Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 2
Morgunblaðið/Júlíus
Magnús og Hannes Magnús Þór Óskarsson bjargaði Hannesi.
MAGNÚS Þór Óskarsson bifvéla-
virki tók við viðurkenningu Rauða
kross Íslands sem skyndihjálp-
armaður ársins 2008 fyrir hárrétt
viðbrögð á neyðarstund á hátíð-
ardagskrá Neyðarlínunnar og sam-
starfsaðila um 112-daginn.
Hannes Ragnarsson hafði skilið
bifreið sína eftir í gangi á bílastæði
við bifreiðaskoðunina Frumherja.
„Ég ætlaði bara að slá rafmagnið af
bílnum en hef rekið mig í,“ segir
Hannes. Hann var hálfur inni í bíln-
um þegar hann hrökk í gír og bakk-
aði af afli á kyrrstæðan bíl. „Ég
kastaðist út og bíllinn á eftir. Það
var eins og að fá yfir sig snjóskriðu
og höggið var svakalegt. Svo man
ég ekki eftir neinu fyrr en í sjúkra-
bílnum,“ segir Hannes.
„Við komum þarna tveir að
Hannesi og ætluðum að ná honum
undan bílunum þegar hann hættir
að anda,“ segir Magnús. „Þá skreið
ég inn í bílinn og náði að blása ofan í
Hannes úr bílstjórasætinu þangað
til hjálp barst.“
Magnús þykir hafa unnið þrek-
virki við björgunina og þakkar rétt
viðbrögð því að hafa tekið þátt í
skyndihjálparnámskeiðum. „Lung-
un féllu saman og mjaðmakúlan fór
úr lið, en ég hef náð mér bærilega
miðað við hvernig þetta leit út. Ég
er sannfærður um að Magnús hefur
bjargað mér frá heilaskemmdum.
En ég er ekki feigur fyrst ég lifði
þetta af,“ segir Hannes.
Sigurði Viðari Ottesen neyð-
arverði var einnig veitt viðurkenn-
ing fyrir árangur í starfi á hátíð-
ardagskrá 112-dagsins og 15
börnum af höfuðborgarsvæðinu
voru veitt verðlaun í eldvarn-
argetraun Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna en
alls fengu 33 börn verðlaunin á
landsvísu.
Hannes var ekki feigur þennan dag
Magnús Þór Óskarsson blés lífi í Hannes Ragnarsson sem hafði klemmst milli tveggja bíla og
fékk að launum viðurkenningu Rauða kross Íslands Eins og hann fengi yfir sig snjóskriðu
Í HNOTSKURN
» Hátíðardagskrá 112-dagsins var haldin í Skóg-
arhlíð 14 í fimmta sinn.
» 112-dagurinn er haldinntil að vekja athygli á
neyðarnúmerinu og neti
björgunar- og velferðaraðila
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ALLS voru 664 einstaklingar á aldr-
inum 18 til 22 ára á vanskilaskrá nú í
febrúarbyrjun, samkvæmt úttekt
Creditinfo á Íslandi. Helstu skuld-
irnar voru vegna greiðslukorta,
bankalána, yfirdráttar og vegna bif-
reiða.
Árangurslaust fjárnám hafði verið
gert hjá 343 í hópnum en upplýsing-
ar um fjárnám eru til birtingar í fjög-
ur ár, óháð breytingum á högum við-
komandi. „Þetta eru sorglegar
niðurstöður og endurspegla þá stað-
reynd að við fullorðna fólkið höfum
verið sofandi á verðinum. Við höfum
ekki upplýst krakkana okkar um
hvaða afleiðingar það getur haft að
stofna til skulda,“ segir Rakel
Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá
Creditinfo.
Hún segir forvarna þörf og að
fræðsla um þessi mál þurfi að vera í
efstu bekkjum grunnskólans en ein-
staklingar verða fjárráða 18 ára og
geta þá stofnað til sinna eigin skuld-
bindinga.
