Morgunblaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 35
Menning 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Sögusviðið er kaþólskur skóliheilags Nikulásar í Bronxá öndverðum sjöunda ára-tugnum. Morðið á Ken- nedy forseta hvílir enn eins og mara á þjóðinni og hinn framsýni og frjálslyndi faðir Flynn (Hoff- man), sem þjónar sem prestur við kirkjuna og kennir við skólann, er að reyna að milda strangt and- rúmsloftið innan veggja og færa það í átt að umbótunum sem færast í aukana meðal almennings. Til- raunir hans falla í misjafnan jarð- veg, eru í hávegum hafðar meðal nemendanna en eitur í íhalds- sömum beinum skólastýrunnar, systur Aloysius (Streep). Hún er algjör andstæða föður Flynns, „haukur“ sem heldur uppi járnaga, hvöss og harðlynd en umfram allt tortryggin, einkum í garð Flynns. Meðal fárra breytinga sem orðið hafa um og eftir forsetatíð Kenn- edys og náð inn fyrir þungar og járnslegnar eikardyr kirkju heilags Nikulásar, er að Donald Miller (Foster) er fyrsti þeldökki nemand- inn og altarisdrengurinn í sögu skólans. Faðir Flynn hefur tekið Miller upp á arma sína og áunnið sér trúnað hans. Miller er ekki að- eins í því erfiða hlutverki að vera einn litaður innan um skólasystk- inin, heldur býr hann við slæmar heimilisaðstæður, sætir ofbeldi af hálfu föður síns. Flynn veitir hon- um þá föðurlegu umhyggju sem hann hefur orðið af í lífinu. Fátt fer framhjá haukfránni systur Aloysius sem lítur sam- bandið öðrum augum, skammt síð- an mál barnaníðinga í klerkastétt skóku kaþólsku kirkjuna og hún sér ósæmilega hegðun í minnstu snertingu föður Flynns og þeim til- finningaböndum sem hann hefur myndað við einfarann Miller. Þegar hin barnslega hreinlynda og heit- trúaða systir James (Adams), segir systur Aloysius frá grunsamlegum samskiptum þeirra Millers og prestsins, og smávægilegu afbroti drengsins, er illur grunur Aloysius staðfestur og hún berst með illu sem góðu fyrir því að drengurinn verði rekinn og faðir Flynn fari sömu leiðina. Shanley leikstýrir handriti sem hann gerði eftir eigin leikriti sem vann til verðlauna á sínum tíma, en höfundurinn er sjálfsagt þekkt- astur fyrir krassandi handrit Mo- onstruck, eina eftirminnilegustu mynd 9. áratugarins, ekki síst fyrir litríkar persónur (sem voru að auki frábærlega vel leiknar), og leiftr- andi smáatriði í textanum („…la Luna…“). Sömu kostir eru meg- instyrkur Doubt, sem er ekki að- eins einvígi um sálir heldur takast á stórleikarinn Streep og Hoffman, sá mæti leikari sem hefur oftast haldið sínu og vel það, uns hann hittir fyrir klækjarefinn Streep, sem kann að nýta hvert augnablik, hvert tillit og setningu til að drottna yfir myndinni. Þrátt fyrir að hlutverkið sé ótrúverðugt og stundum yfirgengilegt. Lítil skýr- ing er gefin á fordæðuhætti nunn- unnar, að vísu gefið í skyn að henni hafi skrikað fótur á lífsleiðinni og misst mann sinn í hernaði áður en hún gekk í þjónustu almættisins. Hún hikar jafnvel ekki við að brjóta boðorðin til að sigrast á and- stæðingnum. Streep gerir nunnuna það ógnvekjandi að áhorfandanum stendur hreinlega stuggur af henni. Líkt og nafnið bendir til fjallar myndin fyrst og fremst um efann og trúna. Sú eina sem trúir en efast ekki er systir James (Adams), hún er tákn hreinleikans og ástarinnar sem virðist hafa sniðgengið stein- hjarta systur Aloysius. Áhorfand- inn er litlu nær um innri