Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÉG er bara fangi í allt of lítilli íbúð
næstu 35 árin, þannig er staðan,“ seg-
ir Rakel Sölvadóttir tölvunarfræð-
ingur sem býr ásamt tveimur börnum
sínum og sambýliskonu í Garðabæ.
Rakel keypti íbúðina 2004 og hefur
staðið í skilum alla tíð síðan, en nú
blasir við raunveruleiki sem hún og
margir Íslendingar í sömu sporum
sáu aldrei fyrir. Höfuðstóllinn hefur
hækkað um 8 milljónir frá upp-
haflegu lántökuupphæðinni, þrátt
fyrir að hún hafi samviskusamlega
greitt af láninu í 5 ár. Hún segist alls
staðar rekast á veggi og engin greið
leið virðist út úr skuldafeninu.
Þarf aukna aðstoð með soninn
„Stefnan var að stækka við mig,
því þau eru saman í herbergi, 5 ára
strákur og 8 ára stelpa svo það mynd-
ast mikil togstreita vegna aldurs-
munar og kyns, auk þess sem hann
þarf á stuðningi að halda,“ segir Rak-
el. Eins og málin hafa þróast eftir
bankahrunið stefnir hins vegar ekki í
að fjölskyldan geti flutt í stærra hús-
næði.
„Ekki miðað við hvað íbúðin hefur
lækkað í verði. Fyrir það fyrsta þá
selst hún vart, en jafnvel þótt hún
seldist þá færi hún varla á meira en
24 milljónir en lánið er orðið 30 millj-
ónir. Þá stæði ég eftir með mínus 6
milljónir og gæti ekki keypt neitt
annað. Þannig að eins og ég segi, ég
er bara föst.“
Sonur Rakelar hefur vissar sér-
þarfir en hún segir ekki komið nægi-
lega til móts við hann í kerfinu. Hann
hafi t.d. mikla þörf á íþróttaiðkun til
að fá útrás, en kostnaðurinn sé mikill
og styrkir frá bænum hafi ekki staðið
til boða. „Ég fékk meira að segja þau
skilaboð, þegar sálfræðingurinn lagði
til að hann fengi aukastarfsmann með
sér í leikskólanum, að bærinn hefði
ekki efni á því. Svo ég sé ekki fyrir
mér að Garðabær muni hafa auka-
kennara með honum í skólanum held-
ur. Í raun og veru er búið að festa mig
í því bæjarfélagi sem gerir minnst
fyrir mig hvað þetta varðar.“ Hún
nefnir þó að leikskólastjórinn og
íþróttafulltrúi Garðabæjar hafi verið
mjög hjálplegir persónulega, en regl-
ur bæjarfélagsins séu ekki nógu lið-
legar gagnvart fjölskyldufólki.
Þótt öll sund virðist vera lokuð hef-
ur Rakel verið að vinna í því að finna
lausnir. „Ég talaði við útibússtjórann
í Kaupþingi því ég vil ekki að þetta
fari í óefni. Ég setti dæmið upp þann-
ig að ég væri tilbúin að greiða 30 þús-
und aukalega inn á höfuðstólinn á
mánuði, þannig að þeir sæju að ég
væri virkilega að leggja mig fram við
að standa við mínar skuldbindingar,
en á móti myndi bankinn fella niður
verðbæturnar sem hafa fallið umfram
þessi 2,5%, sem lánið var reiknað út
frá í upphafi.“
Erfitt sé að sjá tilgang með því að
halda áfram að borga af láninu eins
og staðan sé nú því ekki sjái högg á
vatni. „Þótt maður hendi inn auka-
greiðslum núna þá er það bara dropi í
hafið. Ég fæ það aldrei til baka hvort
sem er.“
Farsælast að finna milliveg
Samningsumleitanir Rakelar
fengu lítinn hljómgrunn í bankanum,
en henni var hins vegar bent á að
leita þeirra leiða sem eru í burð-
arliðnum á Alþingi til að koma til
móts við heimilin í landinu. Rakel
segir að þetta frumvarp sé nánast
eina leiðin út úr þessum vítahring en
segist skilja vel að fólk sé orðið þreytt
og fari þá leið að láta lýsa sig gjald-
þrota því þannig sé það bara fangar í
10 ár, en ekki 30 til 40.
