Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
✝ Sigurður Sam-úelsson, prófessor
emeritus, fæddist á
Bíldudal við Arn-
arfjörð 30. október
1911. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi mánudaginn
26. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Samúel Pálsson
skósmiður og kaup-
maður á Bíldudal og
Guðný Árnadóttir
húsfreyja. Bróðir Sig-
urðar var Árni Jakob,
f. 27.8. 1927, d. 19.2. 1930.
Fyrri kona Sigurðar var Lovísa
Möller, f. 19.8. 1914, d. 14.3. 1966.
Foreldrar hennar voru Jóhann G.
Möller verslunarstjóri á Sauð-
árkróki og Þorbjörg Pálmadóttir
húsfreyja. Börn Sigurðar og Lovísu
eru: 1) Sif kennari, f. 23.11. 1943.
Maki 1 Þorsteinn Blöndal, börn a)
Sjöfn, f. 1966, kjördóttir Þorsteins,
faðir Dagur Sigurðarson b) Auðunn
Árni, f. 1969, maki Stefanía Egg-
ertsdóttir, c) Edda Lovísa, f. 1976,
sambýlismaður Páll H. Sigurðsson.
Maki 2 Atli Heimir Sveinsson. 2)
Sjöfn, f. 14.12. 1945, d. 24.12. 1948.
3) Sigurður Samúel læknir, f. 30.9.
1951. Maki 1 Birna Jónsdóttir, börn
Jón Örn, f. 1970, og Lúvísa, f. 1973,
landi, Skotlandi, Norðurlöndunum
og Bandaríkjunum. Sigurður
stofnaði Hjartavernd, samtök
hjarta- og æðaverndarfélaga á Ís-
landi 1966, formaður fram-
kvæmdastjórnar þeirra til 1992.
Stofnaði m.a. Gigtsjúkdómafélag
Íslands 1963, formaður þess til
1973. Formaður læknafélagsins
Eirar frá stofnun þess 1948-50. Í
stjórn Læknafélags Reykjavíkur
1950-53. Í læknaráði Landspítalans
1955-82. Stofnandi Lyflæknafélags
Íslands 1957, formaður þess til
1961. Í lyfjaskrárnefnd frá stofnun
hennar 1963-76. Í ráðgjafahópi Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar á sviði hjarta- og æða-
sjúkdóma. Formaður
Laxárfélagsins 1968-85. Ritstörf:
Cronic cor pulmonale, a clinical
study, Khöfn 1950 (doktors-
ritgerð), Sjúkdómar og dánarmein
íslenskra fornmanna 1988, auk
fjölda greina og ritgerða í íslensk-
um og erlendum læknatímaritum,
einkum um hjartasjúkdóma. Við-
urkenningar: Kjörinn bréfafélagi í
norska læknafélaginu 1965 og
danska læknafélaginu 1966. Kjör-
inn heiðursfélagi Gigtarfélags ís-
lenskra lækna 1981, Hjartafélags
íslenskra lækna 1984 og heið-
ursfélagi Hjartaverndar 1992.
Heiðursmerki: Riddarakrossinn
1969 og Stórriddarakrossinn 1977.
Útför Sigurðar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
sambýlismaður Haf-
liði Árnason. Maki 2
Ágústa D. Jónsdóttir,
börn Sigurður Sam-
úel, f. 1987, Jón Þór,
f. 1990, og Árni
Muggur, f. 1991. Maki
3 Christine Sigurðs-
son, börn Katrín Sif,
f. 2002, og Kristín
Stella, f. 2004. Eig-
inkona Sigurðar er
Hólmfríður Stef-
ánsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f.
31.7. 1928. Foreldrar
hennar voru Stefán Jóhannsson vél-
stjóri og skipstjóri í Sandgerði og
Þórunn Anna Lýðsdóttir kennari.
Barnabarnabörnin eru 11.
Sigurður ólst upp á Bíldudal,
lauk stúdentsprófi frá MA 1932 og
kandídatsprófi í læknisfræði frá HÍ
1938. Sérhæfði sig í lyflækningum
og hjarta- og lungnasjúkdómum í
Danmörku. Dr. med. frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1950. Læknir
og sérfræðingur í hjartasjúkdóm-
um í Reykjavík 1947-1968, settur
deildarlæknir á lyflæknadeild
Landspítalans 1950, var prófessor í
lyflæknisfræði við HÍ og yfirlæknir
við Landspítalann frá 1955-1982.
Kynnti sér nýjungar á sviði hjarta-
lækninga og lyflækninga í Bret-
Þegar mér verður hugsað til afa
míns koma minningar frá bernsku
fyrst til hugar. Heimsóknir í jólaboð
þar sem við krakkarnir kepptum um
það hver kæmist næst „stólnum“.
Þar sat afi og með glotti beið hann
eftir færi til að kitla okkur. Það var
alltaf mikil spenna að sjá hver gæti
nálgast „stólinn“ án þess að verða
fyrir puttanum ógurlega sem gat
kitlað mann, leikur sem afi var ansi
slunginn við, og krakkarnir kepptu
um úthald gegn kitlinu.
