Árdís - 01.01.1954, Side 100
98
ÁRDÍS
Sundurlausir þankar
Eftir INGIBJÖRGU J. ÓLAFSSON
íslendingar yfirleitt líta á sumarbúðastarf eða „Camping“ sem
eitthvert auka-atriði, sem aðeins fáeinir hafa nokkra trú á. Er þetta
eðlilegt, þar sem þetta starf er tiltölulega nýtt á meðal okkar fólks.
En þá er gott að líta út frá sér og kynnast hvað verið er að gera
annars staðar.
Síðastliðinn desember bárust mér bréf, þar sem mér var boðið
að sækja þing í New York, er halda átti í febrúar af “The American
Camping Association.” — Þingið var haldið í einu stærsta hóteli
New York borgar (Statler). Bréfin, sem mér voru skrifuð af skrifara
þessa sambands, voru svo vingjarnleg og undur-bróðurleg ein setn-
ing festist í minni: „Við sem höfum trú á þessu starfi erum öll
systkini og gaman verður fyrir fjölskylduna að mætast nú á
Statler“. Mér var boðið að flytja þar erindi um „Church Camps“;
sagt að mér yrði mætt á stöðinni, hvort heldur ég ferðaðist í lofti
eða annars vegar. Þar mundi verða fest í barm minn merki Canada
“The Maple Leaf”. — í fjóra daga mundum við dvelja á Statler og
síðasta daginn yrðum við gestir í “United Nations’-byggingunni. —
Tvær stórveizlur mundum við sitja, þar sem við borguðum $6.50
fyrir diskinn. Um leið og þetta yrði ógleymanlegt tækifæri að
fræðast og kynnast, yrði það líka tækifæri til að eyða æði stórri
fjárupphæð!
Atvikin höguðu því þannig, að ég sat heima, en allnákvæmar
fréttir af þinginu sendi hinn vingjarnlegi skrifari mér, eftir beiðni,
og hér set ég örfá atriði:
Yfir 2000 erindrekar sóttu þingið. 62 þeirra voru frá Canada,
hinir úr Bandaríkjunum. Þar var mikið talað og ýmsar ráðstafanir
gerðar svo sem: nauðsyn á hinum smærri „camps“, þar sem verðið
væri ekki sett of hátt, þar sem hóparnir væru ekki of stórir, svo
hver einstaklingur gæti notið sín. — Samþykt var að auka sam-
vinnu eftir fremsta megni milli Bandaríkjanna og Canada á þessu
sviði. Mikill áhugi og margar nýjar hugmyndir komu í ljós. —
Framtíð þessa mikla starfs var að nokkru skipulögð. Framtíðar-
horfur hafa aldrei verið bjartari en nú.