Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 1

Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 2. F E B R Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 41. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is EKKI GRÁ, HELDUR SÆGRÁ VERÐMÆT LITBRIGÐI Í ÍSLENSKA KÚAKYNINU MENNING Skapandi kraftur á Smiðjustígnum Þrátt fyrir slæmar horfur er hugs- anlegt að í því ástandi, sem nú ríkir, felist tækifæri á fasteignamarkaði, einkum þegar verðbólga tekur að minnka. Viðskipti Tækifæri á fast- eignamarkaði Þeir sem þekkja til rekstrar Baugs segja að félagið sé gjaldþrota. Eigið fé sé neikvætt um 150 milljarða króna. Ólíklegt sé að nýtt eigið fé fáist og skuldir verði felldar niður. Baugur Group stefnir í þrot Latibær ætlar að leggja nafn sitt við markaðssetningu á hollum mat- vælum fyrir börn í bresku versl- unarkeðjunni ASDA. Risastór samningur, líka á breskan kvarða. Latibær í samstarf við risann ASDA  „ÞETTA er líklega mesta efna- hagskreppa sem Ísland hefur upp- lifað,“ segir Mats Josefsson, sem leiðir nefnd um endurreisn fjár- málakerfisins. Á blaðamannafundi í gær sagði hann að íslensk stjórn- völd hefðu ekki gætt hagsmuna rík- isins í bönkunum nógu vel í kjölfar bankahrunsins. Það ylli honum áhyggjum að hafa ekki enn séð fjár- hagsreikninga nýju bankanna. Hann þekkti því ekki skuldastöðu þeirra enn. »18 Mats Josefsson Sænski sérfræðingurinn vinnur að uppbyggingu bankakerfisins. Gættu ekki hagsmuna rík- isins í bönkunum nógu vel  14.480 eru á atvinnuleysisskrá. Fjölmennasti hópurinn á atvinnu- leysisskrá er undir þrítugu. Á aldr- inum 16-19 eru 723 án vinnu, 2.114 á aldrinum 20-24 ára og 2.011 þeirra sem eru 25-29 ára. Skráð at- vinnuleysi í janúar var 6,6% eða að meðaltali 10.423. Í lok mánaðarins voru 12.407 án vinnu. Án vinnu Fólki án vinnu fjölgar hratt. 4.848 á aldrinum 16-29 ára án atvinnu í janúarmánuði  VIÐSKIPTAVINIR Atlantsskipa fá ekki vörurnar afhentar þar sem Atlantsskip hafa ekki greitt Eim- skip fyrir flutninginn. „Fyrirtæki okkar skaðast um hundruð þús- unda króna á hverjum degi sem líð- ur vegna þessa vandamáls,“ segir Gunnar Óli Erlingsson, fram- kvæmdastjóri Enso. Guðmundur Kærnested, forstjóri Atlantsskipa, segir fyrirtækið eiga í sömu vandræðum og mörg fyr- irtæki um þessar mundir. Sökin liggi ekki hjá Eimskip sem einnig eigi í rekstrarerfiðleikum. » 4 Fyrirtæki fá ekki vörur sínar vegna deilu skipafélaga MÓÐIR tveggja barna, Rakel Sölvadóttir, lýsir því hvernig fjölskyldan er fangi í of lítilli íbúð. Hún keypti þriggja herbergja íbúðina árið 2004, stendur í skilum, en þrátt fyrir að hafa greitt af fjörutíu ára lánunum í fimm ár hafa þau hækkað um átta milljónir króna. Hún vill gjarnan stækka við sig, þar sem börnin hennar tvö deila herbergi, en telur að búðin sé nú vart meira en 24 milljóna virði en lánið er orðið 30 milljónir. Hún efast um að sér tækist að selja þótt hún vildi taka á sig tapið og sér því fram á að búa í íbúðinni til fram- búðar. „Þannig að eins og ég segi, ég er bara föst.