Árdís - 01.01.1938, Síða 36

Árdís - 01.01.1938, Síða 36
-----------------"—«•—■»-■—----------------—----■■------------ !><>•• Frú Hallfríður var ágætiskona. Sásl það hezt þegar hún heim- sótti fsland með manni sínum árið 1900. Þegar hún kom heim til ættjarðarinnar var þannig ástatt, að systir hennar var rétt nýdáin frá 11 börnum. Tók hún þá tvö börnin ineð sér, Sigriði, sem fyr er getið, þá fjögra ára, og Hallgrím, stálpaðan pilt. Síðar flutti öll fjölskyldan vestur. Einn af drengjunum, Baldur, átti jafnan heima hjá móðursystur sinni, ásamt Hallgrími sem fyr er getið. Var það aðallega þeim hjónum að þakka, að þeir bræður gátu báðir gengið skólaveginn. Þeir eru nú báðir dánir. Hallgrímur féll í stríðinu, en Baldur dó á sóttarsæng. Frú Hallfriður var gáfuð kona og l'róð um marga hluti og skemtileg. Hafði hún mikið yndi af skáldskap og hljómlist. Hún var ágæt húsmóðir og eiginkona og sönn móðir fósturbarna sinna. Hún var göfuglynd og góð við þá sem bágt áttu og hún náði til og hún var einlæg og sönn í trú sinni til æfiloka. Að eðlisfari var hún heldur dul og ekki fljóttekin, og voru þeir þvi sjáll'- sagt heldur fáir sem kyntust henni náið. Hún þekti vel og skildi hin margvislegu mannlífsmein og reyndi að bæta úr þeim eftir beztu gctu, og hafði einlæga samúð með öllum, scm bágt áttu. Hún var ágæt safnaðarkona og félagskona i kvenfélagi Fyrsta lúterska sal'n- aðar í Winnipeg í meir en 40 ár. Hún unni fslandi af heilum hug og fylgdist vel með því sem þar var að gerast og átti mikið af góðum endurminningum frá föðurlandinu. Ekki aðeins ástvinir hennar, heldur lika allir aðrir, sem kyntust henni, hugsa nú til hennar með virðingu og hlýhug og þakklæti fyrir samfylgdina. H. 0. SIGURBORG GOTTFREIJ "T^ Aður hefir verið getið um það í islenzkum blöðum að Sigurborg Gottfred andaðist 20. nóvember 1936, að heimili dóttur sinnar og tengdasonar Hansínu og Sigurðar Anderson i Baldur, Manitoba. Aður hafði heimili þessarar ágætu konu verið i Langruth, Manitoba um tuttugu og tveggja ára skeið. Hún var 79 ára að aldri er hún lézt. Með sanni má segja um Sigurborgu Gottfred það sama og sagt var forðum um ekkjuna er gaf sinn síðasta skilding í sjóð musterisins. Af glöðuin huga gaf hún og styrkti öll góð málefni. Sérstaklega var .lóns Bjarnasonar skóli henni hjartfólginn; sömuleiðis lagði hún mikið lil kirkju og fátæklinga. í kvenfélagi Herðubreiðarsafnaðar starfaði hún af alúð í mörg ár. 34

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.