Morgunblaðið - 03.02.2009, Page 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
Lífshlaupið er fræðslu- og
hvatningarverkefni ÍSÍ fyrir
alla aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja
landsmenn til þess að fara
eftir ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar um
hreyfingu og gera hreyfingu
að föstum lið í lífsstíl sínum.
Lífshlaupið
byrjar 4. febrúar!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
I
44
69
8
01
/0
9
Lífshlaupið Þín heilsa – þín skemmtun
Samstarfsaðilar
Ólympíufjölskyldan
Fersk sending
• Vinnustaðakeppni
• Hvatningarleikur í skólum
• Einstaklingskeppni
Skráning og nánari upplýsingar
á vefsíðunni: lifshlaupid.is
GOLFVELLIR eru ekki ónýttir þótt allt sé á kafi í snjó
því gönguskíðafólk nýtir sér nú færið og fer víða þar
sem alla jafna er erfitt að komast um á skíðum. Hund-
urinn sem tók þátt í skíðagöngu í gærdag sá þó ekki
ástæðu til að fylgja beinu brautinni eins og eigandinn
heldur vék sér aðeins frá til að skoða krumma nánar.
Morgunblaðið/RAX
Krummi og hvutti fylgdu á eftir í skíðagöngunni
Þrennt í föruneyti á golfvellinum
DREGIÐ verður verulega úr kostn-
aði við rekstur Bolungarvíkurkaup-
staðar á þessu ári. Í fjárhagsáætlun
sem lögð hefur verið fram til fyrri
umræðu er gert ráð fyrir liðlega 50
milljóna króna sparnaði. Dregið er
úr þjónustu sem ekki er lögbundin.
Sparnaðurinn er liður í því að
koma fjárhag kaupstaðarins aftur á
réttan kjöl og kemur til viðbótar
hækkun útsvars og tillagna eftirlits-
nefndar með fjármálum sveitarfé-
laga um niðurfellingu skulda vegna
félagslega íbúðakerfisins o.fl.
Meðal sparnaðaraðgerða má
nefna lækkun launa bæjarfulltrúa
og bæjarstjóra. Dregið verður úr
vöru- og þjónustukaupum um 10%.
Þá verður styttur sá tími sem
íþróttamiðstöðin er opin.
helgi@mbl.is
Farið í saum-
ana á rekstri
BÆJARFULLTRÚAR á Blönduósi
hafa rætt óformlega saman um
stjórnun bæjarmála, eftir að slitn-
aði upp úr samvinnu fulltrúa E-
listans sem hefur meirihlutann.
Valgarður Hilmarsson, oddviti E-
listans og forseti bæjarstjórnar,
segir að rætt hafi verið við fulltrúa
gömlu minnihlutaflokkanna, D-lista
og Á-lista, og reiknar með að tekn-
ar verði upp formlegar viðræður
við Sjálfstæðisflokk um myndum
meirihluta. Ágúst Þór Árnason,
oddviti D-lista, segist bíða eftir
svörum E-listans við tilboði minni-
hlutans um að taka við forystu í
bæjarstjórn og bæjarráði.
Þreifingar
á Blönduósi
„ÉG BYRJAÐI náttúrlega í morgun
og vissi þetta í gær,“ sagði Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir félags-
málaráðherra í
gærdag þegar
hún var spurð út í
aðstoðarmanna-
mál sín. Ásta
Ragnheiður sagð-
ist viss um að hún
þyrfti á frekari
aðstoð að halda,
en er enn að
íhuga útfærsluna.
