Árdís - 01.01.1954, Side 73
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
71
Helga Margrét Helgason
Fœdd 1. ágúst 1874 — Dáin 18. júlí 1953
Þær konur, er sátu stofnfund
Bandalags lúterskra kvenna 26.
júní 1925, minnast með hlýhug
konu, sem þar var stödd, úr
Kandaharbygð í Saskatchewan-
fylki; kona þessi var Helga Mar-
grét Helgason; hún lagði í hvívetna
gott til mála, og ól í brjósti ríkan
áhuga fyrir framtíð þessa nýgræð-
ings og efaðist ekki um, að margt
og mikið gott myndi af félags-
skapnum leiða; hún taldist til
Kvenfélags Ágústínusar-safnaðar,
en það var fyrsta kvenfélagið, er
sótti um inngöngu í bandalagið.
Helga var fædd 1. ágúst 1874 í
höfuðborg íslands; foreldrar henn-
ar voru Hallgrímur Guðmundsson
Backman og Þórey Ingimundar-
dóttir; þau komu til Vesturheims 1891, dvöldu fyrst í Duluth, en
fluttust þaðan til Selkirk og þar giftist Helga eftirlifandi eiginmanni
sínum, Eiríki Helgasini, 13. október 1899. Þau námu land í grend við
bæinn Kandahar og bjuggu þar um langt skeið rausnarbúi.
Árið 1947 fluttu þau Eiríkur og Helga til Winnipeg, og hafði hún
þá all-lengi verið biluð á heilsu og í þessari borg lézt hún 18.
júlí 1953.
Þau Eiríkur og Helga tóku að sér tvö börn, er þau óiu upp og
komu til menta, Kristvin og Helgu Eirikku, er bæði lifa fóstur-
móður sína.
Systkini Helgu á lífi eru: Ágústa Tallman, fyrverandi forstöðu-
kona á Betel, Clara Henrickson, Selkirk, Manitoba, og Skúli
Backman í Winnipeg.
TJtför þessarar merku konu var gerð frá Lútersku kirkjunni í
Selkirk, en jarðsett var í grafreit íslendinga í grend við bæinn.
Flora Benson