Ef ekkert verður af þeim úrbótum
segist Rakel íhuga makaskipti, jafn-
vel þótt það þýði að skuldastaða
hennar verði enn verri á eftir. „Ef allt
fer á versta veg hugsa ég að ég velji
þá leið, því ég vil frekar vera fangi í
betra húsnæði heldur en í húsi sem
hentar ekki fjölskyldunni.“
Fjölskyldan er eins og
fangar á eigin heimili
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný staða Rakel átti aldrei von á því að upplifa þær aðstæður að finnast all-
ar leiðir lokaðir til að búa börnum sínum það heimili sem hún vill
Verðbólgan gerir
fasteignareigend-
um erfitt fyrir
SAMTÖK iðnaðarins hafa ákveðið
að verja um 250 milljónum til
ákveðinna verkefna, sem m.a. snúa
að menntamálum, á næstu þremur
árum. Að auki verður á þessu ári
allt að 20 milljónum varið til
vinnustaðanáms og allt að 10 millj-
ónum til kynningar á námi tengdu
iðnaði. Þetta var tilkynnt í gær á
menntadegi iðnaðarins 2009. Um er
að ræða verkefni sem nefnist „Afl
til framfara“.
Gerð er áætlun til þriggja ára í
senn um verkefnið með hliðsjón af
fjárhagslegum styrk SI, sem mark-
ast meðal annars af iðnaðarmála-
gjaldi sem rennur til SI. Verði veru-
leg breyting þar á kann að þurfa að
taka þessar ákvarðanir til endur-
skoðunar.
Ráðstöfunarfé fyrstu þriggja ár-
anna er ríflegt og hugsað sem sér-
stakt framlag til þess að leggja
grunn að nýrri framsókn íslensks
iðnaðar til viðbótar við önnur fram-
lög, að því er segir í tilkynningu.
Milljónir til
menntamála
Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur og
Björn Jóhann Björnsson
JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra lýsir vonbrigðum sínum með
bréf Eiríks Guðnasonar seðlabanka-
stjóra sem henni barst í hendur á
þriðjudag. Þar segir Eiríkur að hann
stefni að því að biðjast lausnar frá
embætti frá og með 1. júní nk. Bréf því
til staðfestingar verði sent í „tæka tíð“.
Jóhanna sagði á mbl.is í gær að hún
hefði beint þeim tilmælum til banka-
stjóranna þriggja að þeir létu af störf-
um nú þegar. Hún vonast til að frum-
varpið um Seðlabankann verði að
lögum sem fyrst og þá verði staða nýs
bankastjóra auglýst.
Eiríkur Guðnason sendi í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem hann útskýrir
afstöðu sína í bréfinu nánar. Með því
að hætta 1. júní nk. hafi hann viljað
stuðla að þeim markmiðum forsætis-
ráðherra, sem fram hafi komið í bréfi
hennar til hans, að tryggja eins og
kostur væri að sem minnst röskun
yrði á starfsemi Seðlabankans. Enn-
fremur nefnir Eiríkur fjögur atriði
sem snúa að Seðlabankanum við end-
urreisn fjármálakerfis landsins og
mikilvægt sé að vinna áfram við án
tafa, þ.e. efnahagsáætlun ríkisstjórn-
arinnar og IMF, vaxtamálin, gengis-
og gjaldeyrismál og gangsetningu
bankanna.
Í bankanum í 40 ár
Eiríkur Guðnason hefur verið starf-
andi í Seðlabankanum frá árinu 1969
eða í 40 ár en hann er á 64. aldursári.
Hann var fyrst skipaður bankastjóri
árið 1994 af Sighvati Björgvinssyni,
þáverandi viðskiptaráðherra. Eiríkur
hafði því fyrir um fjórum árum þegar
tryggt sér full eftirlaunaréttindi
bankamanna samkvæmt 95 ára regl-
unni.
Sem kunnugt er hefur Ingimundur
Friðriksson farið að óskum forsætis-
ráðherra og látið af störfum í bank-
anum frá og með 9. febrúar sl. Davíð
Oddsson hefur svarað ráðherra með
þeim orðum að hann ætli ekki að fara
frá hálfkláruðu verki.
