar. Á þessu málum, sem og fleirum, hafði hann ákveðnar skoð- anir. Hann var opinskár og lá ekki á meiningu sinni, en ég reyndi hann ekki að því að vega að mönnum per- sónulega. Lífshlaup hans þekkti ég ekki nema af afspurn. Hann var vörpulegur og bauð af sér góðan þokka og honum fylgdi hressandi blær. Slíkur maður hefði átt að eiga sér viðunandi hlutskipti í mannlíf- inu, en mér fannst að hann myndi ekki alls kostar hafa höndlað til- veruna. Sennilega hefur þar gætt örlyndis hans og það er sitt hvað gæfa og gjörvileiki eins og hið forn- kveðna segir. Umhverfið reynist slíkum mönnum oft erfitt og þá ekki hvað síst óstöðugleikinn í öllu hér á landi. Það þarf sterk bein til að láta ekki berast með straumnum. Miklir efnalegir háskatímar hafa gengið yfir þjóðina undanfarin ár og nú stendur hún frammi fyrir miklum erfiðleikum. Það gerir þjóðin í heild sinni og einnig mikill fjöldi einstak- linga með mál sín. Slíkt reynist flestum mikil hugarraun og jafnvel ofraun. Það er sárt að sjá sam- ferðamenn heltast úr lestinni vegna þessara óskapa. Nú verðum við hin að troða óljósan veg inn í framtíðina án Sæmundar Sigursteinssonar. Baldur Þór Þorvaldsson. Góði Guð, þú sem heldur hendi þinni yfir okkur alla ævidaga og yf- irgefur okkur ekki þó að við bug- umst og föllum. Við biðjum þig: þakka þér fyrir Sæmund sem nú er farinn frá okkur. Þakka þér fyrir allt sem hann var og veitti okkur og þeim sem áttu með honum samleið í vinnu, vináttu, samfélagi. Styrk og hjálpa ástvinum hans. Ver þeim ná- lægur í sorg þeirra, veit þeim hugg- un, styrk og blessun þína. Í Jesú nafni amen. Ó, þá náð að eiga Jesú einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sínu’ í Drottins skaut. Ó, það slys því hnossi’ að hafna, hvílíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í Drottins skaut. Eigir þú við böl að búa, bíðir freistni, sorg og þraut, óttast ekki, bænin ber oss beina leið í Drottins skaut. Hver á betri hjálp í nauðum? Hver á slíkan vin á braut, hjartans vin, sem hjartað þekkir? Höllum oss í Drottins skaut. Ef vér berum harm í hjarta, hryggilega dauðans þraut, þá hvað helzt er Herrann Jesús hjartans fró og líknar skaut. Vilji bregðast vinir þínir, verðirðu’ einn á kaldri braut, flýt þér þá að halla’ og hneigja höfuð þreytt í Drottins skaut. (M. Jochumsson.) Þínir vinir, skóla og æskufélagar Ólafur Laufdal og Hallberg Guðmundsson. Sæmundur Sigursteinsson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson                                                        ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Lokastíg 2, Reykjavík, sem lést á Hrafnistu Reykjavík, þriðjudaginn 16. desember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. desember kl. 13.00. Sveinn Hörður Blomsterberg, Arndís H. Kristjánsdóttir, Sigurður Ragnar Blomsterberg, Ólöf Þ. Ólafsdóttir, Þórunn Ólöf Sigurðardóttir, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ Okkar kæri ÞORSTEINN ODDSSON bóndi frá Heiði, lést á dvalarheimilinu Lundi föstudaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Keldnakirkju á Rangárvöllum laugardaginn 3. janúar kl. 13.00. Helga Þorsteinsdóttir, Sigurgeir Bárðarson, Birna Þorsteinsdóttir, Rúnar Bjarnason, Reynir Þorsteinsson, Jóna María Eiríksdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Hjartkær bróðir okkar, ARI ARASON frá Skuld á Blönduósi, lést mánudaginn 22. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Systkinin frá Skuld og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓHANNSSON frá Bakkakoti, Meðallandi, lést þriðjudaginn 23. desember í Víðihlíð Grindavík. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingveldur Halla Sigurðardóttir, Sigurður Gestsson, Jóhann Sigurðsson, Gréta Sigfúsdóttir, Hlöðver Sigurðsson, Þóra Bryndís Karlsdóttir, Valdís Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, Halldór Sigurðsson, Guðlaug María Lewis, Lísa Dóra Sigurðardóttir, Linda Sjöfn Sigurðardóttir, Sigurður Karl Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.