Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 18

Morgunblaðið - 03.02.2009, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ ÞingmennSjálfstæð-isflokks lýstu yfir því í gær að þeir hygðust láta það verða sitt fyrsta verk þegar þing kemur saman á morgun að leggja fram tvö frumvörp, annað um aðlögun skulda, hitt um sér- eignarsparnað. Tilgangurinn með fyrra frumvarpinu er að auðvelda fólki, sem komið er í algjört þrot með skuldir sínar, að ganga til samninga. Hitt frumvarpið snýst um heimild til að greiða út séreignar- sparnað til greiðslu veðskulda og annarra skulda. Svo vill til að bæði þessi mál eru á verkefnalista nýrr- ar ríkisstjórnar. Að auki voru frumvörpin fullunnin af hálfu fyrri ríkisstjórnar, annað þeirra hafði ríkisstjórnin samþykkt og í raun átti að- eins eftir að leggja þau fram á þingi. Undanfarin misseri hefur verið nokkur umræða um valdaleysi þingsins. Það at- hyglisverða við þessa um- ræðu er að forsprakkar henn- ar voru ekkert síður úr röðum stjórnarþingmanna en stjórn- arandstæðinga. Kvörtuðu þeir sáran yfir því að fram- kvæmdavaldið virtist líta á þingið sem afgreiðslutæki fyrir stjórnar- frumvörp. Þeirri spurningu var reyndar aldrei svarað af hverju þingið einfaldlega tók sér ekki vald sitt. Í það minnsta er vandséð hvað ætti að vera því til fyrirstöðu ef fylgið væri fyrir hendi. Nú hefur verið talað um að tími væri kominn til að taka upp ný vinnubrögð. Hér væri auðvelt að stíga skref í þá átt. Það kann að vera freistandi að leggjast í skotgrafirnar á Alþingi, en aðstæðurnar í þjóðfélaginu bjóða einfald- lega ekki upp á slík vinnu- brögð. Almenningur væntir þess af nýrri stjórn að hún komi hlutum í verk og því hlýtur að vera sjálfsagt að nota það, sem þegar hefur verið unnið og er tilbúið í stað þess að kasta því á glæ. Það kann að vera að núver- andi stjórnarflokkum þyki Sjálfstæðisflokkurinn hafa setið nógu lengi við völd – og því verður ekki neitað að valdatíminn var orðinn ærið langur – en það eru ekki rök fyrir því að einangra flokkinn með öllu. Ef einhvern tímann hefur verið ástæða til þess í pólitík að meta hvert mál á eigin forsendum og án tillits til þess hvaðan það er komið er það nú. Eru verk stjórnar- andstöðunnar stjórninni boðleg?} Samvinna á þingi Í dag yfirgefurnýfrjáls- hyggjan stjórn- arráðið,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon formað- ur Vinstri grænna og nýr fjármálaráðherra þegar ný ríkisstjórn var kynnt á sunnudag. Að nota hugtakið „nýfrjáls- hyggja“ með þeim hætti sem Steingrímur gerir er síst til þess fallið að bregða birtu á pólitískt landslag á Íslandi. Enda er afar óljóst hvað felst í hugtakinu, eins og Stein- grímur lýsti raunar sjálfur í þingræðu í desember síðast- liðnum: „Fyrirbærið nýfrjáls- hyggja, markaðs- og græðgisvæðing samfélags, er huglægt og óefnislegt þannig að ekki er hægt að ná hönd- um utan um hugmyndafræð- ina sem slíka.“ Það merkilega er að ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins, sem nú hafa yfirgefið Stjórnarráðið, hafa aldrei skilgreint sig sem boðbera „nýfrjálshyggju“. Enda hafa þeir að mörgu leyti hegðað sér með öndverðum hætti í ríkisstjórn, þar sem ríkisútgjöld hafa hækkað svo um munar, ekki síst til heilbrigðis- og menntamála. Víst er flokk- urinn hlynntur frjálsu mark- aðshagkerfi sem byggist á eignarrétti í lýðræðissam- félagi, en það sama gildir um aðra „miðjuflokka“ á þingi. Þegar Steingrímur talar um að „nýfrjálshyggjunni“ hafi verið úthýst úr Stjórnar- ráðinu ýjar hann að því að hugmyndafræðileg bylting hafi átt sér stað. En sam- starfið við Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn heldur áfram, sem stangast síst á við viðhorf frjálshyggjunnar. Og það verður ekki ráðið af verkefnaskrá nýrrar ríkis- stjórnar að nein þáttaskil hafi orðið í íslenskri pólitík, enda snerust stjórnarslitin að miklu leyti um „verk- stjórn“. Kannski er Steingrímur að hugsa í „lengri boga“? Erfitt er að festa hendur á hugtakinu nýfrjálshyggja} Byltingar enn að bíða K æri vinur. Ég gleymdi að senda þér jólakort og þú færð því hér í staðinn hugheilar þorrakveðjur frá okkur hjónunum og dætr- unum þremur, með von um far- sæla góu. Við sjáum svo til með framhaldið. 