„Og ég er með
rosalega fínt og
flott fólk í ráðuneytinu. Einstaklega
góðan hóp sem verður mér ómetan-
legur í þessari vinnu sem framundan
er.“
„Mjög gott hugtak“
Þegar rennt er yfir verkefnalista
nýrrar ríkisstjórnar má sjá að ráð-
gert er að setja á fót svonefnda vel-
ferðarvakt. Þar er komið fram hug-
tak sem ekki hefur farið hátt,
allavega ekki á síðum Morgunblaðs-
ins. Ásta Ragnheiður segir hugtakið
þó ekki alveg nýtt af nálinni. „Ég hef
oft sagt það á mínum stjórnmála-
ferli, að ég væri á velferðarvaktinni í
þinginu. Þetta er mjög gott hugtak
og brýnt við núverandi aðstæður.“
Á verkefnalista ríkisstjórnarinnar
segir að velferðarvaktin muni fylgj-
ast með félagslegum afleiðingum
bankahrunsins og gera tillögur til að
mæta þeim. Ásta Ragnheiður tekur
fram að ýmislegt sé þegar komið til
framkvæmda og aðrar aðgerðir í
vinnslu. „Ég hef farið um ráðuneytið
og sé að það er verið að vinna að
mörgum góðum málum. Svo þurfum
við að vera dugleg við að koma þeim í
framkvæmd. Ég ætla mér að koma
þeim málum til skila sem verið er að
vinna að.“
Þegar hún er spurð nánar út í þau
verkefni bendir Ásta á að sjálfsagt
verði farið nánar ofan í málefni vel-
ferðarvaktarinnar á fyrsta ríkis-
stjórnarfundinum, sem haldinn verð-
ur í dag. „En ríkisstjórnin verður á
vaktinni og fylgist vel með afleiðing-
um þessa hruns sem við lentum í. Við
munum grípa til aðgerða til að verja
fólk, og hafa möskva öryggisnetsins
það þétta að fólk falli ekki á milli.“
andri@mbl.is
Stjórnin verður á
velferðarvaktinni
Nýr félagsmálaráðherra hefur ekki gert
upp hug sinn varðandi aðstoðarmann
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
TUTTUGU og fimm umsóknir
bárust um starf forstjóra nýrrar
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar
fyrir blinda, sjónskerta og dauf-
blinda einstaklinga. Umsóknar-
frestur rann út 19. janáuar síðast-
liðinn.
Lög um stofnunina voru sam-
þykkt á Alþingi í desember síðast-
liðnum.
Nýja stofnunin tók til starfa
samkvæmt lögunum 1. janúar og
leysir m.a. af hólmi Sjónstöð Ís-
lands, sem hefur verið lögð niður.
Félags- og tryggingamálaráðherra
skipar forstjóra til fimm ára í senn
samkvæmt lögum.
Eftirtaldir sóttu um starf for-
stjóra:
Arnar Pálsson, Arnþór Helga-
son, Atli Steinn Guðmundsson,
Bergur Þ. Steingrímsson, Björn
Vernharðsson, Erna Guðmunds-
dóttir, Gunnar Karl Nielsson,
Gylfi Skarphéðinsson, Haukur
Arnþórsson, Hrefna K. Óskars-
dóttir, Hrönn Pétursdóttir, Huld
Magnúsdóttir, Játvarður Jökull
Ingvarsson, Jenný Þ. Magnúsdótt-
ir, Jóhannes Guðni Jónsson, Jón
Sævar Jónsson, Júlíana H. Aspel-
und, Olga Möller, Ómar Þór Eyj-
ólfsson, Ronald Guðnason, Sara
Magnúsdóttir, Sólrún Halldórs-
dóttir, Sólrún Hjaltested, Svavar
Guðmundsson og Tamara Lísa
Roesel.
Margir sóttu
um starf
forstjóra
Ráðherra skipar í
embættið til 5 ára
SVAR embættismanna heilbrigðis-
sviðs Reykjavíkurborgar við fyrir-
spurn fulltrúa Samfylkingarinnar
og Vinstri grænna um heilsufars-
leg áhrif piparúða á þá sem fyrir
honum verða veitir ekki fullnægj-
andi svar um mögulega skaðsemi
hans, að mati Guðrúnar Erlu
Geirsdóttur, varaborgarfulltrúa
Samfylkingar.
Máli sínu til stuðnings vísar Guð-
rún Erla til álitsgerðar Eitrunar-
miðstöðvarinnar, sem aðgengileg
er í styttri útgáfu á netinu, að því
er virðist, þar sem segir að ein-
kenni komi fljótt fram en vari yfir-
leitt stutt, í 20-30 mínútur, en geti
jafnvel „varað dögum saman“.
„Atsmasjúklingar og aðrir með
undirliggjandi öndunarfæra-
sjúkdóma eru viðkvæmari,“ segir í
greinargerðinni og telur Guðrún
Erla að með því sé áhyggjum af
skaðsemi úðans á þessa einstak-
linga ekki svarað að fullu.
baldura@mbl.is Meira á mbl.is
Vill ítarlegri svör um úða