Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 24.12.2008, Qupperneq 68
68 Menning MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 Ég kláraði á þremur og hálfuári, en kláraði samt alltbóklegt í vor. Mig vantaðihins vegar nokkrar ein- ingar upp á, en fékk þær fyrir burt- fararprófið mitt,“ segir Dóra sem út- skrifaðist frá félagsfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð á laug- ardaginn. „Ég hef ekkert verið í skól- anum í haust, þannig að í rauninni kláraði ég á þremur árum. Og þess vegna gat ég byrjað í Myndlistarskól- anum í Reykjavík í haust. Það er fullt eins árs fornám fyrir listaháskóla.“ Byrjaði að æfa þriggja ára Að undanförnu hefur mestur tími Dóru farið í píanónám, en hún lauk burtfararprófi fyrr í þessum mánuði. „Ég tók prófið 4. desember og svo var ég með tvenna tónleika, eina í Garða- bæ af því að ég bý þar, og svo eina í Mosfellsbæ af því að ég útskrifaðist frá skólanum þar,“ segir Dóra sem hefur spilað á píanó í hvorki meira né minna en sextán ár, eða frá því hún var þriggja ára. „Ég byrjaði í Keflavík, svo fór ég í Tónlistarskólann í Garðabæ þar sem ég var í tíu ár og svo flutti ég mig upp í Mosfellsbæ af því að kennarinn minn, Ólafur Elíasson, fór að kenna þar. Það kom ekki annað til greina en að fara með honum.“ Dóra spilaði fjölda verka á burtfar- artónleikunum, bæði íslensk og er- lend. „Ég spilaði Bach-konsert, són- ötu eftir Mozart, etíðu eftir Chopin, prelódíu eftir Rachmaninoff og eitt ís- lenskt lag, „Kvölda tekur, sest er sól“ sem Ríkarður Örn Pálsson útsetti fyrir nemendur Ólafs,“ segir hún, en segja má að burtfararprófið jafngildi því sem áður kallaðist 8. stig í píanó- leik. Sjaldan er ein báran stök og í til- felli Dóru Hrundar virðist hún aldrei vera það. Auk MH, píanónámsins og myndlistarinnar hefur hún nefnilega líka lagt stund á dans frá 11 ára aldri. „Ég var upphaflega í JSB en skipti svo yfir í Listdansskólann í fyrravet- ur. Þar var ég á nútímadansbraut, sem var svolítið mikið nám, um það bil 20 tímar á viku. Ég var náttúrlega í píanóinu með og þegar ég ætlaði að byrja í Myndlistarskólanum í haust ákvað ég að taka mér frí frá dans- inum. En ég hugsa að ég byrji í hon- um aftur eftir áramót,“ segir Dóra og bætir því við að hún vilji leggja áherslu á nútímadans. Skoðar skóla erlendis En hvað um framtíðina? Á hvað ætlar Dóra að leggja mesta áherslu? „Ég er nú ekki alveg búin að ákveða það en ég hugsa að myndlistin verði mitt aðalfag. En mig langar auðvitað að nota hitt líka. Ég veit þó að ég ætla ekki að fara í einleik- aranám í píanóinu en ég mun samt alltaf vera að spila eitthvað. Ég gæti til dæmis alveg hugsað mér að læra eitthvað annað en klassík. Það er nefnilega rosalega mikið mál að verða konsertpíanisti og ég er ekki tilbúin að fórna hinu fyrir það. Mig langar að geta verið að grúska í fleiru en einu. Ef maður ætlar að verða píanóleikari kemst ekkert annað að.“ Dóra er um þessar mundir á hönn- unar- og myndlistarsviði við Mynd- listarskólann í Reykjavík en það er undirbúningsár fyrir nám í listahá- skólum. Hún segist ætla að huga að umsóknum um erlenda listaháskóla eftir áramót og vonar að píanóið og dansinn hjálpi til í umsóknarferlinu. „Ef það eru tveir sambærilegir nem- endur er kostur að vera með eitthvað framyfir, eins og til dæmis burtfar- arpróf,“ útskýrir hún. Róleg jól Aðspurð segir Dóra gott skipulag það mikilvægasta til að ná að gera allt sem hún hefur gert á undanförnum árum. „Þetta hefur svolítið verið í syrpum hvað ég hef lagt áherslu á. Í fyrra var ég til dæmis mest í dansinum, til að klára píanóið ákvað ég að æfa mig mikið í sumar og var ekkert að vinna. En jú, það hefur alltaf verið mikið að gera,“ segir hún en bætir því þó við að hún hafi merkilega mikinn tíma fyrir vini sína og félagslíf. „Ég nota helgarnar bara eins mikið og ég get í það. En ég á margar vin- konur í dansinum og líka í píanóinu. Það er kannski stór þáttur í því hvað maður er búinn að haldast lengi í þessu. Það er búið að gera þetta að hálfgerðu „hóp-hljóðfæri“, þótt þetta sé algjört einstaklingsnám. En Ólafur hefur látið okkur hittast á kvöldin til að æfa, þannig að þetta er svolítið fé- lagslegt líka.“ Dóra ætlar að taka lífinu með ró yf- ir jólin en um leið ætlar hún að nýta fríið til að huga að því hvað hún ætli sér að gera í framtíðinni. Hvað sem verður er ástæða til að fylgjast vel með Dóru Hrund Gísladóttur á næst- unni, enda gríðarlega hæfileikarík stúlka þar á ferðinni. jbk@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Fjölhæf Dóra mótar fót í Myndlistarskólanum. „Ég er nú ekki alveg búin að ákveða það en ég hugsa að myndlistin verði mitt aðalfag,“ segir hún þegar hún er spurð um framtíðarplönin. Ótrúlega hæfileikarík Dóra Hrund Gísladóttir er ekki eins og flestar aðr- ar 19 ára gamlar stelpur. Hún lauk nýverið stúd- entsprófi frá MH og burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Mosfellsbæ. Þá er hún í Myndlistarskólanum í Reykjavík, auk þess að leggja stund á dans. Jóhann Bjarni Kolbeinsson spurði Dóru hvernig hún færi að þessu öllu saman. Morgunblaðið/Kristinn Við píanóið Dóra Hrund Gísladóttir tók burtfarapróf í píanóleik í byrjun desember frá Tónlistarskólanum í Mosfellsbæ. Stelpan sem getur allt mbl.is | Sjónvarp
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.