1. Við erum ekki sérlega gleymin. Mundum t.d. eftir fermingardegi dótturinnar síðastliðið vor. Og munum hann enn. 2. Við mundum líka eftir tvítugsafmæli elstu dótturinnar, þó mér þyki ótrúlegt að 20 ár hafi þá verið liðin frá því Ísland steinlá fyrir Sov- étríkjunum í handboltakeppni Ólympíu- leikanna í Seoul. Það var nóttina sem hún fæddist; 28. september, ef ég man rétt … 3. Ég reyni að muna á hverjum einasta degi að bjóða eiginkonu minni og dætrum góðan dag. Og að segja þeim hve vænt mér þykir um þær. 4. Ég býð konunum mínum fjórum góða nótt með kossi á kinn nánast á hverju kvöldi. 5. Eiginkonan býður dætrunum og eiginmanninum góða nótt með kossi á kinn hvert einasta kvöld. Nánast. 6. Dæturnar bjóða foreldrunum góða nótt með kossi á kinn þegar þær muna eftir því. 7. Yngsta dóttirin man alltaf að festa á sig spékoppana á morgnana. 8. Fjölskyldan man oftast eftir því að borða hollan mat og drekka mikið – vatn. 9. Elsta dóttirin minnir pabba sinn oft á að hann vinnur til að lifa, en lifir ekki til að vinna. 10. Elsta dóttirin minnir pabba sinn líka oft á að það er hollt að borða – eitthvað. 11. Konurnar á heimilinu eru sparsamar en karlmaðurinn man að vera nískur. 12. Eiginkonan keypti ekki flatskjá en gleymdi því ekki. Það stóð aldrei til. 13. Við mundum oft að gleyma að horfa á fréttirnar, sérstaklega eftir 5. október. 14. Karlinn á heimilinu segist ennþá ríkur, þrátt fyrir kreppuna. Sjá lið 3-6. 15. Við reynum yfirleitt að muna eftir því hve dýrmætt er að sofna í góðu skapi. 16. Karlmaðurinn man oftast eftir því hve dýrmætt er að sofna. 17. Elsta dóttirin gleymir því ekki að hún hyggst verða stúdent vor. Og þá munum við muna að gleðjast rækilega. 18. Eitt gleymdist á árinu; að þurrka af efstu bókahill- unni. Gleymdist raunar ekki heldur var frestað og ákveðið að spila Trivial Pursuit í staðinn. Rykið fer ekki langt en stelpurnar flytja einhvern tíma að heiman. Þá verður hægt að þurrka af. 19. Við gleymum aldrei að fara á völlinn þegar dæturnar klæðast keppnisbúningnum og reima á sig fótboltaskóna. Og ekki að vera montin vegna þess hve vel þær standa sig. Heldur ekki þegar stelpunum gengur vel í skólanum. Farðu vel með þig, vinur. Mundu hve dýrmætt er að borða, brosa, sofa og vera góður við þá sem þér þykir vænt um. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Gleymdu ekki að vera góður FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is S tjórnlagaþing er Íslend- ingum framandi fyrir- bæri, enda þótt íslenska stjórnarskráin eigi rætur að rekja til slíkrar sam- komu. Það var í Danmörku 1848-49. Til umræðu kom að halda slíkt þing eftir lýðveldisstofnun en aldrei varð af því. Um svipað leyti, á árunum eft- ir stríð, tóku um tíu ríki sig til og héldu stjórnlagaþing. Að sögn Ágústs Þórs Árnasonar, aðjunkts við hug- og félagsvísindadeild Háskól- ans á Akureyri, eru til heimildir um 150 stjórnlagaþing, víðs vegar um heiminn, frá árinu 1789. Spurður um fordæmi fyrir þingi sem þessu, sem haldið hefur verið með skömmum fyrirvara, nefnir Ágúst þjóðfundinn í Noregi árið 1814. 