Árdís - 01.01.1938, Side 26

Árdís - 01.01.1938, Side 26
Lýðháskólarnir í Danmörku Samið hefir Vilgborg Ególfson. 0^3 Daglega berast fréttir t'rú hinuin svokölluðu auðugri þjóðum, þar sein sagt er frá atvinnuleysi og skorti, stríðum og ófriðarhorfum. Þar er fólk svift frelsi sínu og réttindum, og sumsstaðar jafnvel ofsótt. í mótsetningu við hið ískyggilega litlit og ásigkomulag hjá sum- um þessara þjóða má svo að orði kveða að skandinavisku lýðræðis- löndin skíni eins og bjartur viti eða leiðarljós. Þar ríkir l'relsi og vellíðan, friður og framfarir, og þar er urn engar fjárhagslegar hörm- ungar að ræða. Atvinnuleysið, sem þar ríkti um tíma, fer nú óðum minkandi og skortur þekkist þar tæplega. Er þetta að þakka vitur- legri og mannúðlegri löggjöf í höndum frainsýnnar og skynsamrar stjórnar. Ekki þarf annað cn skygnast dálítið aftur i tíinann lil þess að finna hvað það er, sem skapað hefir hamingju þessara lýðræðisríkja. Danmörk hefir verið þar í broddi l'ylkingar, sérstaklega i samvinnu- félagsskap og mentamálum. Danmörk er svipað land Vestur-Canada að því leyti að þar er mest undir búnaðinum komið. Það er lítið land: hér uin liil álíka og einn sjöundi hluli (1/7) al' Manitoba. Þar eru engar verðmiklar auðsuppsprettur; engin kol, engir málmar, engjn vatnsföll, sein notuð verði til aflstöðva; auk þess er loftslagið kalt. Sökum þess hversu lílið er landrýmið er þéttbýli mikið í Dan- mörku: þar eru hundrað inanns (100) á hverri fermilu; en í Mani- toba eru aðeins þrír á ferinílunni. Mestur hluti þjóðarinnar býr á smájörðum, en landið er heimsfrægt orðið fyrir sin miklu samvinnu- störf. Níu tíundu (90%) allra bænda í Danmörku heyra til einhverju samvinnufélagi; og nálega allar landsafurðir, sem út eru fluttar, eru í höndum þessara samvinnufélaga. Með þessu móti verður það mögulegt að sameina hagnaðinn af afurðum sinábýlanna, þar sem jörðin er þrautræktuð, við gróðann af stórum fyrirtækjum. í sam- vinnufélögum mjólkurframleiðenda hafa þeir, sem aðeins eiga tvær eða þrjár kýr, sama atkvæðismagn og hinir, sem eiga hundrað kýr. Sama regla uin algerl jafnrétti allra einstaklinga virðist ríkja þar í öllum félagsskap. Samvinnufélögin eru jiað sama fyrir bóndann og iðníelögin fyrir verkamanninn. Alls konar iðnaðarmenn heyra til iðnfélögunum 24

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.