Árdís - 01.01.1938, Blaðsíða 15

Árdís - 01.01.1938, Blaðsíða 15
 ima, svo kcmur það fyrir að eg hefi frístundir, og þá les eg og læri utanbókar, — stundum festi eg blaðið á vegginn þar sem eg er að vinna, svo eg eigi hægra með að lesa. Eg býst ekki við því að mér verði mögulegt að skilja börnunum mínum eftir peninga, þegar eg fell frá, en eg vil skilja þeim eftir þetta, sem er meira virði, kristin- dómsfræðslu og ást á því góða og göfuga. Svo langar mig lil að þau muni eftir mér við hliðina á sér hér á sunnudagsmorgnana. Þú trúir ekki hvað eg hefi mikla ánægju af þessu starfi, mér finst eg gleyma sjálfri mér, öllu mínu stríði, og þreytan hverfur. Mér finst eg vera sæl, og svo rík, að eg myndi ekki vilja skifta við nokkra aðra konu. Vissulega var þessari lconu Ijóst hvað orð Guðs er dýrmætur fjársjóður og skildi hvað góður jarðvegur þarf með, — það þarf ásl fil málefnisins, fórnl'ýsi, þolinmæði, samvizkusemi og um l'ram all trú á hið góða. < Það er mikið gert af því að leita að dýrum málmum, gulli og gersemum. Fjöldi af fólki grefur í iðrum jarðarinnar eftir því sem verðmætt er, og jalnvel er l'arið ofan á hafsbotn stundum, ef ske kynni að eitthvað skyldi vera þar. Ekki megið þið skilja mig svo, að eg sé að gera lítið úr vinnu fyrir daglegu brauði, en eg álít að við þurfum engu síður á brennandi áhuga að halda á andlegu sviðunum. Mig langar til að spyrja: Er eins mikið Iagt á sig í kristindómsmál- um? Er eins niikill áhugi fyrir því háleita og góða? Er eins vand- lega leitað að börnum, sem aldrei ltoma inn fyrir kirkjudyr? Það er ekki tilgangur minn að benda á nýjar kensluaðferðir, en mig langar til að minnast á eina tegund af jarðvegi, sem ekki má misskilja eða ganga frarn hjá. Það eru til feimin og óframfærin börn, sein að skilja og fremur seintekin. Þetta má laga, ef kennar- inn er þolinmóður, lipur og um fram alt vingjarnlegur. Aftur eru sum börnin fjarska fljót að svara og læra það sem þeim er sett fyrir á svipstundu. Ekki má kennarinn hafa meira dálæti á því barninu sem lljótara er, en reyna að vera jafngóður og alúðlegur við þau öll. Þetta er stundum dálítið erfitt, en eg hefi reynslu fyrir því, að börnin sem dragast aftur úr eru mjög viðkvæm, og það er betra að fara varlega, svo þau missi ekki traust á sjálfum sér. Ef þau börn, sém l'ljót cru, l'á æfinlega að svara, kemst það inn hjá þeim sem seinni eru, að ekki sé til neins fyrir sig að reyna neitt, og er það ekki gott. Það þarf að hlúa að þessum plöntum líka, og með góðri hjálp verða þær alveg eins stórar og sterkar eins og hinar. En engum kröftum megum við missa af í vingarði voruin. Eg veit að sunnudagsskólinn minn heima er ekki til fyrirmyndar á nokkurn hátt, samt vil eg minnast á hann nú áður en eg lýk máli mínu. Öll börnin tala og lesa íslenzku; i viðbót við vanalegar sunnu- dagsskólabækur, sem notaðar eru á öðrum sunnudagsskólum er <>11- um ólæsum börnum gefið íslenzkt stafrófskver og þau látin lesa i því í skólanum. Eldri börnin sem komin eru yfir fermingaraldur lesa íslenzk ljóð og íslendingasögur. Þetta er dálítil hjálp, með þvi sem heimilin gera, lil að halda við móðurmáli voru. 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.