“ | 6 Föst í of lítilli íbúð Rakel Sölvadóttir Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ALLS fengu 136 félög, sem eru skráð til heimilis á Tortola-eyju, leyfi til að stunda viðskipti á Íslandi á árunum 2000 til 2008. Þetta kem- ur fram í tölum frá Fyrirtækjaskrá sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Kaupþing er skráður umboðsaðili 52 þessara félaga, eða um 40 pró- senta þeirra. Bankinn fékk leyfi fyrir 23 af þessum 52 félögum á árinu 2008 og þar af fengu tíu starfsleyfi síðustu tvo mánuðina fyrir bankahrun. Þorri þeirra félaga sem skráð eru á Tortola og starfa hérlendis er í umsjón stóru viðskiptabankanna þriggja, eða 87 talsins. Eignarhald á huldu Nokkur þeirra félaga sem Kaup- þing og Landsbankinn höfðu um- sjón með voru um tíma á meðal stærstu eigenda í bönkunum sjálf- um. Raunverulegt eignarhald þeirra er hins vegar á huldu og aðrir þátt- takendur á hlutabréfamarkaði gátu ekki vitað hverjir áttu félögin. Fjármálaeftirlitið (FME) aflar einungis upplýsinga um slíkt eign- arhald vegna rannsókna á ein- stökum málum, svo sem í tengslum við virka eignarhluti samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni. Þórður Friðjónsson, forstjóri Nasdaq OMX-kauphallarinnar á Ís- landi, segir sitt fyrirtæki ekki fara fram á slíkar upplýsingar, enda séu fjármálafyrirtæki undir eftirliti FME, ekki kauphallarinnar. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um bankahrunið, segir starfsemi erlendu félaganna á Ís- landi klárlega vera athugunarefni og að umsvif þeirra verði könnuð. Félög skráð á Tortola eru 136 talsins  Kaupþing umboðsaðili 52 félaga  Félög frá Tortola áttu í bönkum Í HNOTSKURN »Félögin 136 fengu leyfi tilað stunda viðskipti á Ís- landi á árunum 2000 til 2008. »Að meðaltali fengu 13,5 áslík félög leyfi árlega frá aldamótum og út árið 2007. » Í fyrra fjölgaði þeim mikiðþegar 29 félög frá Tortola fengu leyfi. Kaupþing hafði umsjón með 23 þeirra.  136 Tortola-félög | Viðskipti VEL fór á með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og nem- endum Hvolsskóla er forsetinn og Dorrit Moussaieff forsetafrú heim- sóttu skólann í gær. Forsetinn gaf sér góðan tíma til að kynna sér starfsemi skólans og ræða við nemendur. Þeir sungu og klöppuðu for- setahundinum Sámi sem er ættaður úr Rangárvallasýslu. Hvolsskóli hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2008 í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. Ljósmynd/Halldóra Magnúsdóttir DORRIT OG ÓLAFUR Í HVOLSSKÓLA Forsetahjónin sátt meðal nemenda reiðubúin að leggja fram allt að eina milljón evra, um 150 milljónir króna, til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Í dag verða boðin upp í Lond- on þrjátíu lista- verk úr safni von Habsburg en fyrir andvirðið hyggst hún fjárfesta í ís- lenskri listsköpun og menningu. | 42 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is STOFNUN í eigu Francescu von Habsburg, sem sýnir, kynnir og safn- ar alþjóðlegri samtímamyndlist, Ný- listasafnið og dánarbú Dieters Roth hafa kynnt hugmyndir um nýja lista- og menningarmiðstöð í Reykjavík. Er sjónum beint að fyrrverandi húsnæði kaffibrennslu Ó. Johnson & Kaaber við Sætún. Francesca von Habsburg hefur lýst því yfir að stofnun hennar sé Vilja opna listamiðstöð í kaffibrennsluhúsinu Francesca von Habsburg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.