112 manns komu þá saman í bænum Eidsvoll og sömdu stjórnarskrá á nokkrum vik- um með litlum fyrirvara. Um þetta leyti hafði Noregur verið afhentur Svíum eftir Napóleonsstríðin, en Norðmenn töldu sig bara í konungs- sambandi við Danmörku. Sú stjórn- arskrá hefur staðist tímans tönn. Fulltrúar valdir með hlutkesti Mótaðar hugmyndir um stjórn- lagaþingið hafa komið frá Fram- sókn, sem lagt hefur fram frumvarp um málið. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 63 sætum, sem kosið yrði til í almennum kosningum. „Hugmyndin um að kosið sé til stjórnlagaþings er að hluta til ágæt. En ég tel reyndar að hluta af mannskapnum ætti jafn- vel að velja með hlutkesti,“ segir Ágúst. Með því móti megi tryggja að a.m.k. hluti fulltrúa sé alfarið laus við áhrif frá ákveðnum bakhjörlum eða hópum. Hann segir ekki nauðsynlegt að reyna að tryggja ákveðið hlutfall sérfræðinga í hóp fulltrúa á þinginu, heldur ætti flest vel upplýst fólk að geta sett sig inn í málefni þess. Mynda þurfi sérfræðinefndir, halda ráðstefnur og kosta verulega til upp- lýsingagjafar í kringum það. „Þá mætti ráðgjafarþing eða umræðu- þing, sem væri allt að þrisvar sinn- um fjölmennara en stjórnlagaþingið sjálft, hittast einu sinni í mánuði á starfstíma þess,“ segir Ágúst. Miklu þurfi að kosta til að tengja um- ræðuna við almenning allan, með fundahöldum um allt land og virkri umræðu á netinu. „Til eru fyr- irmyndir af þessu frá síðustu árum. Til dæmis frá Suður-Afríku, Sviss og Hollandi, þar sem endurskoðun stjórnarskrár hefur verið rædd úti í þjóðfélaginu.“ Þau ferli hafi þó tekið lengri tíma en þá sex mánuði sem hér eru áætlaðir í þingið. Flokkarnir haldi sig til hlés Ágúst segir hugmyndir framsókn- armanna um stjórnlagaþing og hvað þar sé hægt að ræða, um margt ágætar. Framsókn hefur nefnt þrí- skiptingu ríkisvalds, skipun dómara og margt fleira. Hins vegar fer betur á því, að mati Ágústs, að flokkarnir haldi sig til hlés í umræðum um hvað stjórnlagaþingið eigi að taka sér fyr- ir hendur. „Ég held að ekki sé rétti tíminn núna til að leggja línurnar um það. Stjórnlagaþingið ætti að velta því upp fyrir sjálft sig,“ segir Ágúst. Hann geldur samt varhug við rót- tækum hugmyndum um umbyltingu stjórnarfarsins. „Menn þurfa líka að spyrja sig hvort ekki sé skynsamlegt að leysa vandamálin innan þeirrar lýðræðishefðar sem er ríkjandi. Þetta mál á ekki að snúast um end- urritun stjórnarskrárinnar bara til þess eins að endurrita hana.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Á Alþingi Ágúst Þór Árnason talar um stjórnlagaþing í HA kl. 15 í dag. Lýðræðisskólinn sem þjóðin nam aldrei við Hvað kostar stjórnlagaþing? Í frumvarpi þingmanna Fram- sóknarflokks, um stjórnlagaþing, kemur fram að þingmenn skuli njóta sömu kjara og alþing- ismenn. Í ár er þingfararkaupið 520.000 krónur. Samkvæmt frumvarpinu eiga 63 að taka sæti á stjórnlagaþingi, líkt og á Al- þingi. Launakostnaður á mánuði yrði því um 32,8 milljónir króna. Starfstími þingsins yrði sam- kvæmt frumvarpinu líklega ekki meiri en sex mánuðir, en gæti þó farið í allt að tólf ef allir frestir yrðu nýttir. Þetta þýðir launa- kostnað á bilinu 196-393 milljónir króna. Þar að auki hefði forsætisnefnd stjórnlagaþingsins heimild til að stofna til útgjalda ríkissjóðs vegna aðstöðu, starfsfólks og ráðgjafar, sem yrði væntanlega ærinn. Mjög erfitt er að hugsa sér stjórnlagaþing með minni til- kostnaði en 250 milljónum króna. Þar að auki verða einar til þrenn- ar aukakosningar í ferlinu. Al- menn kosning á landsvísu kostar 160-170 milljónir króna. Svo lík- legt er að heildartalan endi ekki fjarri 500-600 milljónum króna, en gæti þó orðið miklu hærri. S&S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.