Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 67
BRESKI metsöluhöfund-
urinn Jonathan Stroud, sem
er kunnur fyrir ævintýra-
bækur sínar og fantasíur,
hefur nýlega skrifað bók
byggða á Grettissögu, að
því er kemur fram á vefsíðu
hans. Fyrsta bók Strouds í
íslenskri þýðingu er nýlega
komin út hjá bókaforlaginu
Uglu, en það er Verndar-
gripurinn frá Samarkand,
fyrsta sagan í Bartimæus-
ar-þríleiknum sem er hans
þekktasta verk.
Á heimasíðu Stroud seg-
ist hann hafa valið þessa ís-
lensku sögu frá fjórtándu öld,
þegar bókaútgefandi bað hann að endursegja fræga
hetjusögu. Hann segir að hinn sterki Grettir hafi sífellt
verið að koma sér í vandræði vegna skapofsa síns. Bar-
daginn við drauginn Glám er vitaskuld einn af hápunkt-
um sögunnar, að mati Strouds.
Bókin sem hann vinnur út frá Grettissögu verður gef-
in út haustið 2009 hjá forlaginu Barrington Stoke sem
sérhæfir sig í útgáfu bóka fyrir þá sem eru lesblindir
eða eiga í erfiðleikum með lestur.
„Það er merkilegt hvað margir þessara höfunda lað-
ast að Íslendingasögunum, með einum eða öðrum hætti.
Það sýnir ef til vill vel hvað arfleifð Tolkiens er sterk í
Bretlandi,“ segir Jakob F. Ásgeirsson, bókaútgefandi
hjá Uglu.
Bartimæusar-þríleikurinn hefur þegar verið gefinn
út í um fjörutíu löndum og selst í milljónum eintaka.
Iðulega hefur verið rætt um þessar bækur Strouds sem
mögulegan arftaka sagnabálksins um Harry Potter.
Sögusviðið er London nútímans þar sem töframenn
fara með völd. Sumir hafa líkt bókunum við ferðir Gúll-
ívers en aðrir telja þær ádeilu á Tony Blair.
Eftir áramótin kemur út ný bók eftir Jonathan Stro-
ud í tólf löndum. Hún nefnist Heroes of the Valley og
styðst að einhverju leyti við norræna goðafræði.
efi@mbl.is
Skrifar um Gretti og Glám
Metsöluhöfundurinn Jonathan Stroud vinnur út frá Grettlu
Hetjusaga Mynd eftir Halldór Pétursson úr Grettissögu.
Sýnir Gretti veita Gísla Þorsteinssyni ærlega ráðningu.
Jonathan Stroud
Menning 67
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Aðfangadagur jóla
Tónlist fyrir aftansöng
Biðin eftir jólunum er sumum löng, jafnvel þeim fullorðnu. Kirkjur landsins
bjóða sumar til tónleika fyrir aftansöng og miðnæturmessu á jólanótt og það
er einstakur hátíðleiki yfir slíkum tónleikum. Í Hallgrímskirkju hefur þessi
siður verið viðhafður lengi; þar leikur Hljómskálakvartettinn með Herði Ás-
kelssyni organista fyrir aftansöng í dag, og kl. 23 byrjar Hörður að leika á ný
fyrir miðnæturmessu. Í Hjallakirkju hefjast jólasöngvar kl. 23.30, fyrir mið-
næturmessu, og verður kirkjugestum boðið að syngja með undir stjórn Jóns
Ólafs Sigurðssonar organista.
Jóladagur
Augu þín sáu mig
Ég ætla ekki að missa af jólaleikriti Útvarpsleikhússins í ár, sem útvarpað
verður kl. 14.30 á jóladag. Það er verkið Augu þín sáu mig, eftir Sjón, í út-
varpsleikgerð og leikstjórn Bjarna Jónssonar og með frumsaminni hljóð-
mynd og tónlist eftir múm. Saga Sjóns er bæði dularfull og spennandi, og það
verður gaman að heyra hvernig Bjarni og múm koma henni til skila í gegnum
útvarpið. Skáldið sjálft, Sjón, verður í hlutverki engilsins Freude, sem safnar
saman draumum annarra og skráir.
Kjötborg
Ég missti af þessari mynd þegar hún var sýnd í bíó, en Sjónvarpið sýnir hana
kl. 19.20 að kvöldi jóladags og þá má ekki missa af henni. Myndina gerðu
Helga Rakel Rafnsdóttir og Hulda Rós Guðnadóttir, og mér er sagt að hún
sé stórskemmtileg. Það mælir auðvitað með henni að hún fékk áhorfenda-
verðlaunin á Skjaldborgarhátíðinni 2008 og Edduverðlaunin í flokki heim-
ildamynda fyrir skömmu. Í myndinni er fylgst með bræðrunum Kristjáni og
Gunnari í versluninni Kjötborg við Ásvallagötu. Skyldu þeir vera síðustu mó-
híkanarnir í stétt hverfiskaupmanna, eða sýnir myndin okkur að ef til vill eigi
kaupmaðurinn á horninu sér viðreisnar von?
