Árdís - 01.01.1964, Blaðsíða 68
66
ÁRDIS
Kristína konungsdóttir
INGIBJÖRG S. GOODRIDGE
Margar konur hafa, frá alda öðli, risið til frama og frægðar
víðsvegar um heim og á mörgum sviðum samtíðar sinnar. Margar
eru vel þekktar og lífsferill þeirra er á allra manna vitund. Sumar
hafa unnið sér virðingu og aðdáun meðbræðra sinna og niðja
þeirra fyrir hugrekki og stjórnmálahæfileika eða framúrskarandi
gáfur. Aðrar hafa lifað í gegnum aldanna raðir vegna ástamála
sinna og hafa stundum getið sér miður góðan orðstýr. Eftir öðrum
er munað vegna grimdar þeirra og ágirndar og stendur stuggur
af þeim. Svo eru fjölda margar konur sem lýstu samtíð sinni og
framtíð, með góðvild og ágætum mannkostum, sjálfsafneitun og
fórnfýsi. Að telja upp jafnvel nöfn velþekktra kvenna væri al-
deilis ómögulegt vegna þess að þær eru svo margar. Eru þær af
öllum stéttum, hábornum og lágbornum, af öllum þjóðflokkum
og menningu og af öllum trúarflokkum.
Að vísu, hafa konur ávalt átt mikinn þátt átt í stjórnarfyrir-
komulagi allra alda og allra þjóða bæði af eigin athöfnum og vegna
áhrifa sem þær hafa haft yfir eiginmönnum, sonum og ástvinum.
Því miður hafa áhrifin ekki ætíð verið góð. Þetta stafar auðvitað
af mannlegum breiskleika. En aftur á móti, standa hetjur margar,
klæddar brynju sjálfsafneitunar og mannástar, sem knúðar voru
af einlægri þrá að þjóna öðrum og uppörva.
Ekki eru allar athyglisverðar og afkastamiklar konur vel-
þekktar hjá voru þjóðfélagi né á vorri samtíð. Saga konu einnar
sem er lítt kunn íslenzkum lesendum er tilefni þessarar greinar,
sagan af Kristínu, dóttur Gústaf Adolfs Svíakonungs, er fæddist
árið 1626 í Svíþjóð og kom til valda aðeins sex ára gömul, við
fráfall föður síns.
Um þessar mundir, geysaði styrjöld um norður Evrópu milli
kaþólskra og mótmælenda. Gústaf Adolf veitti mótmælendum lið.
Hann var einlægur Lútherstrúarmaður og hinn slyngasti her-
foringi samtíðar sinnar og vann marga sigra, þó hann sjálfur léti
lífið árið 1632. Ófriðurinn hélt áfram undir stjórn herforingja
Svía sem lært höfðu hernaðarlistina af konungi sínum. Enn loks