Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
SAMKVÆMT fyrstu vísbendingum
telur Baldur Helgi Benjamínsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, að áburðarverð til bænda
hækki um 18-30% frá síðasta ári. Í
fyrra hækkaði áburður mjög í verði
eða um nálægt 80%.
Nýtt fyrirtæki, Búvís, kynnti vöru
sína, verð og fjármögnun á aðalfundi
Félags kúabænda í Suður-Þingeyj-
arsýslu nýlega. Baldur Helgi segir
að erfitt sé að gera samanburð á
nýrri vöru og því, sem áður hefur
verið á markaði, en segist áætla
hækkunina um 18-30%, misjafnt eft-
ir vöruflokkum.
Hann bendir á að fyrir nokkrum
árum hafi tonn af áburði kostað um
25 þúsund krónur en yfir 60 þúsund
krónur í fyrra og enn hækki áburð-
urinn í ár. Ekki séu mörg dæmi um
slíka hækkun. „Það var ekki á stöðu
kúabænda bætandi en mér virðist
áburðarverð þó ætla að hækka
minna en ég óttaðist,“ segir Baldur.
Hækkun áburðar um 400
þúsund á meðalkúabú
Hækkun erlendis á hráefni gekk
að einhverju leyti til baka í lok síð-
asta árs en gengið er innflutningi
enn óhagkvæmt. Spurður um hækk-
un fyrir meðalkúabú segir Baldur að
hafi áburður kostað búið um 1.600
þúsund krónur í fyrra, verði kostn-
aðurinn um tvær milljónir í ár.
Auk Búvíss eru það Sláturfélag
Suðurlands, Áburðarverksmiðjan og
Skeljungur, sem selja bændum
áburð.
Morgunblaðið/Þorkell
Vísbendingar um 18-
30% hækkun áburðar
Tonn af áburði úr 25 þúsund krónum í yfir 60 þúsund
krónur á skömmum tíma Ekki á stöðu kúabænda bætandi
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ALLS bárust sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu 16 tilboð í toll-
kvóta vegna innfluttra landbúnaðar-
afurða frá ESB-löndum á þessu ári.
Þar af voru tilboð frá þremur fyr-
irtækjum sem ekki uppfylltu útboðs-
reglur varðandi ábyrgðarlýsingu
banka, sparisjóðs eða vátrygginga-
félags, að því er fram kemur á vef
ráðuneytisins.
Tilboðin voru alls í um 1.400 tonna
innflutning en tilboðum var tekið í
alls 730 tonna kvóta á árinu. Er það
svipað magn og áður. Miðað við með-
alverð tekinna tilboða er verðmæti
innflutningsins um 62 milljónir
króna.
Að sögn Ólafs Friðrikssonar í
landbúnaðarráðuneytinu er verð-
mæti innflutningsins nú töluvert
minna en áður. Á síðasta ári var til-
boðum tekið fyrir um 240 milljónir
króna. Lækkunin milli ára er um
73%. Ólafur segir lækkunina skýrast
af gengisþróun og aðstæðum á
mörkuðum. Fyrirtækin finni greini-
lega fyrir minni eftirspurn eftir inn-
fluttum afurðum en áður.
„Sannast sagna áttum við von á
meiri lækkun milli ára,“ segir hann
en tilboðin voru jafnframt mun færri
en á síðasta ári. Þá var þátttaka
heldur meiri og verð hærra en verið
hafði árin áður.
Fyrirtækin sem sendu inn tilboð
voru Debit, Dreifing, Innes, Jóhann
Ólafsson & Co, Kaupás, Mata,
Perlukaup, Sælkeradreifing, Sæl-
kerinn, Samkaup, GE Sæmundsson,
Karl K. Karlsson ehf., Viðbót,
Mjólkursamsalan, Sólstjarnan og
Ásbjörn Ólafsson ehf. Að auki er
IGS Flugþjónusta með umsókn um
tollkvóta í einum flokknum.
Sextán tilboð í tollkvóta
Verðmæti tilboða í innfluttar landbúnaðarvörur nærri
fjórfalt minna en í fyrra Minni eftirspurn og hærra gengi
# !
$%%&
<$#
-& &.=#" >
<$#
-& &.=#" ?
@*$@
@*$@
"(&"*13&
!%'"*13&
5(,"*13&
A13& =, -&$ 4(&"$
)&($B+)&',($
C+)($ =@5
''"# *13&
=''
'
!
!
(
!
!
)*
+
+
!
!
,
!
+
(
!
!
)*
,
!
+
+
(
-
5($#$
ÞÓTT frost sé á Fróni þá væsir ekki um hrossin í kyrru
og þurru veðri. Þau eru líka fyrir löngu komin í hlýjan
vetrarfeldinn. Hér hefur þeim verið gefið á gaddinn í
Aðaldal en þar hefur verið mjög kalt að undanförnu.
Þessi kuldatíð á landinu er raunar búin að vera óvenju-
lega hörð og löng en nú eru veðrabrigði í vændum. Í
dag á að hlýna með suðvestanátt og má búast við snjó-
komu eða slyddu á Suðvesturlandi. Frostið mun síðan
einnig láta undan síga á norðanverðu og norðaust-
anverðu landinu og hitastigið verður svo yfir frost-
marki alls staðar á landinu fram yfir helgi að minnsta
kosti.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Gefið á gaddinn í Aðaldal
Löngum kuldakafla loks að linna
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Sevilla
23.-26. apríl
Hin glæsta höfuðborg
Andalúsíu!
Frábært sértilboð - mjög fá sæti í boði!
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða nú frábæra helgarferð, á sumardaginn fyrsta til
Sevilla höfuðborgar hins einstaka Andalúsíuhéraðs á Spáni. Sevilla
er einstaklega fögur borg, rík af sögu og stórfenglegum byggingum,
s.s. Dómkirkjunni með Giraldaturninn þeirri þriðju stærstu í heimi. Í
miðborginni og hinum eldri hlutum borgarinnar er einstök
stemmning, þröngar götur, veitinga- og kaffihús og heillandi torg.
Auk þess er óendanlegt úrval verslana í borginni. Vorið bregður
Sevilla í sinn fegursta búning og hún skartar öllu sem hún hefur til
að bera. Bjóðum frábært sértilboð á góðri gistingu, Suites Vega del
Rey. Gríptu þetta einstaka tækifæri og smelltu þér í einstaka
helgarferð þar sem tíminn nýtist
einstalega vel, en flogið er út að
morgni fimmtudags
(sumardagsins fyrsta) og komið
heim að kvöldi sunnudags (aðeins
einn vinnudagur).
Beint morgunflug
- á sumardaginn fyrsta
Verð frá kr. 69.990
Netverð á mann. Sértilboð. Flug, skattar
og gisting í tvíbýli á Suites Vega del Rey
með morgunverði í 3 nætur. Aukagjald
fyrir hálft fæði kr. 5.900. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 14.200.