Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 1

Morgunblaðið - 03.02.2009, Side 1
 SKATTAR og lögbundin gjöld voru greidd af kauprétti starfs- manna Landsbankans, að sögn Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, fyrrverandi forstöðumanns skatta- sviðs bankans. Þá segir hann að kauprétturinn hafi ekki verið fram- seldur til erlendra félaga. Erlend félög áttu mikið af hluta- bréfum í Landsbankanum, sem voru vistuð í löndum þar sem skattalöggjöf er hagstæð fjár- festum. Segir Kristján að þessi lönd hafi verið valin vegna þess að ekki var heimilt að stofna svokallaða sjálfseignarsjóði hér á landi. Sjálfs- eignarsjóðirnir áttu félögin sem keyptu hlutabréf í Landsbankanum á móti kauprétti starfsmanna. »16 Skattar greiddir af kaup- rétti í Landsbanka Þ R I Ð J U D A G U R 3. F E B R Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 32. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is ELEKTRA ENSAMBLE TÓNLISTARHÓPUR REYKJAVÍKUR 2009 RAUÐHÆRÐ RANNSÓKNAREFNI Flott og öðruvísi að skarta rauðu hári Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „YFIRLÝSINGAR Jóhönnu [Sig- urðardóttur forsætisráðherra, innsk. blm.] um störf bankastjórnarinnar eru pólitískar og þær jaðra, eins og sumir segja, við að vera einelti,“ seg- ir Halldór Blöndal, formaður banka- ráðs Seðlabanka Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra kynnir í dag frumvarp á ríkisstjórnarfundi um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sem felur í sér að einn bankastjóri verður yfirmaður bankans. Til stendur að auglýsa stöðuna. Jóhanna sendi stjórn bankans, Ingimundi Friðriks- syni, Eiríki Guðnasyni og Davíð Oddssyni stjórnarformanni, bréf í gær þar sem hún óskaði eftir því að stjórnin myndi hætta störfum sem fyrst til þess að mögulegt væri að endurvekja traust á bankanum og á stjórnun efnahagsmála í landinu. Frumvarp Jóhönnu felur einnig í sér breytingu á því hvernig skipað verð- ur í bankaráð seðlabankans. Halldór segir þær „pólitísku yfirlýsingar“ sem fallið hafa um stjórn seðlabank- ans stafa af því að Davíð hafi verið leiðtogi sjálfstæðismanna í á annan áratug. „Það hefur hins vegar lítið farið fyrir efnislegri gagnrýni á stjórnina,“ segir Halldór. Eiríkur Guðnason staðfesti í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi að stjórnin hefði fengið bréf frá for- sætisráðherra en vildi ekki tjá sig um það. Stjórninni sagt að víkja  Forsætisráðherra ætlar að auglýsa stöðu seðlabankastjóra  Yfirlýsingar jaðra við einelti, segir formaður bankaráðs Í HNOTSKURN» Frumvarp Jóhönnuverður fyrst afgreitt út úr ríkisstjórn. Svo verður það til umfjöllunar hjá þing- flokkum VG og Samfylk- ingar, og hjá Framsókn- arflokki einnig. » Allir helstu fjölmiðlarheims, þar á meðal Asso- ciated Press og Reuters, fjölluðu um bréf Jóhönnu til stjórnar seðlabankans í gær- kvöldi.  Ráð með sérfræðingum | 15 TJÖRNIN í Reykjavík er óumdeilanlega eitt frægasta kennileiti borg- arinnar enda hafa myndir af henni víða ratað á póstkortum erlendra ferða- manna. Tjörnin þykir ekki síst verðugt myndefni á veturna þegar vatnið leggur því þá gefa ekki aðeins fuglar henni líf heldur líka sprækir mennta- skólanemar og aðrir sem nýta sér árstíðabundinn völlinn til ýmissa íþrótta- iðkana, sérstaklega í blíðviðri eins og nú hefur ríkt dögum saman. Tjarnarbolti í vetrarsólinni Morgunblaðið/Golli  EIGNIR gamla Glitnis eru taldar í þúsundum milljarða króna, frekar en hundruðum, að sögn Kristjáns Þórarins Davíðssonar, fram- kvæmdastjóra Glitnis banka hf. Unnið er að uppgjöri eignasafns gamla hluta Glitnis og um 20 manns vinna nú hjá fyrirtækinu. Í bígerð er að ráða tvo til viðbótar í þessari viku. Bankinn er í eigu kröfuhafa á bankann og laun starfsmanna eru greidd úr búinu. Tíminn sem upp- gjörið tekur verður mjög líklega mældur í árum frekar en mán- uðum. Ekki er ljóst hvenær áætlun um hversu mikil verðmæti munu nást úr bankanum verður tilbúin. Strax eftir bankahrunið mikla tók til starfa fimm manna skila- nefnd, undir forystu Árna Tóm- assonar. Meðlimir hennar hittast enn daglega til að ráða ráðum sín- um. Skilanefndin starfar í umboði Fjármálaeftirlitsins sem jafnframt greiðir laun nefndarmanna. »8 Eignasafnið afar stórt Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is SKIPVERJAR á Aðalsteini Jóns- syni SU urðu varir við loðnu á Papagrunni í fyrrinótt. Hafrann- sóknarskipið Árni Friðriksson, sem var inni á Reyðarfirði í gær, heldur til leitar á þessum slóðum í dag. „Okkur fannst þetta vera væn- legasti flekkur sem við sáum,“ sagði Daði Þorsteinsson, skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni, síðdegis í gær. „Við keyrðum eftir þessu í einar sjö mílur og svo annað eins í vest- ur. Ég viðurkenni að mig langaði alveg hrikalega mikið að kasta á hana. Vonandi tekst að mæla eitt- hvað út úr þessu, ekki veitir okkur af,“ sagði Daði. Hann sagðist hafa þær upplýs- ingar frá skipverjum á Smáey VE að þeir hefðu orðið varir við tals- vert af loðnu S og SA af Hvalbak, en hugsanlega væru fiskifræðingar búnir að mæla þá loðnu. Loðnuleit áfram eða gulldepla Þorsteinn Sigurðsson, forstöðu- maður nytjastofnasviðs Hafrann- sóknastofnunar, sagði að rann- sóknarskipið Árni Friðriksson færi í dag til loðnuleitar á Papagrunni, austur af Stokksnesi. Þorsteinn sagðist ekki hafa forsendur til að meta hversu mikið af loðnu væri þarna á ferðinni en ástæða væri til að kanna þetta nánar. Í framhaldinu yrði metið hvort loðnu yrði leitað áfram eða hvort Árni héldi til mælinga á gulldeplu eins og ráðgert hefði verið. Fundu loðnu á Papagrunni  Vænlegasti flekkur, segir Daði Þorsteinsson, skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni SU  Skipverjar á Smáey VE urðu varir við talsvert af loðnu S og SA af Hvalbak FYLGI ríkisstjórnin eftir hug- myndum sínum um að opna fyrir greiðslur úr séreignarsjóði býður það þeirri hættu heim að skuld- endur verði beittir þrýstingi af kröfuhöfum um að ganga á lífeyr- isséreign sína. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Landssambands líf- eyrissjóða, segir að í mörgum til- vikum eigi „menn lítið í þessum sjóðum“. Þetta fé hafi því óveruleg áhrif hjá þeim sem hafi tekið há lán og því þurfi að „tryggja að þetta fari a.m.k. í greiðslu vaxta og afborg- ana“. | 4 Býður heim vissri hættu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.