Morgunblaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
✝ Guðrún BjörkRúnarsdóttir Fre-
derick fæddist í Kefla-
vík 5. ágúst 1971. Hún
varð bráðkvödd á
heimili sínu í Keflavík
23. janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar eru
Rúnar Lúðvíksson, f.
20. desember 1943, og
Fríða Felixdóttir, f.
19. nóvember 1943.
Systkini Guðrúnar eru
Lúðvík, f. 21. júní
1963, kvæntur Iðunni
Ingólfsdóttur, þau
eiga tvö börn, Gunnar Felix, f. 11.
febrúar 1967, kvæntur Örnu Hrönn
Sigurðardóttur, þau eiga þrjú börn,
og Særún Ása, f. 18. júní 1979, í sam-
búð með Jónasi Þór Jónassyni, þau
eiga fjögur börn.
Sonur Guðrúnar og Vilberts Gúst-
afssonar, f. 9. apríl 1973, er Gunnar
Már, f. 3. september
1991.
Guðrún Björk gift-
ist hinn 29. október
1994 Kenneth William
Frederick, f. 25. sept-
ember 1968. For-
eldrar hans eru Paul-
ine H. Spiegel og
William E. Frederick,
þau eru búsett í
Bandaríkjunum. Guð-
rún og Kenneth eign-
uðust tvær dætur,
Söru Margréti, f. 12.
október 2001, og Vikt-
oríu Lynn, f. 7. febrúar 2004.
Þau voru búsett í um þrjú ár í
Bandaríkjunum en fluttu síðan heim
til Íslands þar sem þau höfðu búið í
nokkur ár þegar hún lést.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Elsku hjartans engillinn okkar.
Hvers vegna varst þú tekin frá okkur
svona ung og fyrirvaralaust í blóma
lífsins, frá börnunum þínum, eigin-
manni, fjölskyldu og vinum? Það
hlýtur að vera rík ástæða fyrir slíku
þó svo að við sem eftir lifum skiljum
það ekki.
Þú varst okkur yndisleg dóttir og
núna hrannast minningarnar upp í
huga okkar. Minningarnar um lífs-
hlaup þitt sem var allt of stutt en fullt
af gleði, ævintýrum og auðvitað líka á
stundum vonbrigðum.
Þegar þú kynntist eiginmanni þín-
um, honum Ken okkar, þá varst þú
ákveðin í að flytja með honum til
Bandaríkjanna og setjast þar að. Þá
kom í ljós að tengsl þín við fjölskyldu
og vini voru svo sterk að þú áttir erf-
itt með það. Ekki vantaði að þú
reyndir en fyrir rest ákváðuð þið
hjónin að setjast að á Íslandi. Hér
eignuðust þið fallegt heimili og voruð
alltaf samhent í öllu því sem þið tók-
uð ykkur fyrir hendur. Þú varst
börnum þínum góð og umhyggjusöm
móðir og eiginmanninum allt. Heim-
ili ykkar var líflegt og öllum opið.
Börn og fullorðnir sem þangað komu
fundu fyrir hlýju og vinsemd enda
var heimilið gestkvæmt. Þar mátti
aldrei heyrast að einhver væri betri
eða verri en annar.
Núna er mikil sorg á heimilinu
þínu góða, sonurinn, dæturnar og
eiginmaðurinn syrgja þig mjög og
eiga erfitt með að átta sig á hvað
gerst hefur. Núna eru bara allar
góðu minningarnar eftir og þær eiga
án nokkurs vafa eftir að styrkja okk-
ur sem stóðum þér næst. Núna er
það hlutverk okkar að hjálpa börn-
unum þínum og eiginmanni að ná fót-
festu í lífinu eftir þetta mikla áfall
sem við höfum öll orðið fyrir. Við
biðjum algóðan Guð um að gefa okk-
ur styrk til að takast á við það sem
framundan er og varðveita þig um
alla eilífð.
Elsku Guðrún okkar. Við söknum
þín svo óskaplega mikið.
Mamma og pabbi.
Elsku Guðrún okkar er dáin og
enginn hefði trúað að þessi lífsglaða
og skemmtilega systir, mágkona og
frænka yrði tekin frá okkur svona
fljótt. Guðrún var alltaf hrókur alls
fagnaðar, lífsglöð og ævintýragjörn.
Hún var næst yngst af okkur systk-
inunum og við eigum margar góðar
minningar frá uppvaxtarárum okkar
í Grænagarði sem verða okkur ómet-
anlegar um ókomna tíð. Við trúum
því að það hljóti að bíða hennar mjög
stórt hlutverk annars staðar, þó að
það sé erfitt að hugsa sér eitthvað
stærra en það að halda utan um fjöl-
skyldu sína, sem hún gerði svo sann-
arlega vel.
Minning hennar mun lifa í hjörtum
okkar um alla tíð.
Góði Guð. Við þig einan getum við
talað um ástvin okkar sem þú hefur
kallað til þín heim. Þú einn hlustar.
Þú einn skilur. Þú einn veist hvernig
ásvini okkar líður nú. Dagarnir líða.
