Árroði - 01.02.1947, Qupperneq 7

Árroði - 01.02.1947, Qupperneq 7
sem bezt skilyrði til að stunda veiðar á lieiztu fiskimiðum við strendur landsins. I sanv bandi við það verði komið upp í verstöðvum viðunandi verbúðum fyrir sjómenn. 6. Hin nýju atvinnutæki, sem til landsins verða keypt, verði að verulegu leyti staðsett í kaupstöðum úti á landi og rekstur þeirra sem mest í höndum bæjarfélaganna sjálfra. 7. Allar byggingarframkvæmdir verði skipulagðar og það tryggt, að nauðsynlegar byggingar íbúðarhúsa verði látnar sitja fyrir um byggingarefni. Ríkið tryggi byggingar- fél. verkamanna og byggingarsamvinnufélög- um nægilegt fjármagn til byggingarfram- kvæmda. Aherzla verði lögð á að afla bygg- ingariðnaðinum stúrvirkra nýtízku véla og verði rekstur þeirra í höndum hins opinbera. 8. Innlendur iðnaður verði stúrum aukinn og hann látinn njúta fylista jafnréttis við aðra atvinnuvegi. Ennfremur fari fram ýtar- leg rannsúkn á möguleikum til nýtingar jarð- hita til stúrfeldari rafvirkjunar. Jafnframt verði hraðað byggingu raforkuvera við fall- vötn landsins og með því lagður grundvöll- ur fyrir nýtingu rafmagns til hverskonar starfa. Um málefni iðnnema. Þingið telur að leggja beri sérstaka áherzlu á eftirfarandi atriði: 1. Allir iðnskúlar í landinu verði starf- ræktir af því opinbera þ. e. ríkinu. 2. Lögð sé áherzla á að færa kennsluna í þeim í nútímahorf og aflað verði til þeirra fullkominna kennslutækja. 3. Oll kennsla í iðnskúlum fari fram að deginum, og stundi nemendur ekki verkleg störf þann tíma, er skólarnir starfa. 4. Komið verði á fút hið fyrsta framhalds- skúla fyrir unga iðnaðarmenn, þar sem þeim, að loknu iðnskúlanámi, gefist kostur á að stunda framhaldsnám í iðngrein sinni. Einn- ig verði í sambandi við þennan skúla starf- rækt námskeið, verkleg og búkleg, fyrir nem- endur og sveina í hinum ýmsu iðngreinum. 5. Þingið telur brýna þörf á því, að eftirlit með verklegu námi iðnnema verði stúrlega aukið til tryggingar því, að þeir fái notið nægi- legrar fjölbreytni og gúðrar tilsagnar við námið. í þessu sambandi heitir þingið á al- þingismenn flokksins, að þeir fylgi fast eftir frumvarpi því um iðnfræðslu, er flutt hefur verið á þingi því, er nú situr, að tilhlutun iðn- aðarmálaráðherra, og vottar þingið Emil Júns- syni þakkir sínar fyrir forgöngu hans í þessu máli“. Svohljúðandi álit menntamálanefndar var þar næst tekið fyrir og samþykkt: „1. 11. þing S. U. J. lítur svo á, að það sé sjálfsögð skylda þjúðfélagsins að sjá hverjum þjúðfélagsþegn fyrir þeirri menntun, er hann sjálfur æskir. I því sambandi lýsir þingið yfir ánægju sinni með þá endurskoðun skúlamál- anna, sem milliþinganefnd í skúlamálum hefir framkvæmt. Vill þingið leggja áherzlu á, að hraðað verði öllum framkvæmdum þessa máls, þar eð það telur, að með hinni nýju fræðslulöggjöf sé stúrt spor stigið í þá átt að auðga þjúðina að mennt og fræðslu. 2. Þingið fagnar því ennfremur, að hafist hefur verið handa um byggingu fjölmargra nýrra skúlahúsa um land allt, þú verður það að telja að fyrr hefði mátt á því byrja og skírskotar í þeim efnum til fyrri þings, svo og þess, að enn er langt í land unz þvi tak- marki er náð að enginn skúli eigi við hús- næðisskort að búa. Vill þingið í því sam- bandi sérstaklega benda á aðbúnað margra skúlanna í höfuðborg landsins, t. d. Mennta- skúlans, Iðnskúlans, Verzlunarskúlans og gagnfræðaskúlanna beggja, en allir þessir skúl- ar hafa orðið að takmarka nemendafjölda vegna únúgs húsnæðis. 3. Þingið telur að stefna beri að lífrænni árroði 7

x

Árroði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.