Í úttektinni segir að ungmennin
664 sem eru á vanskilaskrá séu bú-
sett um allt land en af þeim er 421 á
höfuðborgarsvæðinu.
Aukningin á vanskilum hefur ver-
ið töluverð frá 1. janúar 2008 eða
sem nemur 27,4 prósentum. Fjölgun
skráninga á vanskilaskrá varð mikil
á haustmánuðum en 36,7 prósent
málanna voru skráð í kjölfar banka-
hrunsins. Af þeim sem eru á van-
skilaskrá nú í febrúar eru 19 einstak-
lingar sem eru 18 ára. Það er því
ekki liðið ár frá því að þeir urðu fjár-
ráða. Flestir á vanskilaskrá í fyrr-
nefndum aldurshópi eru nú 22 ára en
skráðar vanskilaskuldir í hópnum
voru 1.447.
„Það er ekkert sem segir að van-
skilin geti ekki verið meiri. Margir á
þessum aldri búa enn heima og ef
foreldrar hafa tök á grípa þeir inn í,“
bendir Rakel á.
Ekki er getið um upphæðir í út-
tektinni.
ingibjorg@mbl.is
Yfir 660 ungir á vanskilaskrá
Helstu skuldir 18 til 22 ára eru vegna greiðslukorta, bankalána og yfirdráttar Árangurslaust
fjárnám hjá yfir 300 Fræðsla um áhrif skuldbindinga nauðsynleg í efstu bekkjum grunnskóla
ALLS hafa van-
skilin aukist um
27,4 prósent frá
1. janúar 2008.
Aukningin er mun
meiri hjá ungum
karlmönnum eða
tæplega 39 pró-
sent í samanburði
við rúmlega 10
prósenta aukn-
ingu hjá ungum
konum.
Rakel Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Creditinfo, segir
þetta svipað mynstur og hjá eldri
aldurshópum.
Fleiri karlar
í vanskilum
Rakel
Sveinsdóttir
NOKKRIR strákar úr 6. flokki KA í fótbolta
hittu bæjarstjórann á Akureyri, Sigrúnu Björk
Jakobsdóttur, í gær og mótmæltu því að í sparn-
aðarskyni hafði verið skrúfað fyrir hitann undir
sparkvöllum bæjarins og hætt að lýsa vellina
upp. Þeir segjast eyða a.m.k. tveimur tímum á
dag á vellinum við Brekkuskóla. „Kreppan er
ekki okkur að kenna,“ sagði einn þeirra. Sigrún
tók strákunum vel en lofaði engu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Kreppan er ekki okkur að kenna“
NÚ stefnir í að 117 grunnskólar
sendi um 500 keppendur og um 200
aðstoðar- og varamenn til keppni í
Skólahreysti 2009. Árið 2005 tóku 6
skólar þátt. Lára Berglind Helga-
dóttir hjá Icefitness sem skipulegg-
ur keppnina segir að líkt og í fyrra
megi búast við að áhorfendur troð-
fylli íþróttahúsin en þá fylgdust um
13.000 áhorfendur með keppninni.
Lára bendir á að um 50 skólar bjóði
nú upp á skólahreysti sem valgrein
sem eykur enn metnað og kraft
keppenda.
Skólarnir velja keppendur með
undankeppni en síðan keppa þeir
um sæti í úrslitakeppninni í fjórum
mótum sem haldin eru í febrúar og
mars. Stigahæsti skólinn í hverjum
riðli kemst síðan áfram í úr-
slitakeppnina sem verður haldin 30.
apríl. Ríkissjónvarpið sýnir þátt frá
hverri keppni og síðan er bein út-
sending frá úrslitakeppninni.
Í dag keppa skólar á Vesturlandi
og Vestfjörðum í Smáranum í Kópa-
vogi klukkan 13. runarp@mbl.is
500 keppa
í skóla-
hreysti
117 grunnskólar eiga
fulltrúa á mótinu