Annar í jólum, 26. desember
Skoppa og Skrítla í bíó
Sú var tíðin að annar í jólum var stóri bíódagur
ársins, með frumsýningum á bestu myndum árs-
ins. Einhvern veginn hefur það svo æxlast að
annar í jólum er ekki sá bíódagur sem hann var.
Þó er ein mynd frumsýnd þennan dag sem ég
ætla ekki að láta framhjá mér fara. Skoppa og
Skrítla í bíó heitir hún, og skartar vinkonunum
skemmtilegu. Þetta er fjölskyldumynd, og því
engin ástæða til að senda börnin alein í bíó; vilj-
um við fullorðna fólkið ekki annars vita hvað
börnunum finnst skemmtilegt? Ég hef haft af því
spurnir að í myndinni ferðist Skoppa og Skrítla
út í heim, og lendi meira að segja í krókódílum.
Sumarljós
Jólaleikrit Þjóðleikhússins er byggt á góðri ís-
lenskri skáldsögu, Sumarljós og svo kemur nóttin,
eftir Jón Kalman Stefánsson, sem hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir hana árið 2005. Það er
Hilmar Jónsson sem hefur gert leikgerðina, en hann
er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Óhamdar ást-
ríður og þrár eru rauður þráður í verki Jóns en
sögusviðið hversdagslegt íslenskt þorp. Frumsýn-
ing verður kl. 20.
Jólaball Milljónamæringanna
Það eru sennilega einhverjir sem hafa þörf fyrir að hreyfa sig eftir jólahátíð-
ina. Ekki er verra að geta gert það með mönnunum sem segjast ekki vita
aura sinna tal, – Millunum, og undir þeim seiðandi suðræna takti sem þeir
hafa sérhæft sig í. Það verður víst áreiðanlega erfitt að sitja kyrr.
Þriðji í jólum, 27. desember
Til krabbameinssjúkra barna
Enn á ný, og nú í tíunda sinn, verða haldnir tónleikar til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 16. Það er stór hópur
tónlistarmanna, sem leggur fram vinnu sína í verkefnið með söng og leik, og
allir aðrir sem að tónleikunum vinna gefa sín laun eftir. Á tónleikunum í fyrra
söfnuðust 25 milljónir, og nú er spurning hvort hægt sé að toppa það.
Gamlársdagur
Hátíðarhljómar við áramót
Tónlistin ómar í Hallgrímskirkju
kl. 17, fyrir messu. Það eru tveir
trompetar og orgel sem laða fram
áramótahátíðleikann, en tónlist-
armennirnir sem leika eru
trompetleikararnir Ásgeir H.
Steingrímsson og Eiríkur Örn
Pálsson og Björn Steinar Sól-
bergsson organisti.
Nýársdagur
Messías eftir Händel
Eitt magnaðasta og ástsælasta verk tónbókmenntanna, Messías eftir Händ-
el, verður flutt á tónleikum í Hallgrímskirkju kl. 17. Schola cantorum syngur
með Alþjóðlegu barokksveitinni í Haag, en einsöngvarar verða Marta Hall-
dórsdóttir, Andrew Radley, Gissur Páll Gissurarson og Alex Ashworth.
Hörður Áskelsson stjórnar. Verkið er þekkt fyrir unaðsríkar aríur, og stór-
kostlega kóra, eins og „Barn er oss fætt“ og „Halelújakórinn“. begga@mbl.is
Hátíðabrigði
Jólin eru komin. Friður ríkir eftir erilsama
aðventu og gott að auðga andann og gleðjast.
Hátíðarhljómar Síðustu tónleikar árs-
ins verða í Hallgrímskirkju á gamlárs-
dag kl. 17.
Sumarljós Jón Kal-
man Stefánsson.
Fjölskyldumynd Skoppa
og Skrítla fara um höf og
lönd í bíó.
í Súlnasal Hótels Sögu annan í jólum
Upplýsingar í síma 525 9930
og á hotelsaga@hotelsaga.is
Milljónamæringarnir verða í hátíðarskapi á jóladansleik í Súlnasal Hótels Sögu
annan í jólum, 26. desember. Húsið opnar kl. 22. Miðaverð aðeins 2.000 kr.
Miðasala í Súlnasal frá kl. 13 samdægurs. Upplýsingar í síma 525 9930.
Söngvarar eru: Bogomil Font, Bjarni Arason og Raggi Bjarna.
Leynigestur mætir á svæðið.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
2
2
9
9
Dansaðu út jólin
með Millunum