Árdís - 01.01.1938, Blaðsíða 32
-------"■—-■■-■■-------------..-..-..-..---------------..-..---l<J-
Að miðdagsverði loknum tekur sltólastjórinn aftur við völdum.
Hann segir nemendunum frá merkum viðburðum bæði heima fyrir
og erlendis og l)ætir við þá sínum eigin athugasemdum. Við máltíðir
er allur skólinn eins og eitt heimili.
Við fyrirlesturinn síðdegis er valið eitthvert efni um bókmentir,
goðafræði, félagsfræði og eðlisfræði. Ef nemandinn heldur þessu
við þegar fram líða stundir með því að lesa bækur og blöð með
ánægju og skliningi; ef hann sækir fyrirlestra, eða jafnvel flytur
þá sjálfur, þá hefir takmark skólans náðst; þá hefir nemandinn
orðið starfandi, hugsandi borgari, en ekki aðeins liðlaus eftirherma.
Auk fyrirlestranna eru þar einstaklinga cða flokkastörf, sem
i'ara fram síðari hlula dagsins: það er kensla í dönsku, stílagerð og
reikningi; eða þá smáflokkar myndast til þess að ræða eitthvert sér-
stakt málefni. Oft er myndaður flokkur til þess að ræða um eða
segja aftur efnið úr einhverjum fyrirlestrinum. Þetta er ágæt æfing
fyrir þá, sem vilja verða færir i því að rita eða láta í ljós hugsanir
sinar.
Eitl aðalatriðið á þessum skólum er það að lesa fréttablöð að
lokinni máltíð. Flciri og fleiri bætast í hópinn með vaxandi áhuga
ef fjörugar umræður eiga sér stað og skemtilegur samanburður á
fréttafrásögninni. Þá má ekki gleyma lestri góðra bókmcnta í rit-
um skólabókasafnsins.
Lestur hefir náð sér svo niðri meðal bændafólksins í Danmörku
að hann er orðinn eitt aðaleinkenni þjóðarinnar. Það er sagt að
þegar vinnumenn i sveit í Danmörku flytja sig vistferlum, þá eiga
þeir svo miklar bækur og flvtji með sér að þær vigti meira en allar
aðrar eignir hans til samans, og að þar á meðal sé mikið af allra
merkuslu bókmentum Norðurlanda.
Auk lýðháskólanna eru auðvitað einnig aðrir skólar í Danmörku,
svo sem: alþýðuskólar, háskólar, verkfræðingaskólar, búnaðarskólar,
verzlunarskólar, iðnskólar og aðrar sérfræðilegar stofnanir.
Mentamálin i Danmörku eru á afarháu stigi og er þar lögð sér-
slök áherzla á að læra útlendar tungur. Þá má ekki gleyma hinum
óháðu barnaskólum; þeir eru ekki í höndum ríkisins. Fyrsta skóla
Jieirrar tegundar stofnaði maður, sem hét KHstján Hold; var hann
aðalsamstarfsmaður Grundtvigs. Ennfremur má nefna Jíjóðháskóla
í leikfimi og alj)jóða lýðháskólann.
Þjóðháskólinn fyrir lcikfimi er stór og voldug stofnun — þar er
vegleg íbúð, leikfimissalur og sundskáli, og stór iþróttavöllur; þar
er einnig samkvæmissalnr, sem rúmar 50,000 manns. Þessi skóli
hefir vaxið upp á fáeinum árum á eyju, sem Funan heitir í héraðinu
Ollerup. Hann var stofnaður af manni, sem hét Niels Bukt. Fé var
fengið fyrir þessa stofnun fyrir íþróttasýningar, sem Bukt héll ásamt
félögum sínum í Evrópu og Ameriku.
30