mann Flynns. Þau eru ósnertanleg í skugga efans, nunnan og klerk- urinn. Doubt svarar ekki mörgum spurningum en spyr þeim mun fleiri og vekur áhorfandann til um- hugsunar um sekt og sakleysi og ekki síst umburðarlyndi. Shanley nær sér best á strik í stólræðum föður Flynns, þræturnar á milli hans og systur Aloysius eru ekki alltaf jafn innblásnar. Innkoma móður Millers litla (Davis) kemur róti á myndina þó hún tali undir rós. Streep sýnir á sér nýja hlið sem ofsóknaróð nunnan sem engu trúir öðru en sjálfri sér og lokaatriðið er áhrifaríkt þó það sé í andstöðu við persónuna að öðru leyti og léttvæg lausn. Hoffman er þéttur og hlýr og gerir klerkinn grunsamlegan með tvíræðu yfirbragði, Davis og Adams eru báðar framúrskarandi en myndin er engu að síður óskipt- ur tími nunnunnar. Tími nunnunnar Sambíóin Doubt bbbbn Leikstjóri: John Patrick Shanley. Aðal- leikarar: Meryl Streep, Philip Seymour Hoffman, Amy Adams, Viola Davis, Jos- eph Foster, Alice Drummond. 106 mín. Bandaríkin. 2008. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Vafi Doubt vekur áhorfandann til umhugsunar um sekt og sakleysi. Eftir misjafnt gengi síð-asta áratuginn er ekkiannað að sjá en Allenkarlinn, hálf-áttræður, hafi fundið að nýju gamla reisn suður í hinni heillandi höfuðborg Katalóníu, Barcelónu. Hann er fyndinn, orðheppinn og vís og kyn- órarnir grassera sem aldrei fyrr. Heitt sumarið við Miðjarðarhafið, sexí og freistandi borgin og kvennablóminn virkar eins og bensín á tilfinningabál og sköp- unargáfu leikstjórans/handritshöf- undarins. Niðurstaðan af öllu þessu er ein besta mynd Allens í áratug, eða meira. Leikstjórinn hefur haft mikið dá- læti á Barcelónu og hrifning hans á hispurslausu mannlífi hennar og al- mennum áhuga og dýrkun á listum leynir sér ekki. Borgin er bæði undurfögur og listasöfn, gallerí, höggmyndir, einstakur arkitektúr Gaudis og fleiri góðra manna, listin er allt um kring, líkt og þetta ið- andi, litríka mannlíf. Hún virkar eins og hormónasprauta á hug- myndaflug Allens sem kallar til leiks tvær ólíkar, amerískar stúlk- ur, nýkomnar í sumarfrí til borg- arinnar. Vicky (Hall) er dökkhærð, frekar alvarlega sinnuð og skipu- lögð. Hún er í föstu sambandi við Doug (Messina) sem hún ætlar að giftast innan tíðar. Cristina (Joh- ansson), er algjör andstæða vin- konu sinnar; ljóshært fiðrildi, fis- létt í lund og laus á kostum. Tímamót verða í lífi þeirra þegar til sögunnar kemur spánski sjarm- örinn og listamálarinn Juan Anton- io (Bardem). Hann er ekki að sól- unda tímanum til einskis, gengur beint til verks og segist þrá að njóta þeirra beggja. Þegar hann hefur tælt þær til heimaborgar sinnar Oviedo, verður eftirleik- urinn léttur því hin grandvara Vicky er ekki lengur fullviss um hvað hún vill og Cristina er opin fyrir ævintýrunum ef þau bjóðast. Juan Antonio kemur eins og frelsandi engill, eða kannski öllu frekar, skrattinn úr sauð- arleggnum, inn í líf vinkvennanna og heillar þær upp úr skóm og sokkum, áður en þær geta talið upp að tres. Bardem er flottur og magnaður skapgerðarleikari sem hefur þennan grófa sjarma sem virðist koma blóði kvenna á losta- fulla hreyfingu. Hann minnir meira en lítið á Anthony sáluga Quinn, sem bjó yfir þessum töfrum, enda að hluta rómanskur eins og Kan- aríeyjabúinn Bardem Þá er ótalin hin undurfríða og kynþokkafulla Cruz, sem hefur af miklum leikhæfileikum