Það var líka alltaf jafn spennandi
að skoða kalda búrið sem hafði að
geyma hluti svo sem Sinalco og
fleira sem fannst bara hjá afa og
ömmu. Þegar ég var á mínum
menntaskólaárum var alltaf þægileg
tilhugsun að geta litið við í Háuhlíð-
inni, þó ekki væri nema í stutt stopp
milli kennslustunda, í létt spjall og
kaffi.
Á síðustu árum fór ég stöku sinn-
um með strákana mína í heimsókn
og það var gaman að sjá hversu
virkur afi var í að fylgjast með
þeim. Þá er mér sérstaklega minn-
isstætt síðastliðið haust þegar afi
sat við hlið Björns Mána og spurði
hvort hann gæti ekki frætt sig um
listamann nokkurn og málverk eftir
viðkomandi listamann sem væri að
finna frammi í stofu. Við Björn
Máni litum hvort á annað og Björn
Máni svaraði: „Ég þekki engan
listamann!“ Þetta vakti hinsvegar
forvitni okkar þegar afi sagði: „Jú,
þú þekkir þennan listamann vel,
betur en nokkurn mann“. Svo við
fórum inn í stofu til að gá. Þar var
afi búinn að koma fyrir vatnslita-
mynd eftir Björn Mána. Minning
þín, afi minn, lifir í huga mínum og
hjarta.
Lúvísa Sigurðardóttir.
Ég var bara lítil stelpa þegar ég
kynntist Sigurði Samúelssyni, það
var þegar hann og Hólmfríður móð-
ursystir mín gengu í hjónaband. Mér
fannst Sigurður strax sérstakur kall
og mínar fyrstu minningar eru
tengdar viðskiptum sem við áttum.
Heima í Hafnarfirði var ákveðið að
setja niður kartöflur í garðinum.
Sigurður lagði hart að mér að setja
niður því hann vildi kaupa af mér
nýjar kartöflur. Ég lét tilleiðast og
fylgdist Sigurður vel með ræktun-
inni og þegar að uppskeru kom fékk
hann strigapoka fullan af glænýjum
kartöflum. Hann var kampakátur og
spurði um verðið um leið og hann
tók upp veskið. Ég hafði hugsað
málið og sagði honum að pokinn
kostaði 500 krónur sem í þá daga var
rauður seðill, ég hafði að öðru leyti
engan skilning á verðgildinu. Sig-
urður hváði og spurði hvort ég væri
alveg viss og horfði á mig svolítið
strangur. Ég staðfesti og Sigurður
glotti þegar hann rétti mér þann
rauða, tók í höndina á mér og þakk-
aði viðskiptin. Auðvitað voru kartöfl-
urnar rokdýrar, en minningin teng-
ist meira því hversu áhugasamur
Sigurður var um ræktunina og því
að hann vildi gera við mig samning
alveg eins og ég væri fullorðinn ein-
staklingur og jafningi og hann átti
virðingu mína alla.
Ég kynntist Sigurði betur þegar
ég bjó á neðri hæðinni í Háuhlíðinni.
Þá varð mér enn frekar ljóst hvílíkur
athafna- og ákafamaður Sigurður
var í öllu því sem hann tók sér fyrir
hendur. Honum fannst ekkert
skemmtilegra en að standa í fram-
kvæmdum og helst hasar og var
gjarnan í fararbroddi hvort sem um
var að ræða málningarvinnu, garð-
vinnu, veisluhöld eða snjómokstur,
allt var tekið með trompi og hvergi
slegið af þannig að við hin áttum
stundum fullt í fangi með að fylgja
honum eftir.
Hann fór létt með að moka mann-
hæðarháa snjóskafla kominn vel á
níræðisaldur og gaf ekkert eftir,
rétti ekki einu sinni úr sér meðan á
verkinu stóð.
En Sigurður var líka þekktur
fræðimaður og man ég hversu ein-
beittur hann var þegar hann sat við
skrifborðið sitt í Háuhlíðinni og
skrifaði og lét ekkert trufla sig nema
kannski kaffisopa. Hann var góður
sögumaður og hafði frá mörgu að
segja, meðal annars frá æskuárun-
um fyrir vestan, námsárunum í
Kaupmannahöfn og síðar starfsár-
unum á Landspítalanum og Hjarta-
vernd þar sem hann var í farar-
broddi og vel þekktur fyrir störf sín
þar.
Þau hjónin byggðu sér sumarhús
á æskuslóðum Sigurðar í Trostans-
firði fyrir vestan. Augljóslega átti sá
staður hug hans og hjarta.
Sigurður var með afbrigðum
hraustur maður og vel á sig kominn
og náði háum aldri. Hann fylgdist vel
með mönnum og málefnum og hélt
andlegri reisn sinni nánast fram í
andlátið.
Vegna starfa minna erlendis hef ég
ekki tök á að fylgja Sigurði. Ég votta
Hólmfríði móðursystur minni og öðr-
um aðstandendum mína innilegustu
samúð.
Blessuð sé minning Sigurðar Sam-
úelssonar.
