Árdís - 01.01.1938, Síða 27

Árdís - 01.01.1938, Síða 27
•••>«• --------------„--- og bændurnir hafa sama hagnað af samtökum sínum og iðnaðar- mennirnir. Framfarirnar í Danmörku í þjóðfélagslöggjöf og umbótum eru mest og bezt iðnfélögunum að þakka. Nýlega hei'ir verið stofnað verkamannaráð fyrir alt landið; eru í því ráði fulltrúar allra iðnfélaganna og allra samvinnufélaganna. Fimm fulltrúar þessa ráðs eru þingmenn úr jafnaðarmannaflokkn- um, sem þar kallast “Social demokratar”; en verkamannahreyfingin danska er öflugasti styrkur þess flokks, og hefir hann selið að völd- um síðan 1929. Kaupmannahöfn er stærsli bærinn í Danmörku, og er helmingur allra iðnaðarmanna búsettur þar. Þekkjast þar engin fátækráþorp, eins og tíðkast í stórborgum annara landa. Alment á fólk við betri kjör að búa í Danmörku en i flestum öðrum löndum; atvinnuleysi hefir stöðugt i'arið minkandi hröðum skrefum á síðari árum. Alls voru atvinnuleysingjar 200,000 árið 1933, en ekki nema 60,000 árið 193ö, og hel’ir þeim stöðugt farið fækkandi síðan. Þessu hel'ir verið komið til leiðar með því að ráðast í hvert nytsemdar fyrirtækið á fætur öðru af háll'u stjórnarinnar; fengu menn vinnu við þau og voru þeim goldin fullkomin vinnulaun. í Danmörku er bæði heilsuábyrgð og vinnuleysisábyrgð; i'ólk þarf því engar áhyggjur að liafa l'yrir elli né atvinnuleysi. Sjálft leggur fólkið ákveðið gjald lil allra ábyrgða meðan heilsa og atvinna leyl'a. í lieilsuábyrgð er innifalin læknishjálp, sjúkrahúsvera með öllu, sem þar er nauðsynlegt, meðul, uppskurðir o. s. frv. Allir verða að leggja til atvinnuleysisábyrgðar; ríkið greiðir sem svarar 75% af þeirri upphæð, sem fólkið borgar. Allir danskir borgarar njóta þessara hlunninda; sömuleiðis eru þeir allir verndaðir með verka- mála löggjöf í öllum greinum: lögin segja i'yrir um lengd og til- högun vinnutíma og vinnulaun. Eítir þvi, sem Helen Marsh segir frá, eru samt í Danmörku fjórir flokkar, sem ekki njóta borgara- réttar; það eru vændiskonur, flakkarar, drykkjumenn og foreldrar, sein vanrælcja uppeldi barna sinna. Skaltar eru lagðir á fólk með hinni mestu nákvæmni þannig að þeir borgi mest, sem um það eru færastir. óbeinir skattar eru lang- hæstir, það er að segja skattar á munaðarvöru, svo sem: álengi, tóbaki, skemtunum, bifreiðum og gasolíu. Það er eftirtektarvert að helmingurinn af öllum opinberum útgjöldum er kostnaður við menlun og þjóðheillamál. Nú skal vikið aftur að ]>vi, hvernig á þessum heillahögum stendur. Hvað veldur því, að dönsku þjóðinni hefir heppnast að skapa sér slíka hamingju og bæta þannig kjör sín með innbyrðis l'riði og samvinnu? Hvernig stendur á því að Dönum líður svona 25

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.