Morgunblaðið - 03.02.2009, Page 10

Morgunblaðið - 03.02.2009, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 Íslendingar fá ekki oft tækifæri tilað vera leiðandi í heiminum þeg- ar kemur að regluverki og laga- setningum. Hingað til hefur land- inn talið sig leiðandi í stoðtækjaframleiðslu, fjármála- vafstri undir það síðasta, já og handbolta öðru hvoru.     Íslendingar hafa kosið að nýtareglur og lög nágrannaþjóða. Stjórnarskráin frá árinu 1944 er byggð á þeirri dönsku. Við- skiptalífið er drifið áfram á EES-samn- ingnum. Lög taka oftast mið af því sem gerist á Norðurlönd- unum. En nú er öldin önnur.     Ísland er fyrsta ríkið sem efna-hagsástandið í heiminum leggst á af fullum þunga. Ekki er því hægt að horfa til nágrannalanda þegar vandinn er leystur. Reynt er að vísa til sænsku bankakreppunnar í byrj- un tíunda áratugarins. Kreppan hér er hins vegar sögð hlutfallslega 25-falt dýpri.     Og horft er til Íslands vegna efna-hagsvandans. Gordon Brown vísar því á bug að London sé „Reykjavík á bökkum Thames“. Bretland sé ekki á barmi gjald- þrots.     Hvað er nú til ráða? Það dugaengin vettlingatök á vandann.     Sjálfstæði í hugsun og verki. Þesser nú krafist. Stagbætt, stað- fært og stílfært heyrir sögunni til.     Markmiðið er að horft verði tilÍslands þegar leita á leiða til að leysa vanda. Niðurstaðan má ekki verða að heiti Íslands eða höf- uðborgar landsins verði uppnefni á erfiðu, óviðunandi ástandi. Gordon Brown Verður Reykjavík uppnefni?                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -                              12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                           :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? !  ! "!     !     "! "! ! !  #                                    *$BC                   !   "#  !$ %  ! & ! ' ! (! )!    $ *! $$ B *! $%& '(  (&(    ) *+ ) <2 <! <2 <! <2 $ '  (,  -(. )/  D8- E                  /       * ! +!     +  # #  ! )!  )        +     $   87   ,  +! ! -! ! ' #)    #, +.  $/(- )  )(  !+    )   ! !!     ! $ % 0 ! 1 !   (! )! $ 01(%()22 ) (* %(3) *)(,  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is LOKUN vinstri beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut til sex mánaða mun taka gildi í vor en þær breytingar hafa verið gerðar á verk- efninu að í stað þess að beygjan verði bönnuð allan sólarhringinn mun lokunin aðeins gilda á álags- tímum seinnipart dags. Þetta segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður umhverfis- og sam- gönguráðs. Eftir er að kynna tilraunina fyrir íbúum og hverfaráðum en að sögn Þorbjargar er markmiðið að reyna að auka flæði umferðar á aðalbrautum, að því gefnu að gegnumstreymisumferð á Bú- staðaveginum minnki. Skilti verða sett upp víðs- vegar á Bústaðaveginum sem segja frá lokuninni. Mætti harðri gagnrýni Lokunin hefur verið harðlega gagnrýnd síðan hún var samþykkt í borgarráði í lok nóvember- mánaðar á síðasta ári. Íbúasamtök Bústaðahverfis og hverfisráð Háaleitis- og Bústaðahverfis hafa mótmælt og nú síðast bættust Samtök verslunar og þjónustu í hópinn. „Þeim brá aðeins í brún vegna þess að þarna keyra bílar í gegn [taka vinstri beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanes- braut] sem komast ekki undir skiltin á stofnbraut- unum. Það er eðlilegt að íbúum hverfanna bregði í brún því það kemur í ljós að stórir bílar þurfa að keyra þar í gegn í staðinn,“ segir Þorbjörg Helga. Hún segir að vitað hafi verið um þungaflutninginn en borgarráð hafi ekki gert sér grein fyrir að þessi leið væri mögulega sú eina fyrir mjög stóra bíla að fara. „En það er verið að vinna samhliða þessari tilraun að lausnum fyrir þessa bíla.“ Verður aðeins lokað á álagstímum Umdeild lokun á vinstribeygju af Bústaðavegi á Reykjanesbraut tekur gildi í vor „ÞETTA er mjög gefandi starf, ekki síst kórstarfið, enda alltaf gaman að vinna með fólki sem kemur af sjálfsdáðum og af eigin áhuga,“ segir Jón Ingi Sig- urmundsson, kennari og kórstjóri á Selfossi. Kjartan Björnsson, skipuleggjandi Selfossþorrablóts- ins, afhenti Jóni Inga Selfosssprot- ann á blótinu í ár. Selfosssprotinn er afhentur ár- lega á þorrablótinu fyrir framlag í þágu tónlistarinnar. Jón Ingi hafði kennt við grunn- skóla og tónlistarskóla á Selfossi í fimmtíu ár þegar hann lét af störf- um síðastliðið vor. Viðurkenningin er ekki síst veitt fyrir kórstarf. Jón Ingi stjórnaði stúlknakór gagn- fræðaskólans á Selfossi í fimmtán eða sextán ár og kór Fjölbrauta- skóla Suðurlands í sautján ár. „Þetta var mjög skemmtilegur tími og ég á góðar minningar frá hon- um,“ segir Jón Ingi. Stúlknakórinn gaf út hljómplötu 1968 með amer- ískum jólalögum, auk annars efnis. „Platan var mikið spiluð í útvarpi og er enn eftir að hún var gefin út á geisladiski. Við vöktum athygli þegar við komum fram í Sjónvarp- inu.“ Jón Ingi er ekki við eina fjölina felldur því hann er virkur áhuga- málari og heldur sýningar á hverju ári. helgi@mbl.is Morgunblaðið/hag Selfosssprotinn Garðar Thor Cortes, Jón Ingi og Kjartan Björnsson. Gaman að vinna með áhugasömu fólki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.