Jóhanna lýsir vonbrigðum
með bréf Eiríks bankastjóra
Eiríkur Guðnason stefnir að því að hætta sem seðlabankastjóri 1. júní í sumar
Eiríkur
Guðnason
Jóhanna
Sigurðardóttir
ÞÝSKA dag-
blaðið Frankfur-
ter Allgemeine
fjallaði um Ólaf
Ragnar Gríms-
son, forseta Ís-
lands, í grein á
vefsíðu sinni í
gær. Umfjöllunin
er í tengslum við
viðtal sem birtist
við Ólaf í Fin-
ancial Times Deutschland á þriðju-
dag. Þar hafi hann valdið titringi hjá
þýskum sparifjáreigendum með um-
mælum sínum. Í greininni er pólitísk
fortíð Ólafs til umræðu og hann
sagður hafa staðið uppi í hárinu á
andstæðingum sínum, nokkuð sem
hafi lítið breyst eftir að hann tók við
embætti forseta.
Ólafur hafi misstigið sig
Í greininni segir að nú virðist sem
Ólafur hafi misstigið sig illilega er
hann hafi reynt að kenna öðrum
þjóðum um efnahagskreppuna á Ís-
landi, nokkuð sem hann hafi afsakað
með því að hann hafi aðeins viljað ljá
íslensku þjóðinni rödd sína.
Þá ályktar greinarhöfundur sem
svo að nú sé svo komið að Ólafur
Ragnar og Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri, sem lengi hafi verið
svarnir fjendur, eigi a.m.k. eitt sam-
eiginlegt. Báðir geri nýrri rík-
isstjórn Íslands erfitt fyrir með
framferði sínu.
Davíð haldi fast í embætti seðla-
bankastjóra á meðan Ólafur grafi
undan tilraunum hennar til að efla
traust Íslands á erlendum vettvangi.
Það sé erfitt verk þegar svo skapstór
maður sitji á forsetastóli. jmv@mbl.is
Of skap-
stór fyrir
embættið?
Ólafur Ragnar
Grímsson
Forseti Íslands rædd-
ur í þýsku dagblaði
Líf fjölmargra Íslendinga hefur
breyst undanfarnar vikur og mán-
uði vegna kreppunnar og flestir
þekkja til vina eða fjölskyldu-
meðlima sem búa nú við breyttar
aðstæður síðan í haust.
Morgunblaðið vill segja sögur
almennings sem finnur fyrir
ástandinu á eigin skinni, hvort
sem um er að ræða atvinnumissi,
erfiða skuldastöðu, breyttar fram-
tíðaráætlanir eða aðrar afleiðingar
breytts efnahagsástands.
Vilt þú segja þína sögu? Ábend-
ingar eru vel þegnar á netfangið
ritstjorn@mbl.is eða s. 569-1317.
Breyttir hagir almennings
Áhrif kreppunnar á fjölskyldur
„Ég þakka fyrir það sem þér
segið í framangreindu bréfi um
mig. Ennfremur fagna ég því,
sem segir í bréfinu, að forsætis-
ráðherra vilji tryggja svo sem
kostur er að sem minnst röskun
verði á starfsemi Seðlabanka Ís-
lands við fyrirhugaðar stjórn-
skipulagsbreytingar. Í ljósi
þessa stefni ég nú að því að
biðjast lausnar frá embætti
bankastjóra frá og með 1. júní
næstkomandi og mun bréf því
til staðfestingar verða sent í
tæka tíð. Virðingarfyllst,
Eiríkur Guðnason
bankastjóri.“
Bréfið til Jóhönnu
EKKI náðist samstaða um að draga
úr karfaveiðum á Reykjaneshrygg á
þessu ári eins og fulltrúar Íslands
lögðu til á samráðsfundi sem lauk í
London í gær.
Auk fulltrúa Íslands sátu fundinn
fulltrúar Færeyja, Grænlands, Evr-
ópusambandsins, Noregs og Rúss-
lands, að því er kemur fram á vef
LÍÚ. Niðurstaðan varð sú að fyr-
irkomulag veiðanna er að mestu
óbreytt frá síðasta ári. Helsta
breytingin er sú að allt að 70 pró-
sent veiðiheimilda má nýta á norð-
austurveiðisvæðinu í stað 65 pró-
senta áður. ingibjorg@mbl.is
Karfaveiðar
óbreyttar