Lífið heldur áfram sinn vanagang hjá
flestum. Ekkert megnar þó að fylla
tómarúmið hjá okkur. Hjálpaðu okk-
ur að bera einsemdina og minnast í
þökk samvista hins liðna. Lát okkur
þó ekki einblína á það sem var, hjálp-
aðu okkur þess í stað að horfa fram
en gefa jafnframt gaum að þeirri
stund sem er, og þeim, sem umhverf-
is okkur eru nú. Segðu okkur að þú
munir vel fyrir sjá, og um síðir gefa
okkur öllum þeim sem unnast gleði
endurfunda hjá þér.
Elsku Ken, Gunnar Már, Sara
Margrét og Viktoría, megi Guð gefa
ykkur styrk á erfiðum tímum.
Lúðvík, Gunnar, Særún
og fjölskyldur.
Kæra mágkona og frænka
Söknuður
sál mína kvelur
minn kæri vinur
þú ei lengur hér
á jörðu dvelur
þinni lífsgöngu
ei ætlað var
lengri veg
sárt er því að taka
vildi að þú værir
ennþá hér
Nú þú leið þína
hefur lagt
yfir móðuna miklu
með vissu ég veit
þar þú mætt hefur
móttökum góðum
þar hlýtur nú að vera
glatt á hjalla
þannig ávallt það var
er þú mættir með
brosið þitt bjarta
Þú einstaka sál
hafðir að geyma
þér ég aldrei
mun gleyma
minningin um þig er
björt og mikil
hér á jörðu niðri
hún áfram lifir
í hjarta mínu
þinn stað þú ætíð
munt eiga
(Jónína Sesselja Gísladóttir.)
Elsku Ken, Gunnar Már, Sara
Margrét ,Viktoría, Fríða og Rúnar.
Megi guð vera með ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Iðunn, Guðmann Rúnar
og Eva María.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún.)
Orð fá vart lýst söknuði okkar er
við kveðjum þig, elsku frænka. Strax
í barnæsku vorum við nánar, enda
nánast jafngamlar og stutt á milli
heimila. Þú varst okkur systrum svo
hjartfólgin að við trúum því vart að
þú sért ekki lengur hér. Þó svo að
með árunum hafi sambandið minnk-
Guðrún Björk Rúnars-
dóttir Frederick
✝
Ástkær móðir okkar,
ELÍN BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Hrísey,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri laugardaginn
31. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Auður Filippusdóttir,
Steinunn Kristín Filippusdóttir LeBreton,
Margrét Þóra Filippusdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVEINN INGVARSSON
prentmyndasmiður,
Viðarási 101,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn
22. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Helga G. Helgadóttir,
María Sveinsdóttir, Gils Friðriksson,
Örn Sveinsson, Hjördís Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær faðir minn og bróðir,
GUNNAR ÞÓR ADOLFSSON
rennismiður,
Logafold 114,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi
föstudaginn 30. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Grétar Kr. Gunnarsson.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁSGEIR S. OLSEN,
Dragavegi 5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi, föstudaginn
30. janúar.
Ásbjörn Æ. Ásgeirsson, Sjöfn Geirdal,
Stefán Ásgeirsson, Kristjana Þ. Jónsdóttir,
Ragnheiður Guðjónsdóttir,
Elín Á. Ásgeirsdóttir, Árni Sigurðsson,
Guðlaugur Þ. Ásgeirsson, Inga Mjöll Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar,
LAUFEY SOFFÍA JÓNSDÓTTIR,
Odda,
lést föstudaginn 30. janúar.
Hún verður jarðsungin frá Bakkagerðiskirkju,
Borgarfirði eystra, föstudaginn 6. febrúar kl. 14.00.
Baldur Guðlaugsson,
Halldóra Guðlaugsdóttir
og fjölskyldur. ✝
Elskulegur faðir okkar, afi og langafi,
AÐALSTEINN P. MAACK
húsasmíðameistari og
fv. forstöðumaður byggingaeftirlits ríkisins,
áður til heimilis að Hvassaleiti 56,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn
24. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 5. febrúar kl. 13.00.
Aðalheiður Maack, Óðinn Geirsson,
Pétur A. Maack, Kristjana Kristjánsdóttir,
Þórhallur Maack, Gyða Bárðardóttir,
Gísli Maack, Kara Margrét Svafarsdóttir,
Sigríður Maack, Már Másson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BALDUR BERGSTEINSSON,
Beykihlíð 29,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 30. janúar.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
9. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð Göngum saman til
stuðnings rannsóknum á brjóstakrabbameini, í síma 540 1990 eða á
heimasíðu: www.gongumsaman.is.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Sigríður Baldursdóttir, Gunnar Hjartarson,
Kristín Baldursdóttir, Kristján Frímann Kristjánsson,
Margrét Baldursdóttir, Þórólfur Árnason,
Bergþóra Baldursdóttir, Hjörleifur Þórarinsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SÓLVEIG SIGRÚN ODDSDÓTTIR
frá Nýjalandi,
Garði,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, föstudaginn
30. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju, laugardaginn
7. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Útskálakirkju, reikn. 1192-26-766.
Athöfninni verður endurvarpað í Íþróttahúsið þar sem aðstaða verður
fyrir fólk sem ekki rúmast í kirkjunni.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.