Hólmfríður Garðarsdóttir.
Kveðja frá Hjartavernd
Látinn er í Reykjavík Sigurður
Samúelsson, prófessor emeritus, 97
ára að aldri. Sigurður var um margt
frumkvöðull á sviði lækninga á Ís-
landi upp úr miðri síðustu öld. Sem
yfirlæknir á lyflækningadeild Land-
spítalans og starfandi hjartalæknir
gerði hann sér grein fyrir þeim far-
aldri sem kransæðasjúkdómar voru
orðnir á Íslandi sem og í öðrum vest-
rænum löndum í kringum 1960 þegar
fjöldi karla og kvenna féll fyrir þess-
um vágesti á unga aldri. Hann beitti
sér því fyrir stofnun samtaka Hjarta-
verndar 1966 með ýmsu öðru góðu
fólki sem nú er flest fallið frá fyrir
löngu. Í framhaldinu var síðan stofn-
sett Rannsóknarstöð Hjartaverndar í
Lágmúla 9 sem teljast verður mikið
afrek á þeim tíma. Þá hófst svokölluð
Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar
til að kanna umfang hjarta- og æða-
sjúkdóma á Íslandi og leita leiða til
að koma í veg fyrir þennan vágest.
Íslendingar svöruðu kalli Sigurðar
og Hjartaverndar og á næstu árum
komu yfir 20 þúsund Íslendingar til
þátttöku í þessari hóprannsókn. Nið-
urstöður hennar hafa vissulega stað-
fest helstu áhættuþætti kransæða-
sjúkdóma á Íslandi, hátt kólesteról,
reykingar og háþrýsting ásamt offitu
og sykursýki. Þessar upplýsingar frá
Hjartavernd hafa því orðið grunnur
að áhersluatriðum heilbrigðisyfir-
valda í forvörnum gegn hjarta- og
æðasjúkdómum á Íslandi.
Þegar Sigurður hóf þessa baráttu
upp úr 1960 fékk hann hnjóðsyrði frá
ýmsum í þjóðfélaginu en hann hélt
ótrauður áfram sinni baráttu fyrir
breyttu mataræði og gegn reyking-
um. Þessi barátta leiddi smám saman
til þess að mjólkuriðnaðurinn svaraði
kallinu og fór að framleiða magurri
mjólkurafurðir svo eitthvað sé nefnt.
Samlegðaráhrif breyttra lífshátta
þar sem Sigurður og Hjartavernd
voru mikilvægir brautryðjendur á
Sigurður Samúelsson
Atvinnuauglýsingar
Vanir sölumenn
Alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki
óskar eftir kröftugum og mjög reyndum sölu-
mönnum með mikil tengsl inn í atvinnulífið.
Sala á nýstárlegum námskeiðum og
markaðslausnum á Íslandi. Góð sölulaun.
Umsóknir sendist á:
petur@img-global.com og
www.img-global.com
Laust embætti saksóknara
Laust er til umsóknar embætti saksóknara við
ríkissaksóknaraembættið. Dómsmálaráðherra
skipar í embættið frá og með 1. mars 2009.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, eigi
síðar en 18. febrúar nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
2. febrúar 2009.
Afgreiðsla í verslun
Pylones Smáralind
starf@rcs.is
Óskum eftir starfsmanni í afgreiðslu í verslun
okkar, Pylones, Smáralind. Hlutastarf, 2 dagar í
miðri viku og önnur hver helgi. Meðmæli,
heiðarleiki, snyrtimennska og reynsla skilyrði.
Erum að útvíkka starfsemina og mun vinnutími
breytast síðar.
Upplýsingar sendist á starf@rcs.is eða
til Pylones, Smáralind. Litríkar og
skemmtilegar vörur, létt andrúmsloft
og skemmtileg vinna.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi
Fundur
Stjórn kjördæmisráðsins boðar til kjördæmis-
ráðsfundar í Valhöll þriðjudaginn 10. febrúar
næstkomandi kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Tilhögun að uppstillingu á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi
alþingiskosningar.
2. Önnur mál.
Stjórn kjördæmisráðsins.
Til leigu
Til leigu skrifstofuherbergi
Til leigu tvö góð 18 fm skrifstofuherbergi í
Hamraborg, Kópavogi. Leigð saman eða sitt
í hvoru lagi. Aðgangur að kaffistofu og
fundarherbergi og möguleiki á stoðþjónustu
s.s. símsvörun, bókhaldi, innheimtu, inter-
neti og fl. Upplýsingar í síma 892 5118.
Félagslíf
FJÖLNIR 6009020319 III
EDDA 6009020319 I HLÍN 6009020319 VI
I.O.O.F. Rb. 4 158238-9.II.*
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HARALDUR BJÖRNSSON,
Þorragötu 9,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti,
laugardaginn 31. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 10. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Stefán Haraldsson,
Guðjón Björn Haraldsson, Karólína Margrét Jónsdóttir,
Anna Sigríður Haraldsdóttir, Sigurður Snorrason,
Þóra Sigurðardóttir,
Snorri Sigurðsson,
Haraldur Björnsson.