að státa, líkt og Bardem. Hún kemur eins og eldgos inn í myndina, sem Maria Elena, fyrrverandi eig- inkonan Juans Antonios. Lítillega tjúlluð og háð sínum fyrri ekta- manni þó hún hafi ætlað að stinga hann á hol. Þessi suðræni blóðhiti er síst til að ergja Juan Antonio, og persónurnar gefa sig hver ann- arri á vald eftir því hvernig straumarnir liggja. Það er mikill munaður í loftinu umhverfis vinkonurnar en tilfinn- ingahitinn og lífsgleðin stormar af Juan Antonio, sem gefur hinum óútreiknanlega Bardem tækifæri til að sýna á sér hlið sem er eins fjarri mannhundinum Chigurh í No Country for Old Men og hugsast getur. Cruz ber höfuð og herðar yfir kvenleikarana, Maria Elena er sem sprottin upp úr tign og glæsi- leika Passeig de Gracia og ólýs- anlegu litrófi Römblunnar; hríf- andi, æsandi og lífshættuleg ef menn gæta ekki að sér. Hall er trúverðug sem hin varkára Vicky en Johansson er fönguleg en hent- ar ekki hlutverkið, var mun trú- verðugari í t.d. Lost in Translation. Hún blómstrar við norðlægari skil- yrði. Vicky Cristina Barcelona er augnayndi, í orðsins fyllstu merk- ingu. Allen fangar rómað seiðmagn Barcelónu og svellandi æðaslátt, er dálítið djarfur á sinn sposka og laungraða máta og hefur náð að galdra fram bráðskemmtilega og kynþokkafulla mannlífspælingu sem segir meira um ytri aðstæður en innri. Það er yfirdrifið nóg. 3 konur og karl Yndi Vicky Cristina Barcelona er augnayndi, í orðsins fyllstu merkingu. Græna ljósið kynnir í Háskólabíói Vicky Cristina Barcelona bbbbn Leikstjóri: Woody Allen. Aðalleikarar: Rebecca Hall, Scarlett Johansson, Jav- ier Bardem, Penélope Cruz, Patricia Clarkson, Kevin Dunn, Chris Messina. 97 mín. Spánn/Bandaríkin. 2008. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND FYRIRSÆTUR í Mumbai á Indlandi stilla sér upp fyrir framan dómara sem sjá um að velja pilta og stúlkur til að sýna nýjustu línur fatahönn- uðanna á tískuviku borgarinnar sem hefst eftir nokkra daga. Tískusýn- ingar verða á nokkrum stöðum í heila viku og hundruð stúlkna gerðu sér í gær vonir um að komast í kastljós hinna upphækkuðu göngubrauta þar sem háfættar fyrirsætur sýna fötin og sjálfar sig um leið. Reuters Vilja sýna flíkurnar POPPSÖNGKONAN Britney Spears hefur á liðnum misserum oft- ar verið í fréttum fyrir vandræða- gang en velgengni á tónlistarsviðinu. Þá hefur hún verið gagnrýnd fyrir að sinna sonum sínum tveimur ekki sem skyldi. Nú greina fjölmiðlar hins vegar frá því að Spears hafi með góðra manna hjálp unnið í því að koma andlegu hliðinni í lag, og að svo hafi ábyrgð hennar gagnvart börnunum styrkst að hún sé reiðubúin að hætta við tónleikaferð ef drengirnir geti ekki ferðast með henni. Fyrirhugað er að hún leiki á 44 stöðum á svokölluðum Cirkus-túr og á hann að hefjast 3. mars. Samkvæmt The Sun höfðu barns- faðir Spears, Kevin Federline, sem fer með forræðið, og móðir hennar Jamie, samið um að drengirnir fengju að ferðast með Spears og hún setti upp heimili á þremur stöðum á meðan þar sem þau mæðgin gætu verið saman í næði. Nú er því hins vegar haldið fram að lögfræðingar Federline hafi fengið hann til að skipta um skoðun og hann vilji ekki leyfa þetta fyrirkomulag. Fyrir vikið er óvíst um tónleikaferðina. Hættir Spears við tónleikaferð? Reuters Spears Stúlkan var hressileg að sjá á MTV-hátíðinni í september.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.